« Fagnaður | Aðalsíða | Ekki vera nakinn, api »

Mér er skemmtilegheitt í hamsi

Ég þarf að gera helling fyrir mánudaginn. Ekki bara helling fyrir skólann, heldur líka helling af öðru:

* í kvöld, tónleikar: Adam Green og Jeffrey Lewis
* á morgun, bíó: Jesus Camp
* á sunnudaginn, tónleikar: Flaming Lips

Þess á milli ætla ég að borða og vera duglegur að teikna og skemmta sjálfum mér.

Mér fannst alltaf gaman í skólanum, svona að mestu leiti. Elskaði að borða nestið mitt (uppáhaldið var pálmabrauð með smjöri og osti og grænni papriku, og kókómjólk eða sítrónuSvali), og fannst alltaf stuð að velja mér pennaveski á haustin. Á mínum langa skólaferli, sem hófst árið 1982, hefur samt eitt atriði valdið mér hvað mestu hugarangri og margoft tekist að láta mér líða einsog skóli og allt það sem honum tengist sé upprunnið í brjóstsviðnum iðrum Kölska. Í fýlukasti. Með mígreni. Í rigningu. Læstur úti. Með batterýslausan síma.

Ég er að tala um heimavinnu.

Þó mér hafi aldrei fundist erfitt í skóla, og aldrei hatað hana af lífs- og sálarkröftum (spúkí gangaverðir eru efst á þeim lista) þá hef ég aldrei almennilega skilið tilganginn með heimavinnu, og veit að hún er einn helsti baráttumaður skólahaturs í ungu fólki.

Fullorðið fólk flykkist til sambandsráðgjafa í þeim tilgangi að læra að lesa kvart makans á þann hátt að vinnuna eigi að skilja eftir heima. Ekki vera með olíusmitandi reykpúffandi fjórgengisvél á fína dúknum á stofuborðinu, og ekki skekkja rúmið með bláum möppum fullum af gulnuðum reikningum og þvældum bréfaklemmum.

Afhverju eiga þá börn --já, þessi litlu, saklausu, lífsglöðu og krúttilegu börn-- að gera hið sama?

Er kannski verið að passa að þau eyði nú ekki æskunni í einhverja vitleysu einsog að leika sér, hafa gaman, sötra ananassafa, brosa þegar þau sjá sykurkar, hlakka til að rjúka út í sólinni, byggja snjóhús, fylla litabækur, og dreyma um ofurhetjubúninginn sem þau ætla að fá sér þegar ofurhetjukraftarnir vella útum líkamann um kynþroska (þau verða hvortsemer fyrir vonbrigðum þegar ofurhetjukraftarnir mæta aldrei, og þau eru bara venjulegir úllingar).

Er verið að undirbúa þau fyrir framtíðina, svo þau séu ekki það heimsk að halda að þegar þau eldast geti þau átt von á því að vera áfram glöð og ekki barist við stressútbíaðar svefntruflanir og sleppt því að hafa áhyggjur af morgundeginum, og hlakkað til í staðinn? Afhverju ekki að setjast bara niður með þeim og lesa vel valdar fyrirsagnir úr dagblöðunum? Eða sýna þeim tómu brjóstin sem voru einusinni fín, áður en ÞÚ saugst alla mjólkina úr þeim, og lífið í leiðinni? Eða útskýra fyrir þeim skattkerfið? Gatnaframkvæmdir á álagstímum? Milljarðakróna göng útá landi fyrir 18 manns?

Afhverju er yfirvinna kölluð yfirvinna, og fólk fær vorkunn, klapp á sveitt flösótt bakið og extrapening fyrir að "leggja þetta á sig", en heimavinna á að vera holl og góð og nauðsynleg og miklu skemmtilegri en teiknimyndir? Hvar er gulrótin? Að verða klár? Áður en þú færð allar tennurnar?

En hvar er gulrótin í alvöru? Hversu margir foreldrar geta án nokkurrar lygi og í fyllstu hreinskilni horft í augun á litla fallega útitekna stóreygða saklausa vaxlitsnagandi barninu sínu og sagt: "Nei ástin mín, þú mátt ekki leika þér þó núna sé fyrsta sólskinið í átján vikur. Nú skaltu læra heima, svo færðu steikta ýsu og volga mjólk, og svo þarftu að bursta tennurnar, taka til í herberginu þínu, og fara svo að sofa."

Ég fæ tár í augun.

Auðvitað er sniðugt að foreldrarnir eyði smá tíma með börnunum sínum og hjálpi þeim að gera tengiskriftaræfingar, og séu jafnsveitt og börnin sín að kljást við stærðfræðidæmi. En heimavinna á ekki að vera eitthvað gúlag.

Án alls gríns, þá skil ég ekki hugtakið.

Ef starfsfólk vinnur vinnuna sína, og yfirmenn skipuleggja tímann og verkefnin rétt, og hætta að spreða í flatskjái og nýjar kaffivélar, þá ættu allir að geta unnið á daginn og gert eitthvað annað á kvöldin. Þó mér hafi ekkert alltaf fundist öll yfirvinna hræðilega leiðinleg (stundum meiraðsegja skemmtileg) þá held ég að ég hafi aldrei unnið yfirvinnu afþví að allt fór einsog það átti að fara, heldur alltaf vegna þess að eitthvað klúðraðist, einhver gleymdi einhverju, eða þessi hlustaði ekki á hinn og fór bara í lax. Og eftir sit ég og einhver annar, og við þurfum að "redda þessu".

Redda. Einmitt. Greyið við. Bakklappið og aukapeningurinn kemur á endanum.

Ef kennararnir vinna sína vinnu, og kenna börnunum í kennslutímum, þá þurfa þau ekkert að læra heima. Þau eru þá búin að læra í skólanum. Hvað eru þau annars að gera þar?

Svo einhver fari ekki að reyna að vera fyndinn og segja "haha, ertað gefast upp Halli", þá er það ekkert málið. Ég erað meina að það er allt annað að vinna heimavinnu þegar þú skilur verðmæti og gildi vinnunnar, og getur þarafleiðandi kannski metið og skipulaggt tímann þinn í samræmi við það (ég skrifaði fyrst "samræði").

Ekki að ég geti það rosa vel þó ég sé að verða þrítugur, en djísús EKKI LITLU BÖRNIN!!!

Hvað veistu þegar þú ert nýbyrjaður í skóla? Þú kannt ekki einusinni að skrifa "hundur", og það tekur þig örugglega 10 mínútur að ydda einn sleipan blýant. Og þú átt eftir að þróa góða strokitækni svo þú fjarlægir bara það sem þú ætlaðir að fjarlægja.

Leyfum börnum að vera börn. Gefum þeim ókeypis pálmabrauð með smjöri og osti og grænni papriku. Leyfum þeim svo að fara heim og segja mömmu og pabba og hundinum og stóra bróður hvað það var gaman í skólanum, og hvað þau hlakki til að fara daginn eftir og segja kennaranum hvað það var gaman að koma heim að hitta mömmu og pabba og hundinn og stóra bróður.

Þegar ég eignast börn ætla ég að gera heimavinnuna fyrir þau. Eða outsourca hana til Indlands.

Skilaboð (15)

sko. þegar ég byrjaði í HÍ þá sagði bróðir pabba mér að skólinn væri ætlaður eins og full vinna.. þannig þar sem maður er ekki í tímum 8-4 alla daga (eða 9:30-17:30 eins og minn leti mætingartími) þá ætti maður að eyða tómu stundunum þarna á milli í að vinna heimavinnuna..

ég reyndar man ekki eftir að hafa þótt eitthvað leiðinlegt að læra heima.. og fannst alltaf gaman að læra fyrir raungreinarnar eins og stærðfræði.. helst leiðinlegt eitthvað svona sem þurfti að lesa geðveikt mikið, ekki bara skilja..

og ég hef unnið yfirvinnu af því þetta sem ég var að gera var svo skemmtilegt og gekk svo vel að ég týmdi ekki að hætta..

namm sítrónusvali.. það er stundum þannig til heima hjá mömmu og pabba og þá fæ ég mér alltaf

Einmitt, Háskóli. Ekki það sama og barnaskóli.

Þú valdir líka að fara í háskóla.

Og já, stundum vinn ég yfirvinnu afþví að verkefnið er skemmtilegt, en það breytir því ekki að ég gæti alveg farið heim og haldið áfram næsta dag...nema þá er eitthvað annað sem ég þarf að gera, skiluru?

Heimavinna var ekki leiðinleg þegar hún var skemmtileg. En leiðinleg heimavinna lét mig brjóta blýanta og langa ekkert í skólann.

Bob:

Stundum vil ég kyssa þig á ennið Halli minn.

Flott blýantamyndskreyting þarna.

oooooooo mig langar á tónleika með Adam Green og Jeffrey Lewis! Hvaða hljómsveit var það sem þú keyptir óvart nítján miða á? og það var einhver ekkert skemmtileg hljómsveit, þú hlýtur að hafa keupt 90 miða á þessa

you!!! Auðvitað er heimavinnna ömurleg, komdu til okkar í heimsókn klukkan fjögur um eftirmiðdaginn, ég að hringsóla um eldhúgólfið, að reyta á mér hárið. Sölva með sætu bláu augun sín, já, en mamma, ég kann ekki að skrifa. Tala nú ekki um elskuna hann Reginn sem einfaldlega breytist í naut á þessum tímum og vill einfaldlega fá að vita hvenar hann getur fengið að hætta í skólanum.
By the way, mjög sár að missa af tónleikunum, farðu vel með þennan gamla!! Love and peace, Sigga Tigga

ansans sagði einfaldlega of oft, einfaldlega....damn

Mamma lét mig aldrei læra heima. Án gríns - ekki einu sinni. Alla mína skólagöngu.

Ásdís:

Vel á minnst. Hitti Hildi Hafstein í afmæli í gær. Hún gat ekki hætt að dásama þig og vinina. Skemmtilegasti bekkur sem hún hefur kennt. Hefur ekki verið leiðinlegt í skólanum hjá henni a.m.k. ekki á meðan þið voruð í MS.
ps. Er enn að læra heima, komin á sextugsaldur. Valdi mér sjálf það hlutskipti og leiðist það ekki. Bara gaman.

Harpa:

ég tárast líka, þú ert krútt, þú skilur litlu börnin og yddaravandann....

Takk Bob minn.

Kamilla: heh, keypti marga miða á (f*kkíngs) Nine Inch Nails. Ekki að mig langaði að fara, nei, þetta var gróðahugsjónin að drekkja mér í blindni.

Sigga: ég skal sjá vel um hann. Láta hann borða einfaldlega nóg af risapretzels með sinnepi.

Sigrún Ósk: mamma þín er sniðug kona...en þarna eru samt glataðar stundir þar sem þið mæðgurnar hefðuð getað dáðst að rauðum stjörnustimplum fyrir vel unnin störf.

Ásdís: já, ef þetta er eitthvað sem þú ákveður sjálf þá er það ekkert böl. Ekki frekar en að vilja bursta tennurnar sjálfur.

Harpa: púff já, fannst alltaf einsog ég þyrfti báðar hendur til að ná almennilegu gripi...

Mmmmm!

Mig langar í pálmabrauð með smjöri, osti og grænni papriku.....

Jæja elsku krúsí músí lúsí dúsí rúsínurnar mínar.

Aðallega Halli samt. Sko. Ástæðan fyrir því að börnum er ætlað að læra heima er til að þau verði sem fyrst tilbúin út á vinnumarkaðinn. Ástæðan fyrir því er sú að það er harðnandi samkeppni um hvert starf. Ástæðan fyrir því er sérhæfing. Ástæðan fyrir því er iðnbyltingin og þróun kapítalisma.

Sjáði bara snillinginn sem fann upp rafmagnsyddarann?

Svo má ekki gleyma því að gömlu fólki sem getur ekki unnið fer fjölgandi og þar af leiðandi verður einhver að borga brúsann.

Styttum framhaldsskólann, grunnskólann og leikskólann. Borgum brúsann með snuð í munnvikinu!

Snillingur ertu! Frábær færsla.

Þórður: ertu að meina að það eigi snemma að kenna börnum að hata vinnuna sína?

Annars sé ég miklu meira samhengi í því að láta þau þá vinna helling í skólanum, og fara svo heim þreytt og svöng, alveg einsog fólk sem vinnur.

"Guðlaugur, hættu nú að fikta í vinnumálum í tölvunni og hjálpaðu dóttur þinni að læra heima."

"Guðlaugur, ekki bora í nefið, hjálpaðu dóttur þinni að bora í nefið sitt."

Skil. Sniðugt.

Ég á við að því fyrr sem börnin kunna að diffra því fyrr er hægt að treysta þeim til að virkja.

Þess vegna er þeim sagt að læra heima. Það er líka hagkvæmara heldur en að hafa kennara á launum við að sitja yfir þeim.

Skrifaðu skilaboð



(If you haven't left a comment here before, you may need to be approved by the site owner before your comment will appear. Until then, it won't appear on the entry. Thanks for waiting.)

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 22. september 2006, kl: 17:49.

Fyrri færslan er Fagnaður.

Næsta færsla er Ekki vera nakinn, api.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31