![]() |
| 'What will your obituary say?' at QuizGalaxy.com |
Saknað af skíthælnum. Næs.
Justin Timberlake varað árita plötuna sína í Virgin Megastore á Union Square. Ég fór ekki. Hefði viljað fara þegar Paris Hilton varað árita bókina sína á sama stað í fyrra eða hittífyrra. Og ég hefði farið ef ég hefði verið búinn að búa til bolinn sem ég ætlaði alltaf að vera búinn að búa til. Planið var að bera bolinn og segja eitthvað ókvæðisorðalegt, en ég bjóst aldrei við að þora því að opna munninn, plús að það hefði verið frekar máttlaust að bíða í röð í 2,5 klst og renna svo peysunni frá bara tilað verða bömpað frá borðinu af æstum múgnum. Dáldið einsog þegar maður dinglar í fallhlífinni úr stóru tré.
Hverfispóstmaðurinn minn vinalegi, sem heillar örugglega alla hunda sem hann nálgast, brosti til mín í gær og bauð mig velkominn aftur til New York. Hann er næs, og var í fínum póstburðarmannastuttbuxum og með glænýja derhúfu með ásaumuðu merki. Og með einhverskonar gul varnargleraugu. Fannst þau skrýtin, en, þúveist, hann hefur sínar ástæður.
Pabbi hans var hermaður á Íslandi árin 1942-43, áður en hann fór til Normandí "...and all that", og var duglegur að taka ljósmyndir, aðallega af risastórum snjósköflum og af sjálfum sér og vinum sínum með loðhúfur, pósandi í snjó, og hálf-villtum í labbitúrum. Póstmaðurinn vingjarnlegi ætlar að sýna mér þessar myndir, jafnvel að gera afrit fyrir mig.
Ég hlakka til að sjá þær, en kvíði dáldið fyrir því að vera friendly með óþekktum póstmanni, sama hversu næs hann er. Ég meina, hvað geri ég þegar hann dinglar? Hleyp ég niður? Buzza ég honum inn? Stöndum við í stigaganginum? Gef ég honum hummus? Ó framtíðin.
Þegar ég skoðaði íbúðina mína í fyrsta skipti skoðaði ég ekki íbúðina mína, heldur íbúðina beint fyrir ofan sem er alveg eins í laginu. Brokerinn minn átti gríðarlega erfitt með að líta framhjá piparsveinalífinu sem blasti við okkur þar inni: risaflatskjár, playstation, xbox, vínskápur og slímgreiddur verðbréfabraskari í hvítkragaðri bláröndóttri skyrtu með axlabönd, í háglansandi skóm, með jakkann kræktann í vísifingur og hangandi yfir öxlina. Greyið brokerinn spurði íbúann aftur og aftur spurninga um næturlíf, stelpur, piparsveinalífið og allskonar aðra hluti, þannig að ég stóð bara nagandi neðri vörina mína og skammaðist mín, og langaði að bakka rólega útúr íbúðinni og láta mig hverfa. Íbúðin var samt næs, fyrir utan andrúmsloftið, innihaldið og hugmyndafræðina, og ég flutti hingað. En, í hvert einasta skipti sem loftið brakar, prumpar, ískrar eða dúnkar, fer ég ósjálfrátt að hugsa um hvort hann sé að hamast í rallýleik í playstation, flambera risarækjur í hvítvíni, eða í kitlileik við kvendi í blúndum með kanínueyru og dúsk á rassinum.
Þannig sé ég nefnilega glamúrpiparsveinalíf nágranna minna fyrir mér. Hin hliðin, þessi með öllum pizzakössunum, táfýlusokkunum, handklæðunum á gólfinu, orkudrykkjunum í gluggakistunni og rifnu umslögunum, er óviðeigandi þegar ég vil hafa það næs. Ég vil að þessi gaur plokki sig sjálfur, beri á sig avókadó, hlaupi 18 kílómetra á morgnana, kreisti sinn eigin appelsínusafa, og kunni þrjátíu tungumál. Nenni ekki að hann sé lúðinn sem ég held að hann sé.
En hann hugsar örugglega það nákvæmlega sama um mig. Vill örugglega ekki sjá mig fyrir sér staulast krumpaðan inná baðherbergi, þurrka hummus af bleikri bringunni, hella pepsíi í kjöltuna á mér og skjálfa af hræðslu þegar ísskápurinn gerir dropahljóðin á næturnar.
En þau eru bara svo hræðilega spúkí. Drip...drip...drop...

Skilaboð (5)
ohhhh ég vildi ég hefði vitaf af justin
Skrifað 13.09.06 18:07
Var þetta brókerinn sem ég hitti? Hann var samt alveg klárlega 3x meiri piparsveinn en þessi gæji.
Skrifað 15.09.06 09:09
Já, hann var meiri piparsveinn, en kunni það ekki.
Skrifað 15.09.06 09:46
póstgaurinn enda með að vera þinn cableguy, farðu svo að laga kommentin, þau eru enn öll í rugli
Skrifað 18.09.06 05:50
Thanks for such a fantastic publish and the examine, I'm completely impressed! Maintain stuff like this coming.
Skrifað 30.09.10 17:53