Hey, og ég er alveg glaður. Finnst ekkert verra að vera á Íslandi en í útlöndum. Það er bara margt sem er að bögga mig og ég verð að tala um svo ég fái ekki útbrot og skallabletti.
Ég sá t.d. randaflugu í gær. Hún var feit og fín og flaug innum gluggann hjá mangó minni, sem spratt á fætur og var búin að læsa sig inná baði áður en ég blikkaði augunum og sagði n-e-i-v-á-r-a-n-d-a-f-l-u-g-a. Ég tók heilsukodda og mjakaði honum í átt að flugunni þar sem hún brallaði eitthvað flugubrall á veggnum, og heilsuátakið virkaði svo vel að hún hlunkaðist út og sagði Bonsjúr.
Flugan minntist ekkert á gott veður, Palestínu, fellihýsi, ísbíltúra eða ritgerðir. Ég minntist þess þegar ég ákvað að verða aldrei aftur valdur að dauða randaflugu. Ég lofaði hinsvegar engu sambærilegu fyrir geitunga, enda eru þeir húsflugur Kölska.
Bráðum kemur verslunarmannahelgi, sem mér finnst oftast gott að vera laus við. Ekki að mér finnist leiðinlegt að gera það sem ég geri um verslunarmannahelgar, heldur finnst mér svo mikill þrýstingur á öllum og frá öllum um að nú verði að gera eitthvað kreísí, meira kreísí en nokkru sinni fyrr. Mér finnst gaman að grilla og sólbakast og tala við skemmtilegt fólk og vera í stuttbuxum og borða ís og fá kannski koss á kinnina. Og spila fótbolta og grípa frisbí. Og fara í litlar fyndnar sjoppur útá landi sem hafa engan húmor fyrir því að vera spurð um Spur.
Mér fannst gaman á Eldborg '92, Uxa '95 og svo hin skiptin líka, þó ég muni ekki alveg hvað ég gerði. Ekki afþví að ég var fullur (verð aldrei svoleiðis) heldur afþví að ég bara man það ekki. Jú, Halló Akureyri í fyrsta skiptið, þegar allir úllingarnir urðu snar og tjald ömmu hans Ómars var það eina sem lifði af á tjaldstæðinu. Við hinir gistum samt á Svalbarðseyri og fórum í sund, þökk sé VIP tengslum Hrings við svæðið. Og sátum við Akureyrarkirkju með allskonar sólgleraugu. Og vöknuðum kl. 18.30 á mánudeginum og föttuðum að klukkan var ekki sex um morgun, og að við áttum eftir að taka til og fá okkur að borða OG keyra í bæinn. Það var pínu minna gaman, en samt gaman. Og hárið á Sibba var ýkt fínt og vel greitt. Og ég man þegar við fórum í Heiðmörk og enduðum á Við fjöruborðið að borða humar, það var gaman þó að einhver hafi fengið smá niðurgang. Það drepur engan. Jú, það drepur suma, en ekki í þetta skiptið.
Nú heyri ég í sláttuvél og finn graslykt og sé bláan himinn og finnst ýkt fínt. Mmmm sumar og gott-veður-á-Íslandi-þó-svo-ég-sé-í-tölvunni.
Skilaboð (6)
skemmtu ther vel a islandi halli
Skrifað 26.07.05 18:35
Randaflugur eru nefnilega svo sætar. Kommon, á ensku er það Bömbelbí! tíhí!
Skrifað 26.07.05 23:07
ertað reynað sannfæra lesendur eða sjálfan þig um að þú sért glaður
;)
Skrifað 27.07.05 08:52
Randaflugur eru sætar. Vildi að þær væru stærri svo maður gæti klappað þeim
Ég held að ég hafi verið bæði að sannfæra sjálfan mig OG lesendur. Það sagði nefnilega ein stelpa að ég væri svo neikvæður og mikill röflari þegar ég væri á Íslandi. Sem er kannski satt.
Skrifað 27.07.05 14:26
það er líka gott að búa í útlöndum, afslappaðara andrúmsloft og maður verður glaður og hamingjusamur:)
Skrifað 27.07.05 14:56
Randaflugur eru rosa fínar
Það er meira að segja hægt að binda í þær spotta og fara með þær í göngutúr :)
Skrifað 27.07.05 18:22