« ! | Aðalsíða | Bloggurinn minn ó minn með skeifu ó skeifu »

Teiknihestur

Er að teikna í tölvuleik með gaur sem kenndi mér í Parsons. Ég hanna eiginlega lúkkið á leiknum, teikna bakgrunna og gerði lógó og svoleiðis, en annar gaur gerir kallana sjálfa og sér um að hreyfa þá, enda kann ég svo lítið í hreyfi. Það er samt fínt að hafa hinn gaurinn að gera kallana því hann er pínu klár. Hann heitir Trevor Van Meter og gerði einusinni dáldið mjög skemmtilegt og fínt sem hét Fly Guy þar sem maður gat flögrað um allt og ljósritað og fengið sér tesopa. (skoða Fly Guy). Svo er hann með margt annað fínt á síðunni sinni.

Mér finnst oftast fínt að vinna að þessu verkefni, en það er pínu pirrandi hvernig gaurinn sem er aðal fer að því að kommenta á það sem ég geri. Í stað þess að lista allt sem hann vill breyta eða er sáttur við eða hæstánægður (að sjálfsögðu) þá segir hann alltaf smá í einu, í mesta lagi tvennt. T.d. "ég væri til í að sjá stólana öðruvísi". Fínt, ég laga stólana. Daginn eftir kemur "og borðin, það væri fínt að sjá þau breytast smá". Og ég breyti þeim. Svo "ég er ekki viss um að kaffiteríur séu með viðarpanela á veggjunum...". Garg.

Þrjár setningar á dag myndu spara öllum tíma og fækka skiptunum sem ég þarf að opna skjalið aftur og breyta einhverju smávægilegu aftur og aftur og aftur... En svona er víst lífið þegar maður er fullorðinn.

Hann er annars ánægður (að sjálfsögðu) og ég er frekar ánægður og Siggi Eggerts var pínu ánægður með dansgólfið og þar sem hann var að opna smá-nýja síðu og fékk 15 fan mail frá útlöndum þá er það vonandi gott. Hann svaraði m.a.s. sumum með lygi, og það er mjög gott. Ég nenni samt ekki að breyta hundrað þúsund billjón sinnum. Ekki nema hann segi "Halli...þetta er æði...þú ert æði..." í hvert skipti. Jafnvel oft í hverju ímeili. Og sendi mér konfekt.

En bla bla, það er fínt að vinna með honum því hann veit alveg hvað hann er að gera, og þetta gæti orðið eitthvað skemmtilegt og fínt þegar þetta er alveg tilbúið. Forritararnir unnu allir hjá Heavy.com þegar það var æðislegt fyrir nokkrum árum og þetta eru því engir aular.

Allt er yndislega frábærlega gott.

Margrét Anna hrýtur uppí rúmi núna. Hrýtur kannski ekki jafnmikið og ég og afi þegar við hrjótum í sitthvoru lagi, en hrýtur samt á sinn stelpulega og vart-greinanlega hátt. Ég lá við hliðina á henni áðan og horfði á Friends en þar sem ég titraði stundum úr hlátri svo rúmið hristist og hún vaknaði næstum því þá ákvað ég að fara fram og hristast í einrúmi. Hætti samt að hristast þegar ég stóð upp. Rúmið hennar er ekki gert fyrir hlunk einsog mig. Það er gert fyrir fermingarstelpur, og ég er engin fermingarstelpa. Annars er ástkonan að safna kröftum, ætlum nefnilega að heimsækja Dóru og Styrmi og Sölku og Sunnu og Lubba á eftir. Ætluðum í gærkvöldi, en komumst ekki afþví ég var með vöðvabólguhausverk (spáið í það!) og hún þurfti að mæta í vinnuna kl. 6 í morgun. Já, við skötuhjúin göngum í gegnum mikla erfiðleika.

En, snakk og súkkulaði og skemmtilegt fólk að öskra "HESTUR". Ég hlakka til.

Skilaboð (2)

Helvíti er þetta sneddí gaur, þessi van Meter. Þú ert það nú svo sem líka, en hann er samt sneddí!

Já, hann er sko sneddí gaur. (Og takk)

Ætlar þú að keppa við Njörð um forsetaembættið? Hvenær verður þú 35?

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 29. júlí 2005, kl: 15:51.

Fyrri færslan er !.

Næsta færsla er Bloggurinn minn ó minn með skeifu ó skeifu.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31