« allt er sma bilad | Aðalsíða | The War on Terror í stuttu máli »

Disturbing

Jæja.

Nú er svo komið að börn um gervallan heim eru farin að leika eftir hin viðurstyggilegu afhöfðunarvídjó sem Al-Kaída og hyski þeirra búa til í massavís.

Mér þykir það hræðilegra en ég bjóst við. Á útlensku er orðið disturbing, en mig vantar íslenska orðið.

Þó ég skilji vel að þetta sé í eðli sínu alls ekki ólíkt því þegar 11 ára bleiknefjar hlaupa um með dótabúðarskammbyssur og kúrekahatta og plaffa niður rauðskinna og aðra minnihlutahópa, eða þegar M-16 vélbyssur með bandaríska fánanum eru gefnar í ammælisgjafir á Fáskrúðsfirði, þá er þetta samt einu skrefa lengra inní fáránleikann. Ef 11 ára krakkar væru að fjarlægja höfuðleður í frímínútum eða standa uppá stól með lak yfir sér og skóreimar dinglandi úr sitthvorri hendi (a la Guantanamo) þá myndi mér liða eins.

Jafnvel þó krakkarnir á þessu myndskeiði séu aðeins vopnaðir prikum og handklæðum er þetta engu að síður gríðarlega ógeðslegt.

Avi-útgáfa
wmv-útgáfa

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 16. ágúst 2005, kl: 21:04.

Fyrri færslan er allt er sma bilad.

Næsta færsla er The War on Terror í stuttu máli.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31