
Þessi leikur (eða talnaþraut fyrir þá sem finnst það meira kúl orð) heitir Sudoku. Reglurnar eru mjög einfaldar: settu tölur frá 1 til 9 í tómu reitina. Hver lóðréttur dálkur má aðeins innihalda eina af hverri tölu (1 til 9 fyrir þá sem vita ekkert hvað ég er að tala um). Sama gildir um hvern láréttan dálk og hvern 3x3 ferning.
Hvert einasta Sudoku er með einstaka lausn sem hægt er að finna án þess að giska. Heyriði það? Það er bannað að giska. Ef maður giskar þá skaðar guð kettling og leikurinn flækist.
Þetta er víst voða móðins útí hinum stóra heimi og eru ALLIR að fikta í þessu (Larry King, Stephen King, Don King og Svenni). Það er hægt að spila Sudoku á netinu (skoðið linkinn að ofan eða notið google), eða kaupa bók og leyfa öllum að sjá hvað maður er mikið nörd.
Sjáiði hvað ég er góður. Nú þarf engum að leiðast í vinnunni lengur. Allir spila Sudoku og hirða launin sín í lok mánaðarins. Er þetta ekki æðislegt?
Skilaboð (8)
Ég er Sudoku meistari!
Ef þú vilt samt spila á netinu er fínt að spila hér:
http://www.miniclip.com/sudoku/sudoku.htm
3 nýjar þrautir á hverjum degi.
Skrifað 24.08.05 09:57
Hættu með þessa fáranlegu leiki HAraldur!! Þú ert að gera mig geðveika.. by the way.. +eg skil ekki ENNþÁ hvernig hitt helvítið virkar!
Skrifað 24.08.05 12:29
you have too much time on your hands
Skrifað 24.08.05 13:15
Hö: gott að heyra, fellow meistari. Ég er samt frekar slappur meistari ef ég á að vera mjög hreinskilinn. Tekur mig oftast um 10 mínútur að leysa léttustu þrautirnar. En ég er líka svo fáránlega gáfaður að það flækist margt annað fyrir.
Kolka: Sudoku er léttara en hitt, a.m.k. þarf maður bara að hugsa rökrétt. Ef þú getur það...
Alli: það er betra að eyða tímanum í þetta heldur en að drekka pilsner á Reyðarfirði...
Skrifað 24.08.05 17:00
Ég keypti mér Sudoku bók útí London þegar ég var þar síðast. Ég sver það, flugið heim hefur ALDREI liðið jafn hratt. Fullkomið á löngum ferðalögum.
Skrifað 24.08.05 21:01
Einmitt - ræddu það bara við Spaðann hvort að ég sé ekki alveg ótrúleg röksemdarvél. Hann getur staðfest það svo sannarlega :)
Skrifað 25.08.05 12:29
He he. Hringi í hann hið snarasta...!
Kannski ég kaupi mér svona bók...get þá legið einsog bóhem undir einhverju tré...nei, uppí tré, og krotað mig blindan.
Skrifað 25.08.05 18:46
Hi buddy, extremely informative submit. Please keep them coming.
Skrifað 30.09.10 18:46