Ég er búinn að hlusta á lagið "Rump Funk" ca 50 sinnum í dag. Það er að vísu stutt (gargið á höfundinn!) en það breytir því ekki að ég ætla mér að hlusta á það ca 300 sinnum áður en ég fer að sofa í kvöld.
Þegar ég heyrði þetta lag í fyrsta skipti fyrir nokkrum árum ruddist það að heilanum mínum og merkti sér svæði.
Svipað og nautsterkur leðurklæddur mótorhjóladurgur sem labbar yfir girðinguna inná tjaldstæðið, hlammar 250 kílóa bakpokanum á grasblettinn og gargar: "MITT!".
Nema...þetta er einsog einhyrningur sem kúrir krúttilega fyrir framan arininn þegar þú ferð fram að pissa um nóttina, þannig að þú hvorki tímir að vekja hann, né þorir því.
Hvað gerist þegar einhyrningurinn vaknar? Eða þegar leðurdurgurinn fær OgVodafone strandbolta í ennið þar sem hann stendur og grillar pulsur með Zippo-kveikjaranum sínum?
Eða þegar Krilli hættir að gera músík?
Stopp. Mér verður óglatt.
Elsku vinir, nú er tími fyrir aðgerðir. Hér er undirskriftalisti, svo að Krilli hætti aldrei að gera músík og vera snillingur. Skrifaðu undir, sendu á vini þína, og sendu á óvini þína.
Skilaboð (11)
hrmf! ég reyndi að skrifa undir þetta (ég fæ sting í magann við tilhugsunina um að krilli hætti að gera tónlist) en það kom bara error!
en ef ég myndi sjá sofandi einhyrning myndi ég pottþétt laumast til að klappa honum, ég hef alltaf séð fyrir mér að það sé rosalega mjúkt að klappa einhyrningum, svona eins og kanínur.. og það sé ekki hestalykt af þeim heldur svona fersk ilmvatns
Skrifað 18.09.06 18:26
Já, þeir eru örugglega mjög mjúkir. Með stutt hár sem eru kannski litlar fjaðrir, einsog þessar sem stelast útum sængurnar manns.
En ilmvatnslykt? Rakspíralykt?
Kremlykt kannski frekar.
Skrifað 18.09.06 18:30
Undirskrifidótið virkar hjá mér
Nei...það...er bilað. Hrfm indeed.
Skrifað 18.09.06 18:31
Ég náði að skrifa undir. Krilli er rosa vinsæll í kvöld annars, ég skrifaði færslu um hann rétt áður en ég sá þína.
Skrifað 18.09.06 20:55
ha hvaða undirskrifidót?
já svona mjúkum dúnfjöðrum, hvítum..
sennilegast kremlykt já.. ég held ekki rakspýra.. pottþétt eitthvað meira blóma en það ef hann er með ilmvatn en ekki krem.. kannski vanillu?
Skrifað 18.09.06 20:56
vá ég er heiladauð..
seinfeld eða raymond?
Skrifað 18.09.06 21:07
Ég verð að hrósa þér fyrir flott útlit á síðunni þinni. Mjög gaman að fá þessar myndir allar í lit! Nice one.
Skrifað 18.09.06 22:00
Hver er Krilli ?
Skrifað 19.09.06 04:06
krilli er risa-tilli.
Skrifað 19.09.06 05:20
hehe þú með skruddurnar er fyndin !
Skrifað 19.09.06 06:30
Ég get ekki skrifað undir á listan svo ég ætla að vera með læti hérna í staðinn:
"ÁFRAM KRILLI!"
Takk fyrir.
Skrifað 30.09.06 13:37