« Mundu prumpið! | Aðalsíða | Hæ Sunna Herborg! »

*svitn*

Núna er 30∞ hiti og ég er með loftkælinguna næstum því á fullu blasti. Er ekkert að reyna að verða lasinn eða upplifa Gúlag, en vil heldur ekki vera sveittipungur.

Á morgun er spáð að minnsta kosti 35∞ HITA!!!

Jesús kristur. Mig langar ekki í svoleiðis. Sem betur fer er bara 50% raki þannig að ég mun ekki bráðna í húðklump, en þetta verður nastí. Það er búið að vara gamalt fólk og smábörn við því að bráðna og ég reikna með að fólk hangi inní búðum og bíóum og frjósi úr kulda.

Ætla út núna og fá mér að borða. Ætla í stuttbuxum. Verð örugglega pínu sveittur, pottþétt á efri vörinni og á augnlokunum. Það eru nefnilega bestu staðirnir ef maður vill vera kúl. Klikkar aldrei að þurrka efri vörina þegar maður vill gefa gott impression.

Takk Einar ÷rn fyrir kommentalinkinn. Bjó til upppoppandi glugga sem er mikið skemmtilegri en hinn.

Er með undarlega mikla þörf fyrir lakkrís, m.a.s. þegar ég skrifa orðið lakkrís fæ ég vatn í munninn, dísus þetta er skrýtið. Kom út með stjörnurúllur (slef) og lakkrísDraum (slefislef) og ætla að háma í mig á eftir ef ég hef lyst. Slef. Það mun samt hækka blóðþrýstinginn, en það er þess virði að verða rauður í framan fyrir svona dásemd. Bandarískur lakkrís er ekki lakkrís heldur svart og rautt hlaup. Aular. Mér finnst samt gömlu sætu hjónin á hæðinni fyrir neðan mig mega tsjilla aðeins á rifrildunum. Þau gera líka alltaf eitt óskiljanlegt: opna fram á gang og annaðhvort þeirra stendur svo í dyragættinni og öskrar með sinni gömlu sætu röddu. Þau eiga svartan leðursófa, lítinn ísskáp og svona glansandi mynd af dreka.

Björn Þór sagði að honum fyndist asnalegt að það væri forsíðufrétt á DV að Mugison hefði endað á sömu blaðsíðu og Snoop í yfirliti fyrir Hróarskeldu, og spurði hvort það væri því heiður fyrir hann að fá að vera með bloggið sitt á sama Interneti og J-Lo. Ég er algjörlega sammála honum og finnst þessi misskilda upphefð alltaf svo óttalega kjánaleg. Ég las einmitt í einhverju íslensku blaðanna að Mugison hefði verið lofsunginn af Pitchforkmedia og það í leiðinni kallað biflía tónlistarunnanda eða eitthvað álíka. Platan hans fékk 7.1 og þó einkunnin 7 teljist á Íslandi vera stórkostlega frábær árangur í skóla þá er það C hér í Bandaríkjunum, og trúið mér, það er crap. Það vill enginn fá C, eða þrjár stjörnur einsog allar íslenskar bíómyndir eru áskrifendur að. Ég skil ekki að mynd sem fær þrjár stjörnur af fimm eigi að vera góð. Er það ekki akkúrat í miðjunni, og þannig bara 5 af 10? Anyways, Rotten Tomatoes er fín kvikmyndasíða því reviewin eru samantekt frá mörgum aðilum, bæði gagnrýnendum og svo bara venjulegum lúðum einsog mér og þér og Svenna.

Minnir mig á það að í gærkvöldi sat ég inní herbergi og sá eina af músunum standa í dyragættinni. Ég gargaði "MJÁÁÁ" og músin hljóp í burtu. Hún var krúttileg og allt það, en nagar samt allskonar hluti og borðar nammið mitt. Tók nefnilega eftir því þegar ég kom út að það var súkkulaði mulningur í einni hillunni minni og þegar ég lyfti plastpokanum þá var mjög krúttilegt gat og súkkulaðihjúpaðar lakkrískúlur í penni hrúgu. Það var búið að naga súkkulaðið utan af nokkrum þeirra á mjög krúttilegan hátt, og dreifa súkkulaði mjög svo krúttilega um alla hilluna og á hilluna fyrir neðan og ofan í einn skóinn minn og aðeins niðrá gólf. Ég náði bara í krúttilegan sóp og sópaði allt í krúttilega fægiskóflu og hendi öllu í krúttilega ruslið.

Svo henti ég namminu. Djöfuls mús.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 10. júlí 2005, kl: 20:23.

Fyrri færslan er Mundu prumpið!.

Næsta færsla er Hæ Sunna Herborg!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31