« Menntórop | Aðalsíða | Nú er ég hlessa! »

Eins og ekki eins

Britney Spears? The Boss? John Denver?

Nei elsku vin, þér hafið verið blekktir. Ef Clint væri sniðugur hefði hann hringt í þetta fyrirtæki og sent heila Hollywood vél af svona lookalikes til að lenda í Leifsstöð og djamma á Óliver, og sent bara alvöru krúið með fragt. Ég ábyrgist að 97% íslandsvina koma frá Celebrity Impersonators. Nennir einhver að toga í skeggið á Rob Schneider og athuga hvort hann sé alvöru?

p.s. ég efast um að John Denver lúkkalækið fái mikið að gera, þar sem frummyndin drapst í flugslysi '97. Þó veit maður aldrei, fréttir berast seint og illa á bóndabæi í Suðurríkjunum, sem og Breiðholtið.

Skilaboð (5)

Ég skal toga í skeggið á honum Rob (er hann með skegg?) Hvað á ég að toga í ef hann er ekki með skegg?

Láttu þér ekki bregða þótt birtist mynd af mér í DV á fimmtudag... hangandi á hökunni á Rob Schneider eins og hundur á roði. Fyrirsögnin: "Halli sagði mér að gera þetta."

Siggi Orri:

Þú gætir nú alveg komið fram á forsíðu DV, óvart talinn vera Rob Schneider he he :)

Hmm Gloría, hann verður líklega ekki með skegg, en það eru 92% líkur á að hann verði ber í þröngum nærbuxum, þannig að þú gætir t.d. togað í geirvörtur, olnboga eða táslur.

Og já já, ég skal taka fulla ábyrgð á hökuhanginu. Það er líka gott til að brjóta ísinn á milli ykkar.

Hehe, Siggi Orri, erum við svona líkir? Ég man nú ekki eftir einhverskonar crowdi eltandi okkur í New York. En reyndar sagði ein stelpa í skólanum þetta við mig...varað muna það núna...

Þó ég haldi að ég sé ekkert voðalega líkur honum, eru einhver fríðindi sem fylgja því að líkjast honum, fyrir utan að komast mögulega á forsíðu DV?

Easily, the publish is really the greatest on this laudable topic. I concur with your conclusions and will thirstily look forward to your future updates. Saying thanks will not just be sufficient, for the amazing lucidity in your writing. I will instantly grab your rss feed to stay privy of any updates. Solid work and much success in your business enterprise!

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 23. ágúst 2005, kl: 08:49.

Fyrri færslan er Menntórop.

Næsta færsla er Nú er ég hlessa!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31