Bretar eru búnir að margsegja það stoltir að þeir ætli sko ekki að láta einhverja auma terrorista veikja í sér lífsgleðina. Að sjálfsögðu ekki. Upp spratt vefsíðan We Are Not Afraid þar sem íbúar heimsins geta sko sýnt þessum terroristum hver ræður! Bara uploada mynd af brosandi kettlingi, og þá eru öll þessi hryðjuverk unnin fyrir gíg!
Aðeins merkilegra er þó frásögn Breta sem var í einni af lestunum. Hans saga, Surviving a Terrorist Attack, er í tveimur hlutum: partur 1 og partur 2.
Mér finnst frábært hvað hann skrifar um ágang fjölmiðla og sína afstöðu, og finnst öllu persónulega að lesa svona heldur en að skoða forsíður dagblaða sem eru aðallega að keppast um að dramatísera atburðina með World Press Photo contenderum. Og einsog Elín "steinhjarta" Hirst gerði svo ótrúlega fagmannlega eftir nýfallin snjóflóðin fyrir vestan, þá finnst blaðamönnum CNN ekkert tiltökumál að bombardera spurningum á vitnin, ca 2 klst eftir að þau þora að opna augun eftir að hafa legið skjálfandi í hnipri. Það var lagið!
- - Til að sýna hversu kaldrifjaður ég er ætla ég að tala um eitthvað allt annað núna. - -
Sá sjónvarpsauglýsingu fyrir Smirnoff Raspberry Twist þar sem tveir rússalingar (eða eitthvað svoleiðis) gengu um snjóþungt þorp og töluðu um sjálfa sig og vodka og eitthvað. Í bakgrunni voru þorpsbúar í miðju festivali þar sem allir henda hindberjum* í hvorn annan.
Annar rússinn var Ómar Suarez, stærsti rappari á Íslandi. Hinn var (held ég) litli trommarinn úr einhverjum hljómsveitum sem ég man ekkert hvað heita, en hann var í einhverjum þætti á Skjá Einum. Kannski heitir hann Halli. Kannski heita allir trommarar Halli. Hann var alltaf með bindi.
Fannst fyndið að sjá Ómar í þessari auglýsingu. Litla íslenska hjartað mitt barðist ótt í brjósti mér í 20 sekúndur á eftir.
*vissi ekki hvað raspberry var á íslensku en var svo heppinn að rekast á Anglo-Russo-Scandinavian Food Glossary. Hvar hefuru verið allt mitt líf?!???!!?!
Skilaboð (2)
bíddu.. ég sagði þér fráessari matarsíðu fyrir löngu.. hlustaru ekkert á mig þegar ég tala???
Skrifað 12.07.05 08:34
ég las breskum kettlingi
Skrifað 12.07.05 13:36