« Disturbing | Aðalsíða | Hola í hjarta mínu »

The War on Terror í stuttu máli

Juan Cole er prófessor í sögu við háskóla í Michigan og skrifaði eiginlegt The War on Terror for Dummies, Fisking the "War on Terror", þar sem hann rekur röð atburða frá Reagan að London á mjög auðskiljanlegan hátt.

Þetta er ansi fróðlegt lesning. Hann talar t.d. um hið augljósa: að með tímanum hafi ákvarðanir Bandaríkjastjórnar ollið því að hryðjuverkahópar frömdu sprengjuárásir í Madrid, London o.s.frv. Þó þessir fullkomlega siðlausu einstaklingar sem ákváðu að drepa saklausa morgunferðalanga falli að sjálfsögðu undir skilgreininguna "helvítis hryðjuverkamenn" þá er málið aðeins flóknara, t.d. sú staðreynd að þegar sprengjuárásirnar voru gerðar í London var öryggisfyrirtæki (stjórnað af fyrrverandi Scotland Yard herramanni) með úttekt og neyðaræfingu á nákvæmlega sömu stöðum, á nákvæmlega sama tíma, og því ekki svo augljóst að þar hafi bara verið einangraðar terroristasellur að verki. Sem er kannski einsog það er alltaf, þar sem hin frábæra og mannelskandi bandaríska ríkisstjórn er einn helsti sponsor hryðjuverka í heiminum í dag. Enn merkilegra er að samskonar öryggisæfing fór fram þann 11. september '01, og er það m.a. ástæða þess að fjölmiðlar misreiknuðu fjölda flugvélanna sem taldar voru hafa flogið á skotmörkin. Og hana-fokkíng-nú.

Linkar:
- Frétt um öryggisæfingarnar af Propaganda Matrix
- Vídeóviðtal við eiganda öryggisfyrirtækisins
- Fisking the "War on Terror"
- Momus að blaðra um heiminn

Skilaboð (3)

ekkert verið að minnast á hjálpina nei

Átt þú þessa bók? viltu lána?

Ólafur, ég er nú þegar búinn að minnast á pabba hennar Birtu, sjáðu bara "allt er sma bilad".

Kolka: ég held að það sé engin bók, bara þetta blogg?

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 17. ágúst 2005, kl: 01:19.

Fyrri færslan er Disturbing.

Næsta færsla er Hola í hjarta mínu.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31