Fyrstu tónleikarnir sem fór á voru með A-Ha þegar þeir spiluðu í Laugardalshöllinni 1985. Nenni frændi minn fór með mig og ég man að ég sat uppi og hélt í handriðið og gapti. Stjörnublik og blásið hár.
Elsku Morten Harket og hinir, Pal Waaktaar og Magne Furuholmen eða eitthvað. Leimmér að gúgla...HAH, þetta var rétt.
Hvað sá ég áðan á Ticketmaster? HAH! A-HAH! Þeir eru að spila í New York 12. september. Og...það er uppselt. Ég fékk næstum því tár. Ég fór beint á eBay og þar er verið að selja miða uppí $500, skil ekki þessa grimmd. Í ár eru einmitt 20 ár síðan ég fór á tónleika með þeim, OG 20 ár síðan þeir spiluðu síðast í Bandaríkjunum.
Ég ætti eiginlega að senda þeim ímeil og útskýra málið af einlægni. Segja þeim að ég sé hálf-frændi þeirra (Íslendingur) og hafi aldrei fundist Norsarar vera leiðinlegir, heldur bara kúl og mjög fyndnir. Segja þeim að það sé ótrúlega sjaldgæft að frændur eigi 20 ára afmæli á sama tíma, og að ég hafi talað um þessa tónleika við alla sem ég þekki. Segja þeim að ég hafi losað heftin úr Pop Rocky og Bravo blöðunum ótrúlega varlega með óbeittum eldhúshnífi og hengt plakötin upp með ósmitandi kennaratyggjói þar sem þau fengu að anda mikið og voru prýði heimilisins. Segja þeim að myndbandið við Take On Me hafi hvatt mig til að læra að teikna og myndskreyta og animeita og síðarmeir að dansa. Segja þeima að ég hafi meiraðsegja fengið Brons í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar. Segja þeim að ég hlusti oft á tónlistina þeirra og finnist ekkert púkó þó þeir hafi allir farið á sóló en komið svo aftur því hitt gekk ekkert.
Og segja Morten að mér hafi alltaf fundist hann vera langsætastur, og ekki bara afþví að hann er söngvarinn.
Ég er að bjóða í miða á eBay, en hámarksboðið mitt er bara 70 dollarar. Það er bara 5000 kall sem er lítið verð til að bjarga litlu ólgandi hjarta í háborginni.
Ó tilfinningaspil. Hvert leiðir þú mig?
Skilaboð (1)
prufaðu að senda á þá.. það gæti alveg virkað..
ég þekki ástvald heiðarsson..
Skrifað 17.07.05 14:30