Fékk vægt milleniumsjokk í gærkvöldi þegar Sveinbjörn punktur Kom kannaðist ekkert við hugtakið vídjóblogg. Hann, sem gaf sig út fyrir að vera sonur internetsins, maðurinn sem er búinn að sjá alla internetbrandara áður en þeir verða til.
Í stuttu máli er vídjóblogg einmitt það, vídjóblogg. Það er auðvitað búið að fá hið frábæra (og frumlega) nafn vlogg, sem er alveg jafn glatað/frábært og blogg. Eða blog, sem mér finnst skrýtið. Þá er líka fínt að kalla þetta blók, einsog í blókurinn minn, einsog þegar Lukku Láki sagði "leimmér að klára kókinn minn".
Podcast er það þegar að einhver útí bæ tekur upp stuttan (eða langan) þátt með uppáhaldsmúsikinni eða blaðri um hundaböð, vistar það sem mp3-skjal og gefur heiminum að gjöf undir nafninu "Podcast". Fyrst var bara hægt að fá hljóð, en svo varð vídjóblogg vinsælt (eða a.m.k. framleitt af 3-4 manneskjum) og þetta varð mest móðins. Svo fór iTunes að bjóða uppá Podcast möguleikann og síðan þá hafa ótalmargir farið að hala niður mislélegum podköstum, en oftast fengið það eina útúr öllu veseninu að eyða megabætum í fáránleg leiðindi. Ef eitthvað er leiðinlegra en að hlusta á útvarp þá er það að þurfa að downloada því fyrst og hlusta svo á það í tölvunni. Og oj, hverjum dettur í hug að hlusta á það í iPod. Er það ekki einmitt andstætt því sem iPodinn stendur fyrir? Ef hann var búinn til svo maður gæti verið sinn eigin útvarpsstjóri (oj) eða dídjei eða mc eða dr. eða hvaðsemmaðurvill, afhverju vill maður þá saurga hann með útvarpsþvaðri? Þá væri betra að spara sér peninginn og kaupa sér miniútvarp í Saga bútík.
EN, ég horfi oft á og hef lengi lengi fylgst með Rocketboom, sem er New Yorkst vídjóblogg sem kemur í ca 5 mínútna skammti á hverjum virkum degi. Fyrir neðan hverja "færslu" eru linkar á allt það sem talað var um þann daginn. Fréttakonan (eða þúveist) heitir Amanda Congdon og er víst einhverskonar upprennandi leikkona, a.m.k. er hún með vefsíðu með fullt af bodyshots og portraits þar sem hún er alltaf með lokaðan munninn. En burtséð frá þeim undarlegu myndum þá blaðrar Rocketboom um heimsmálin séð með augum semi-nörda, þ.e. innámilli oft merkilegra frétta um allt frá geimpöddum til vasahnífa með regnhlíf, þá er talað um tónlist, tölvuleiki, konur, menn, börn, tilfinningar og skrýtið fólk. Mér finnst þetta ágætt og ekkert verra en að sörfa Barnaland, blogcentral eða Femin.is, sem ég geri hvortsemer aldrei.
Hér er hugmynd: opnið iTunes (útgáfu 4.9) og veljið Podcasts (fjólubláa takkann vinstra megin), veljið svo Podcast Directory þarna niðri og þá birtist hellingur af allskonar drasli. Farið bara í search og skrifið "rocketboom", þaðan er hægt að subskræba að vídjóblogginu. En hey, þetta er erlent niðurhal í hvert skipti (sem gerir helling á mánuði) þannig að gerið þetta bara ef þið viljið, megið og getið og ekki senda mér reikninginn eða hatursfullt augnaráð. Bara klapp á bakið og stöku vinaknús.
Það er hægt að skoða allskonar fyndin og merkileg vídeó á síðunni Apollopony.net, segið svo að Rocketboom geri ekkert fyrir ykkur.
(psst, það kostar líka erlent og allt það)
Blog, vlog og smog.
Skilaboð (1)
Greetings everyone, This webpage is terrific and so is how the matter was expanded. I like some of the comments as well although I would prefer we all maintain it on topic in order add value to the subject.
Skrifað 30.09.10 22:47