« Þorsteinn J og Halli C | Aðalsíða | Menntórop »

Aldrei, aldrei mun ég kafa

Úff púff.

Horfði á Open Water í annað sinn og fannst hún ekki hætishót þægilegri en í fyrsta skiptið. Ef eitthvað var fannst mér biðin eftir því sem ég man að gerðist gera óþægilegu mómentin enn óþægilegri.

Þessi viðburður (að ég sjái myndina í annað sinn) er næstum því stórmerkilegur því ég sá hana í fyrsta sinn þann 19. ágúst FYRIR HEILU ÁRI SÍ–AN!!! Trúiði þessu? Ég trúi því varla. Lol.:D:D:D:D

Fyrir þá sem hafa ekki enn séð myndina þá mæli ég enn og aftur með síðbuxum og engum vökva, engum fiskirétti í mallanum og engu fiskabúri nálægt sjónvarpinu. Og ekki vera í blautbúningi þegar þið komið ykkur fyrir í skraufþurri jarðneskri stofunni.

Fann svo hina stórkostlegu samsteypu Cyber Diver News Network sem er sko búin að kanna hina sönnu sögu á bakvið myndina og gefa hana út á internetinu.

Skilaboð (2)

Hvað segirðu - kemurðu ekki með í 10 daga köfunarleiðangur í karabíska hafinu 15 september? Halli, það eru ALLIR að fara ... ekki víst þó að þeir hinir sömu skili sér aftur heim..

Heh, NEIBB, ekki sjens.

Eða jú, ég kem með. Ég verð gaurinn í gula kafbátnum sem er fastur með bandi í þyrlu, sem er föst með bandi í flugmóðurskip, sem liggur við akkeri í höfninni.

Ekki að ég sé einhver kveif, ég er bara ekki tilbúinn til að deyja strax. Hvað þá láta hákarla tyggja á mér andlitið.

Skrifaðu skilaboð



Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 23. ágúst 2005, kl: 01:23.

Fyrri færslan er Þorsteinn J og Halli C.

Næsta færsla er Menntórop.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31