« Metallihalli | Aðalsíða | ArtPad »

Svitafýlubíó

Bryndís minnti mig á bíóferðina um daginn þegar einhverjum einum misþroska derhúfuðum drengling með svaðalegt yfirbit og rakasta og mest fuzzy augnaráð sem ég hef séð tókst að stinka upp heilt bíóhús.

Honum (og kannski vinum hans) tókst að blanda og safna saman öllum þeim lyktum sem maður vill ekki finna þegar maður er í bíó. Táfýla, rassalykt, hárlykt, reykingjarstækja, lykt sem kemur af manni þegar maður púlar í of þykkri peysu þannig að það gufar af manni og maður lyktar eiginlega einsog hundur í mollulegu þvottahúsi, svitalykt, kallalykt sem kemur af fötum fólks sem svitnar í fötin sín og brýtur þau svo snyrtilega saman og setur settlega uppí hillu og örugglega tvígengisolíulykt einsog var alltaf af töffurunum sem áttu skellinöðru í gaggó. Og koltvísýringur. Hah!

Því miður var erfitt, næstum ómögulegt að segja eitthvað við drenginn, því hjá honum voru ljósin kveikt en enginn heima, ef þú skilur hvað ég á við. Það ætti hópur baráttufólks að grípa hann á næstu powersýningu og spúla hann á næsta plani. Og gefa honum teina. Og ilmkúlur. Og mölkúlur einsog Palli og Toggi áttu alltaf.

Skilaboð (3)

Bryndís:

haha .. gott gott .. samt alveg spurning hvort það sé hollt að rifja svona upp.

Fyndið samt hvað hann var hörundsár greyjið strákurinn .. um leið og svitafýlutalið kom upp hjá röð nr5 þá tók hann það greinilega strax til sín og varð soldið hostile í garð okkar ..
hvæsti á okkur að hætta að sparka í sætið hans og svona og kvartaði undan koltvísýringnum

skemmtilegir þessir illa lyktandi unglingar

myndin var samt fyndin !

Ég dó! Rassalykt bwahahahahahaha! Þetta hefur verið vægast sagt óskemmtileg bíóferð? En takk krúz fyrir droppið áðan. Lea loved you!...eins og gefur að skilja. Hún var ekki söm eftir að þið fóruð. Ógó gaman að hitta ykkur sæta par ;) *muah*
Ble

hey, ég á eina vinkonu sem angar alltaf af svitalykt en hún hefur ekki hugstrump. svo kemur hún kannski að hitta mig og er rosalega relaxed og setur hendurnar svona fyrir aftan hnakka og er í wifebeater og svei mér þá ef þessi vinur þinn hefði ekki bara virkað sem lítið hor við hlið hennar.... og samt, þó að hún sé vinkona mín... þá er bara ekkert hægt að segja við þessu.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 04. ágúst 2005, kl: 16:20.

Fyrri færslan er Metallihalli.

Næsta færsla er ArtPad.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31