Ég veit að ég hef sagt það áður, en stundum ræð ég ekki við mig, stundum er það bara satt:
Þetta er það skrýtnasta sem ég hef séð. Evör.
Ég er ekki alveg viss en ég reikna fastlega með því að næstu áratugina muni heilinn minn pikka í mig og segja "hey, manstu eftir þessu helvíti?"
Ef það er einhverntímann rétta mómentið til að segja "wtf" þá er það núna.
Skilaboð (3)
Ja ... hérna. Chris Cunningham hvað?
Skrifað 16.08.05 15:41
Jésús. Þetta ógnvænlega klipp-klopp mun sitja fast í myrkum bakstrætum huga míns um aldur og ævi. TAKK HALLI.
Skrifað 16.08.05 23:43
Sjit, tell mí abárit!
Ég hélt að það myndi aldrei hætta. Ekki nóg með að hún...hann...það...kom haltr-steppandi í átt að myndavélinni og horfði með þessum svörtu, líflausu augum beint inní sálina, heldur þurfti það að gerast tvisvar...og enginn var að flýta sér. Sálin mín er rispuð.
Er ég annars einn um það að finnast þetta kvikindi líkjast ákveðinni íslenskri söngkonu? Ég held að ég geti aldrei aftur litið hana sömu augum. Og ef ég sé hana með steppskó þá hleyp ég og lít aldrei tilbaka...
Skrifað 17.08.05 03:22