
Twist of Faith er ný heimildarmynd um giftan fjölskylduföður sem ákveður að segja öllum frá því að hann var misnotaður sem barn af kaþólskum presti. Enskan útskýrir það betur: "A man confronts the trauma of past sexual abuse as a boy by a Catholic priest only to find his decision shatters his relationships with his family, community and faith."
HBO er með síðu um myndina, en treilerinn er hræðilega lélegur með Hollywood voice-over. Það er betra að skoða treilarana á Rotten Tomatoes.
Þessi mynd var frumsýnd hér í NY í gær og ég ætla að sjá hana.

RIZE er mynd eftir ljósmyndarann (og leikstjórann) David LaChappelle og fjallar um nýjasta dansæðið í South Central, LA, nefnilega:KRUMP. Ég vildi óska þess að þessir margbrotnu, krampakastandi og RENNIsveittu danshópar vissu að orðið krump er ekkert kúl á Íslandi (enda oftast tengt orðinu "pungur"), en þetta nýja KRUMP er helvíti mergjaðslega flott og gaman að sjá að Fitubollutrúðaklíkan í myndinni getur sko líka dansað like nobody's business! Krumparnir (einsog Strumparnir, bara krumpaðir) segja að þetta sé einsog þegar fólk fellur í trans í voodoo eða fær fatal krampakast (þeir sleppa bara froðunni og skella ekki með hnakkann í gólfið). Þetta virkar skrýtið fyrst, en svo verður þetta kúl. Hey, muniði eftir The Hammer Dance? Hann var skrýtinn fyrst, svo varð hann sko KÚL!
Hér eru fleiri ljósmyndir úr Rize og treilerar.
Þessi mynd var frumsýnd hér í NY um daginn og ég ætla að sjá hana...með mangó minni á Íslandi (ég var búnað lofa!).
Ég varað muna að þegar ég horfði á Life Aquatic with Steve Zizzou fyrir löngu síðan fattaði ég að brasílíski gaurinn sem söng öll David Bowie lögin er sjálfur Knockout Ned úr City of God. Talk about skillz. Það er ekki nóg með að Seu Jorge leiki í þessum myndum og hafi sungið sándtrakkið með Life Aquatic, heldur er hann algjör múltímegamaximillion í Brasilíu og búinn að gefa út geisladiska og DVD og leika í myndum og bla bla bla. Hann er með stjarnfræðilega slow flash-síðu, en ekki trúa forsíðunni þegar hún spyr þig hvort þú viljir ensku eða portúgölsku, veldu portúgölsku og breyttu svo þegar þú ert loksins, looooksins komin(n)nn(N) í gegn. Það væri líka sniðugt að grípa tóma vínflösku og eldspýtnahrúgu og byggja svosem eitt stykki Knörr-í-flösku (eða Cutty Sark ef þú fílar svoleiðis) til að drepa tímann (sem, trúðu mér, hægist á all svakalega...þú munt heyra grasið vaxa...).
Aðrar góðar myndir eru Enron: The Smartest Guys in the Room, Gunners Palace, Rock School, Millions, Layer Cake, og svo sniiiiilldarmyndin Kung Fu Hustle. Ef þú ert ekki búin(NINININ) að sjá hana, þá ertu fífl. Kung Fu Hustle, Kung Fu Hustle, Kung Fu Hustle og Kung Fu Hustle.
Æjá, svo var ég að fá bréf frá Sundance kvikmyndahátíðinni. Þeir vilja víst sýna NY dansimyndina mína á næstu Sundance-hátíð. Djók.
Skilaboð (8)
Krump er svoooooo 2003. Ég var alltaf að fikta við þetta í Árbænum fyrir utan Skalla. Hringur getur alveg vottað fyrir þetta.
Skrifað 03.07.05 09:45
...við ætlum að sjá hana saman árst :)
Skrifað 03.07.05 11:43
Hell yea :-)
Skrifað 03.07.05 14:02
Njörður: a-ha, þannig að þú og Hringur voruð semsagt að hanga með öllum litlu krökkunum fyrir utan Skalla, næstum því orðnir þrítugir?
Vá, þið eruð ýkt kúl.
mangó sín: fó sjó!
Skrifað 03.07.05 14:10
Ekki vera abbó Halli minn, ég og Hringur höfum bara KRUMP-ið í sálini
Skrifað 03.07.05 18:06
Einsog er sagt á mangóhallasinn máli að þá erst þú að misskilja og snústa útúr ;-)
Skrifað 03.07.05 18:39
ég er búinn að sjá kung fu hustle.
þurfti bara að tjá mig
Skrifað 04.07.05 04:41
Hringur, þú ert alveg að misskilja. Haha!
Skrifað 06.07.05 20:53