Já, New York myndir frá mér. Sumar nýjar, sumar gamlar, sumar í sumar.
- - -
Og já, sem er ekki minna mikilvægt: ég er búinn að ákveða að rembast við að troða mér inní leikfangaheiminn. Ekki á absúrd og geðveilulegan hátt, heldur framleiðslumegin, þannig að ég geti farið að skreyta og hanna allskonar dót. Ætla kannski að reyna að byrja í Urban Vinyl heiminum (t.d. Qee) og feta mig rólega áfram, en einn daginn vil ég vera með dót eftir mig. EFTIR MIG. Sjáum hvað setur. En ég er búinn að ákveða mig.
Skilaboð (5)
ROCK ON. Treysti á að þú getir gert betur en Chucky dúkkur, Barney, Transformers, My Little Pony, He Man, Barbie, Starwars, Lego, Playmo...
Sky is the limit!
Skrifað 15.07.05 04:28
He who dies with the most toys still dies.
En grínlaust, þá líst mér vel á þig halli. Treysti því að þú getir gert betur en My little Pony, He Man, Transformers, Lego, Playmo, Starwars, Barney, Teletubbies, Dublo, Bubbi Byggir og hvaðeina.
Skrifað 15.07.05 04:30
en flottar myndir og rosalega spennó ákvörðun! hlakka til að sjá eitthvað eftir þig
Skrifað 15.07.05 04:54
til hamingju árst, líst vel á það!
Skrifað 15.07.05 05:06
Takk. Já, þetta tekur kannski tíma, við verðum kannski öll saman í matsalnum á Grund þegar ég fé bréfdúfu í fangið um að litlu tálguðu tréskipin mín hafi selst í Kolaportinu. Þá verður partý og engar sveskjur!!!
Skrifað 15.07.05 13:45