« London í gegnum Afríku | Aðalsíða | New York myndir »

Hver?

Ókei ókei, ég veit að ég hef verið frekar lélegur að fylgjast með ferli hljómsveitarinnar 98 Degrees (með Nick Lachey, ex-Jessicu Simpson) og kann ótrúlega fáa texta með þeim.

En áðan þegar ég varað lesa um plötu William Hung (já, hann er kominn með nýja plötu) sá ég að í kreditunum stóð "Birgisson, A".

Birgisson, A?

Ég gúglaði þetta og sá að gaurinn heitir Arntor Birgisson og hefur líka samið fyrir Ricky Martin og fleiri froðuhausa. Ég leyfi mér að efast um að hann sé Norðmaður og skýt því á að hann heiti Arnþór Birgisson og sé Íslendingur. Ég las að hann væri partur af sænsku krúi...ég veit að ég er mögulega að blása þetta smámál upp, en vita allir um þennan gaur? Missti ég algjörlega af þessu í Séðogheyrt?

Hér er meira infó um þennan gaur. Hjálpi mér drottinn, ég er í sjokki.

Hlekkir:
- Hrikalega grimm webcam nekt (fyndin!)
- Origins of Band Names
- Eating Disorder Expert Collapses at Market (hah!)
- Kimberly Nerbak's Jokes About Stupid Burnet Bitch's!
- Officer Probed In Killing Of Deer
- Feed Lindsay Lohan

Skilaboð (6)

Bryndís:

jájá, man eftir viðtölum við þennan gaur eftir að hann samdi e-n hittara fyrir J-Lo

hann er búinn að vera að semja svona poppfroðu í einhver ár fyrir allt þetta lið

Já, sko mig rámaði pínu í eitthvað svona, en það eru svo margar hetjufréttir af misfrægum íslendingum að þetta fór allt í köku.

Og hva, erann ýkt massaður með svitaband?

ég man eftir honum, hann er svona hunk týpa.. dökkhærður og brúnn minnir mig..

HAH! Hunk týpa.

Bryndís:

mig minnir endilega að þetta hafi bara verið rosalega normal gæji sem býr í svíþjóð og býr til tónlist á tölvuna sína..

Heppinn með tölvu!

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 14. júlí 2005, kl: 03:46.

Fyrri færslan er London í gegnum Afríku.

Næsta færsla er New York myndir.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31