Já já já, greyið stelpan að vera handtekin og yfirheyrð í 30 klukkustundir og vera hótað og bla bla bla.
Íslendingar eru örugglega heimskasta þjóð í heimi.
Nei, afsakið.
Íslendingar eru örugglega heimskasta þjóð í heimi miðað við höfðatölu.
Stundum er þessi kjánahrollur sem hellist yfir mig svo mikill að mig svimar. Ég veit ekki hvað þarf til að Íslendingar fatti að það sem þeir sjá í sjónvarpinu er alvöru, og að þeir glæpir sem gerast nú þegar á Íslandi eru alvöru, og sú staðreynd að menntakerfið sé jafn ömurlegt og raun ber vitni sé alvöru vandamál.
Án þess að fara mikið út í að gagnrýna störf Ísland-Palestínu hópsins (mér finnst hugsjónin fín (að hjálpa þar sem þörf er á) en ansi margt um Palestínu sem land ritskoðað, t.d. hommaofsóknir og annað slíkt)þá eru meðlimir þessa hóps algjörlega jafn clueless og í þörf fyrir reality check einsog allir aðrir sem pæla aldrei jafn djúpt í heimsmálunum.
Já það er rosalega göfugt að vera með arabaklút um hálsinn og í grænbrúnum Vinnubúðarjakka, með sjálfklippt hár og hálf þreyttum skóm. Gott að sýna lit. Það er rosalega göfugt að fara út með arabaklútinn sinn niðrá tjörn og brenna fána til að hjálpa Íslendingum að sjá málsstað Palestínubúa. Enda eru Íslendingar rétta fólkið til að hrista upp af rassgatinu. Þeir kunna hvorki að merkja gatnaframkvæmdir svo landar þeirra villist ekki á leið í vinnuna, né að líta í kringum sig og sjá stóru myndina: að það eru fleiri lömb til í heiminum og að lækir, jöklar og hraun eru ekki séríslenskt fyrirbæri.
Oftast finnst fólki þetta krúttlegt (sérstaklega Íslendingum þó), enda er þetta oftast bara eitthvað þjóðarstoltsraus sem skaðar engan. En það er ansi ólíkt að vera fullur á norskum bar að öskra að íslenski bjórinn sé bestur í heimi, eða ákveða að gera sitt í ströggli heimsins.
Fáránlegast af öllu er að íslenskir fjölmiðlar séu svo einfaldir að birta þessa yfirheyrslufrétt án þess að svo lítið sem hugsa málið í 10 sekúndur og sjá að þetta er á sama tíma mjög eðlilegur atburður útí hinum stóra heimi og fullkomlega ómerkilegur, og að í rauninni hafi ekkert fréttnæmt gerst. Afþví að þessi stelpa er íslensk þá fer heil blaðsíða um þann hrylling sem hún gekk í gegnum, en ekki einu orði minnst á alla þá sem dóu á sama tíma.
-- Fyrir ykkur sem eru móðguð fyrir hönd Íslands-Palestínu og friðarsinna um gjörvalla veröld vil ég taka fram að ég er ekki að réttlæta neina af þessum atburðum, langt í frá. Ég er bara að segja að þessir atburðir eru staðreynd --sorgleg staðreynd-- sem Íslendingar, rétt einsog aðrir, verða að skoða útfrá skynsamlegu sjónarmiði og átta sig á að fólk á þessum stöðum er lifandi skotmark, SAMA HVER ÞÚ ERT. --
Þessi stelpa fer út til Palestínu, á stað sem er ekki þekktur fyrir annað en margra ára skæruhernað, grjótköst og dauða "saklausra" borgara af völdum hersins, í þeim tilgangi að hjálpa málsstaðnum sem hún trúir svo heitt á. Henni finnst þetta bara sport --þó svo hún sjái það ekki sjálf-- enda fá allir Íslendingarnir sem fara þarna út sína umfjöllun í blöðunum og geta sagt "þetta var hræðilegt" og lýst því yfir að baráttunni sé sko ekki lokið.
Á meðan fjöldi manns deyr á hverjum einasta degi, þá rembast íslenskir friðarsinnar út, og gera mál útúr því að vera yfirheyrðir? Að vera yfirheyrðir! Þessi stelpa dirfðist meiraðsegja að finnast það hræðilegt að þeir hafi hlegið að henni þegar hún bað um að fá að tala við íslenskan ræðismann og fjölskylduna. Hún var yfirheyrð, henni hótað, og það kemur í blöðunum hér heima einsog FRÉTT, einsog nú loksins hafi íslenskir fjölmiðlar og ein lítil saklaus stúlka varpað ljósi á mikið leyndarmál.
Ætti hún ekki, allra manna best, að vita akkúrat hvernig staðan er útí hinum stóra heimi? Eða var hún fyrst þarna að átta sig á að grandalausir eyjarskeggjar ættu kannski að halda sig heima, þar sem þeir skilja hvernig lífið gengur fyrir sig?
Hún ætlar að sjálfsögðu ekki heim til Íslands strax, heldur vera í Bretlandi og athuga rétt sinn??? Ég sver það, ég veit ekki hvað ég á að segja. Hún er ekki fyrr komin frá landinu sem hún ætlar að bjarga, að hún er búin að steingleyma öllu og ætlar sko að skrifa þeim bréf og segja að þetta megi ekki.
Ef fólkið sem skýtur plasthúðuðum járnkúlum í andlitið á 12 ára krökkum hefur tíma til að lesa bréfið hennar, þá reynir það örugglega að svara henni kurteisislega.
Ímyndið ykkur hortugheitin að Íslendingar haldi að þeir geti auðveldlega keypt sér flugmiða, klætt sig í réttu fötin og farið út í heim að berjast fyrir því sem rétt er, og ef þeir lenda í vandræðum þá segja þeir bara "nei, þú skilur ekki, ég er Íslendingur".
Þú ert Íslendingur að blanda þér í mál sem kosta líf tuga manna á hverjum degi. Strætóar eru sprengdir í loft upp, túristar skotnir í hnakkann, og konur pyntaðar og þeim nauðgað. Það skiptir engu máli hvort þú flytjir til Spánar að hjálpa Böskum, kaupir þér vélbyssu og felubúning og fljúgir til Írak að berjast á móti íröskum skæruliðum, eða flytjir til Amsterdam og slæst í för með hústökufólki.
Í þessum löndum er ekki hægt að skrifa bréf í Moggann og kvarta ef löggann dregur þig á hárinu niður 4. hæðir og hendir þér inní gám. Eða ef strætóinn sem þú ætlaðir að taka (á leiðinni í mótmælin) kom ekki því hann var sprengdur. Eða segja "ég er Íslendingur" þegar byssu er miðað við ennið á þér.
Það er kannski réttast að það verði bara hleypt af, svo Íslendingar skilji að þetta er alvörumál, og við höfum verið svo fáránlega heppin hingað til að það er engu lagi líkt.
Þessi stelpa ætti frekar að vera þakklát og kreista út tár og segja fólki að hún prísi sig sæla fyrir að vera á lífi og komin aftur heim í faðm fjölskyldunnar, og skilji núna hvað þetta fólk gangi í gegnum. Að það sé ekki hægt að halda að maður geti bara farið út og breytt hlutunum með því að smella fingrum og segjast koma frá Íslandi. Að hún sé fegin því að sjá þetta og átti sig á því að ef hún vill halda þessu áfram þá gæti hún borgað fyrir það með lífi sínu...og enginn taki eftir því.
Skilaboð (8)
Mikið svakalega er ég sammála þér Halli. Að vera gera mál úr því þó þessi stelpa hafi verið yfirheyrð. Það á ekki að gera hvorki henni né hennar málstað það til geðs að birta þetta í fréttum. Hún hefur verið að ota sínu tota í fréttum við hvert tækifæri sem henni gefst. Reynir að vera voða róttæk, slettandi grænu skyri og nú að láta yfirheyra sig. Mér finnst þetta lykta eins og þetta sé allt ein stór auglýsingarbrella af hennar hálfu. Ætli hún hlekki sig ekki við skurðgröfu upp á Kárahnjúkum næst og stökkvi svo beint á næsta fréttamann á eftir?
Skrifað 22.07.05 11:40
Ok Halli minn. Í fyrsta lagi þá erum við Auður báðar í félaginu Ísland- Palestína og í stjórn félagsins (eða ég þar til nýlega) og ekki göngum við um með brennandi fána og svarthvíta klúta um hausinn eða í grænum vinnubúðarjökkum. Eins þykjumst við alls ekki vera voða gjöfug eða skilja hvernig það er að ganga í gegnum þetta á hverjum degi, að vera niðurlægður stanslaust, að hafa enga réttarstöðu, geta ekki menntað sig eða sinnt því sem þú hefur áhuga á, sjá þá sem þér eru nákomnir sjaldan eða jafnvel aldrei, vera undir stanslausu eftirliti eða þeim mun verra að enginn vilji vita af þér. En það er ekki af því að við höfum það svo gott hér eða þekkjum þetta ekki að við eigum þess vegna að líta fram hjá því og gera ekki neitt. Halda bara áfram að horfa á OC og drekka kók.
Mér finnst Arna mjög dugleg að berjast fyrir málstað sem hún trúir á. Hún hefur dvalið langdvölum í Palestínu áður og hún veit við hverju er að búast. Hún lætur það hins vegar ekki stoppa sig í því að reyna að liðsinna eftir fremstu þörfum. Það vill svo til að hún trúir á að hún geti hjálpað til þó hún sé "Íslendingur" og ef þú ert að ýja að því að hún geri þetta fyrir fjölmiðlaumfjöllunina þá ættirðu að huxa þig aðeins betur um.
ég er ekkert sérlega móðguð fyrir hönd Íslands-Palestínu.. en mér finnst að það sé kannski óþarfi að segja að hún Arna sé hortug og fjölmiðlasjúk og að hún þykist ætla að bjarga heiminum en hafi bara verið svo vitlaus að halda að hún gæti það af því hún er Íslendingur.
Annað mál er líka eðli frétta. Fréttir eru ekki endilega um e-ð glænýtt sem engin þekkir eða um að ljóstra upp "leyndarmálum" eins og það að fólk sé aktúallí yfirheyrt og beitt hörku við Landamæri Ísrael. Það vill svo til að það sem ratar í íslenska fjölmiðla er oft tengt Íslendingum og því sem þeir eru að gera. Og þar er ég sammála þér að það ættu að vera meira af erlendum fréttum sem eru alls ótengd Íslandi. Hins vegar er þetta alltaf spurning um eftirspurn, forgangsröðun og tíma.
Ég veit nú ekki hvað þú hefðir sagt ef frést hefði annars staðar að ÷rnu hefði verið haldið í 30 klukkutíma en enginn íslenskur fjölmiðill hefði fjallað um það mál (þó að þetta sé kannski daglegt brauð - en þar kemur sérstaða Íslands líka inn þar sem þjóðin er lítil og flest allir þekkjast). Það er líka ágætt að vissu leyti að þetta hafi komið upp - svo að fólk ALMENNT áttí sig á því að ÍSlendingar eru bara alls ekkert spes í útlöndum heldur eins og allir hinir. Þar er ég líka sammála þér. ég held hins vegar að hvorki þú né ég geti ímyndað sér hvernig er að vera yfirheyrður af elendri herlögreglu eða aðilum sem eru þekktir fyrir ofbeldi gagnvart saklausum (EKKI INNAN GÆSALAPPA) borgurum. Við hefðum eflaust bæði pissað í buxurnar.
Að lokum - Arna ætlaði að starfa sem sjálfboðaliði í æskulýðsbúðum fyrir börn og fara á ráðstefnu tengda baráttu Palestínumanna svo að hún er enginn glæpamaður eða hefur gert neitt rangt. Það má alveg benda ísraelskum yfirvöldum á það og krefjast útskýringa af hverju henni var haldið, hún yfirheyrð og rekin úr landi- bara af því hún var með skollitað hár?. Hún hefur kannski ekki mikið um það að segja hvernig öryggismálum er háttað í Ísrael en það er spurning hvort það sé samkvæmt alþjóðasáttmálum að halda fólki í 30 klst án þess að gefa þeim ástæðu fyrir því hvers vegna því er haldið, ekki leyfa þeim að hafa talsmann viðstaddan eða fá vott né þurrt í marga klukkutíma - þó að mörg önnur og mikið mikilvægari mannréttindabrot séu framin á þessu svæði daglega - sem einnig þarf að mótmæla.
Skrifað 22.07.05 16:35
Egill: ég veit.
Sara: ég veit vel að bæði þú og Auður eruð í félaginu, og þekki fleiri félaga ykkar.
Þegar ég notaði orðið "göfugt" þá var ég ekki að meina það í kaldhæðni, enda finnst mér það mjög verðugt málefni að berjast fyrir rétti fólks í heiminum. Að mínu mati ER það göfugt að fara út til annars lands og setja þig inní málefni borgara þar og reyna hvað þú getur að hjálpa, og myndi hvorki gera lítið úr því né heldur fæla fólk frá hverri svosem hjálparstarfsemi sem það er tilbúið að vinna.
Og ég sagði það aldrei.
Þeir sem sitja heima horfandi á OC, drekkandi kók og láta sig málefni heimsins ENGU varða ættu að fá sömu köldu reality check sturtu. Það að koma sér af stað og hjálpa er hinsvegar --og því er nú verr-- oft meira og erfiðara verkefni en flestir íbúar heimsins eru tilbúnir á leggja á sig í verki, en geta auðveldlega talað um það.
Aftur, ég er að sjálfsögðu fylgjandi öllum tegundum hjálparstarfs og baráttu sem virkar.
Ég sagði ekki að Arna væri að gera þetta eingöngu fyrir fjölmiðlaumfjöllun, og vona að það sé ekki málið þó svo að ég þekki hana ekki neitt. Ég var heldur ekki að gera lítið úr hennar reynslu. Ég sleppti því bara að tala um hennar sögu hér því það er nógu mikið búið að tala um hana í öllum mögulegum fjölmiðlum. Mér finnst hinsvegar einsog það sé regla að íslenskir fjölmiðlar (og íbúar landsins) finnist nógu merkilegt að það sé Íslendingur einhvernveginn tengdur málinu, hvort sem það sé Íslendingur búsettur í London um 15km frá lestarstöð, og þá getur hann tjáð sig um þann harmleik sem hann gekk í gegnum. Afstaðan og sjónarhornið er alltaf íslenskt; hvað Íslendingarnir upplifðu og hvernig þeim líður. Við erum sammála um þetta.
Það má auðvitað fjalla um þetta mál, enda er þetta frétt sem slík. Og hvað fjölmiðlar segja um málið er ekki á hennar ábyrgð (t.d. að Fréttblaðið gefi henni hrós dagsins fyrir að lenda í yfirheyrslu???). Hinsvegar er það sem hún segir sjálf, og það sem hún gerir, hennar ábyrgð. Að hún ætli að vera í Bretlandi að leita réttar síns finnst mér næstum því fyndið. Að Íslendingur sem lendir í yfirheyrslu vilji næstum því gera meira mál útúr því að hafa lent í yfirheyrslu en að halda áfram að vinna í baráttumálunum. Það er gott að utanríkisráðuneytið hafi tjáð sig um málið, því sama hversu mikið Arna veit um gang mála á þessum svæðum, þá er hún samt á sínum eigum vegum, því miður.
Og Sara, auðvitað sagði ég aldrei að þetta væri réttlætanlegt. Ég sleppti því algjörlega að minnast á það því mér finnst það svo ótrúlega sjálfgefið. Það sem er að gerast þarna, sem og annars staðar, er auðvitað fáránlegur viðbjóður. Þannig tengist það því sem ég sagði um göfuga baráttuna.
Það er hinsvegar hvernig fólk berst og kýs að hjálpa sem ég fór að hugsa um í kjölfarið á þessu máli. Arna, einmitt sem vel upplýstur einstaklingur, átti að nýta tækifærið sem henni gafst og árétta viðbjóðinn sem heldur áfram í Palestínu, í stað þess að segja að nú ætli hún að kvarta útaf sér. Píslarvotturinn klúðraði því.
Skrifað 22.07.05 19:26
Og já, þegar ég notaði gæsalappir fyrir "saklaus", þá átti ég við það að þó svo hlutirnir séu hræðilegir, þá er það samt og þrátt fyrir allt þannig að þeir sem grýta þig úti á götu --sama hver ástæðan er-- eru að stíga yfir einhverja línu og það er ekki skrýtið að þú hefnir þín/refsir þeim fyrir það. Jafnvel þó þú sért ísraelskur hermaður og sá sem grýtir þig sé 13 ára ábúi á landi sem þín ríkisstjórn er að taka af honum með hervaldi.
Og á sama hátt er það ekki skrýtið að í Írak séu fleiri þúsund uppreisnarmanna að reyna að drepa sem flesta sem vilja stjórna landinu á annan hátt en þeir kjósa helst sjálfir.
Svona er þetta bara, sama hversu fáránlegt það er. Allir hafa sína skoðun og ganga langt til að berjast fyrir henni. Þess vegna er gott að fólk sé tilbúið að bjóða fram hjálp sína, en enn og aftur, það fylgir því kostnaður. Stundum dauði. Það er eitthvað sem allir verða að átta sig á.
Sara, ég veit vel að þú skilur þetta og veist meira um smáatriðin en flestir sem lesa íslensku. Þú og Auður eruð báðar mjög hi-couture og brennið hvorki arabaklúta né brjóstahaldara. Sem betur fer. Staðreyndin er samt sú að allir hinir Íslendingarnir sjá bara arabaklúta og vinnubúðarjakka í dagblöðunum.
One love,
Halli.
Skrifað 22.07.05 21:09
Jesus hvað þettta er leiðinleg umræða.
Mér finnst að þeir sem skrá sig í þennann saumklúbb Ísland -Palestína ættu allir að skreppa út og leggja sitt af mörkum. Því hangandi heima eruð þið ekki að gera rassgat.
Skrifað 23.07.05 05:34
Sigurður Ragnarsson kallar slíka þraungsýni og innhverfu "Þjóðernisgorgeir"
Skemmtileg síða!
Skrifað 23.07.05 17:27
Ég tel að manneskja sem notar ofbeldi til að koma fram skoðunum sínum í fjölmiðla teljist hryðjuverkamaður. Ekki endilega illmenni eða satan, en sannarlega terroristi. Fréttin snýst kannski meira um að mannréttindi grunaðra hryðjuverkamanna eru fótum troðin við miðjarðarhaf sem og atlantshaf, Íslendingur eða ekki.
Skrifað 26.07.05 02:28
Góður punktur.
Skrifað 26.07.05 15:43