Vil bara minna á þennan leik. Hann er búinn að gera flesta í kringum mig geðveika, þ.e. þangað til þeim tekst að leysa hann.
« Tvennd | Aðalsíða | Eftir ca 1/2 ár í hjónabandi... »
Vil bara minna á þennan leik. Hann er búinn að gera flesta í kringum mig geðveika, þ.e. þangað til þeim tekst að leysa hann.
Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 23. ágúst 2005, kl: 22:55.
Fyrri færslan er Tvennd.
Næsta færsla er Eftir ca 1/2 ár í hjónabandi....
Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.
Skilaboð (9)
Mér hefur sjaldan liðið jafnvel og þegar ég loksins fattaði þetta eftir að þú bentir á þetta í fyrsta skiptið. Ótrúlega pirrandi þangað til að maður fattar þetta.
Skrifað 24.08.05 00:35
Ég er memm í fattliðinu. Hí á hina.
Skrifað 24.08.05 00:40
Ó ég hélt að þú værir á leiðinni ;-)
Skrifað 24.08.05 01:07
Já, mamma er einmitt búin að sitja hálfsveitt að rembast við þetta og gafst upp á endanum. Ég ímeilaði henni samt linkinn í vinnuna svo hún geti rembst á morgun líka.
Mér finnst eiginlega að þetta eigi að vera hluti af inntökuprófi í háskóla hér á Íslandi. Það tók mig á sínum tíma 3 daga samtals (í nokkrum skorpum) að fatta leikinn, og ég myndi borga góðan pening fyrir að sjá heilan íþróttasal fullan af fólki sitja sveittu yfir þessum andskotans leik. Hvað þá fólk á Grund. Eða Alþingi.
Hey, ég ætla að fá Alþingismenn til að taka þátt í þessu og sjá hver er gáfaðastur. Eða who cares, anyways.
Skrifað 24.08.05 01:28
i must be a fucking genius because i still can't solve it after alll these months.
sigga however is a real idiot since she figured it out immediately.
Skrifað 24.08.05 09:12
Ég fattaði í öðru kasti og er ekki einu sinni að ljúga. Og nú er ég hætt að fara inn á þessa síðu í vinnutímanum... tímaþjófur ársins. Pfff...
Skrifað 24.08.05 12:24
Jeff: you're right about that! Styrmir also got it after 10 minutes, but Dóra said she'll never touch that thing again.
Skrifað 24.08.05 16:53
Í öðru kasti? Hvað leið langt á milli kastanna? Og hve oft gúglaðirðu?
Þegar ég fattaði þetta var ég bæði stoltur af sjálfum mér og fyrirleit sjálfan mig fyrir að hafa ekki fattað fyrr. Maður verður að kunna pí með a.m.k. 6 aukastöfum...ég klikkaði einmitt á því fyrst.
En hey, þú ert hvortsemer ekki að gera neitt merkilegt í vinnunni og getur því alveg eins gert þrautir, blaðrað og saumað út.
Skrifað 24.08.05 16:56
Kastaði einu sinni... hmmm... hugs, hugs... kastaði aftur... horfði á niðurstöðuna í svona tvær mínútur... hugsaði: "Það skyldi þó aldrei vera?"... Jú, það stóð heima.
Gúgglaði ekki.
Djöfull hlýt ég að vera fáránlega heimsk. Græt mig í svefn í nótt. Mun óska þess að ég væri ljót líka - fáránlega ljót. Fólk hefur nefnilega enga samúð með fólki sem er gordjuss en heimskt.
Ég hef ákveðið að láta kommentið um vinnuna og merkilegheitin sem vind um... augu... þjóta. Enda skaut ég mig í báða fætur með því að kommenta og koma þar með upp um þá staðreynd að ég kom hingað aftur. Arrrg...
Skrifað 24.08.05 17:29