Halli C er mjög ánægður með Þorstein J.
Þorsteinn J rekur einhverskonar veftímarit sem heitir Þetta líf. þetta líf, þar sem hann sýnir stuttmyndir, heimildarmyndir og öðruvísi misstuttar myndir. Ég myndi ekki vita um J-Bird og veftímaritið hans nema vegna fréttar um tilnefningu til berlínskra verðlauna, og svo seinna auglýsingu um myndina Ásu ömmu.
Ég horfði á Ásu ömmu á vefsíðunni áðan og finnst hún stórmerkileg. Finnst sérstaklega kvótið frábært um að hesturinn hafi talsmann, börn hafi talsmann, en aldraðir hafi engan. Ef eitthvað réttlæti er til í þessum heimi mun siðblinda og grimma dóttirin enda fláin í gapastokki, þumalskrúfu og bóndabeygju og ALDREI, ég sagði ALDREI upplifa ást framar (sem er ekki líklegt hvortsemer þar sem hún er greinilega með frauðplastsklump í stað hjarta). Ef einhver er vondur við mína ömmu þá mun hann og öll hans ætt súpa seyðið af því næstu 350 árin. Þetta er hótun, fyrir ykkur sem eruð eitthvað að pæla í því.
Kannski afþví að vefsíða J-Bird heitir og er veftímarit þá er ekki svo auðvelt að finna gamalt efni, en með smá alúð og heilabrotum fann ég slóðina á alla þrjá hlutana:
Ása amma I
Ása amma II
Ása amma III
(smellið og horfið, eða hægri-smellið og vistið, vonandi má það)
Ég fann ekki löngu samsettu útgáfuna sem sýnd var á Rúv (J-Bird mætti alveg bæta úr því) en þetta er alveg nógu gott. Ég er búinn að skoða nokkrar aðrar myndir á síðunni og er ansi glaður með þetta framtak og enn glaðari að vita hvað elskulegur landi minn er búinn að vera að gera allan þennan tíma. Vonandi vinnur hann glansandi verðlaun og getur gert fleiri myndir. Best væri ef hann gerði eina í fullri lengd sem færi í bíó og framleiddi tár, því tár eru allra meina bót, sérstaklega þegar þau eru óvænt. Ég er ekki að meina reka-hnéð-í-ofn tegund af tári, heldur ólgandi og sjóðbullandi tilfinningatár. Þó það sé lítið.
En ég grenjaði ekki yfir Ásu ömmu. Hefði fundist frábært ef það hefði gerst.
Þorsteinn J: ég skora á þig að láta mig grenja!
Skilaboð (7)
http://arni.hamstur.is/?nid=8897
Skrifað 22.08.05 17:19
Fjúff, amma hans Árna? En annars þá vissi ég að þetta er ekkert nýtt, en þetta var nýtt fyrir mig. Hafði hvorki heyrt minnst á vefinn eða myndina. Ég er líka svo ótrúlega 2003.
Skrifað 22.08.05 20:17
ég var bara að benda á að þetta væri amma hans árna..
Skrifað 22.08.05 22:21
Já, finnst það magnað. Þetta er skrýtnara en ég get ímyndað mér. Ég hélt nú líka að þú værir að skjóta á mig. Afterall þá er ég ekkert .is
Skrifað 22.08.05 23:41
ég veit aldrei um neitt svona á netinu sjálf hvort eð er..
Skrifað 23.08.05 14:14
Superb read, I just passed this onto a colleague who was doing a little research on that. And he actually bought me lunch because I found it for him smile So let me rephrase that: Thanks for lunch!
Skrifað 30.09.10 17:15
Do you have any more info on this?
Skrifað 30.09.10 17:36