« Teiknihestur | Aðalsíða | Celtic Ross »

Bloggurinn minn ó minn með skeifu ó skeifu

Hér er mynd:

Þetta ætti að vera aðalnúmerið á öllum útihátíðum enda nóg til af ónotuðum hestaskóm á landinu. Skeifukast. Oh vá, hér er bissnisshugmynd: það væri hægt að fá allar verslanir í Skeifunni til að keppa við Kringluna og þeirra Kringlukast (oj) og gera nýtt og glæsilegt SKEIFUKAST. Allir fá afslátt í Skeifunni og geta farið á bílastæðið hjá Hagkaup og fleygt skeifum til vinnings! Draumur hverrar fjölskyldu og kaupmanns! Halelúja!

---

Eitt af því sem mér finnst svo gaman við að lesa bloggið um Sunnu Herborgu, er að Dóra og Styrmir skrifa það sem þau hugsa, með sinni röddu. Nema barnið sé undrabarn sem kann fingrasetningu (og kunni passwordið á blogspot-síðuna) þá eru ansi litlar líkur á því að það sjái sjálft um að setja inn nýjar færslur og pælingar á Barnalandssíðuna sína. Það eru því...surprise...foreldrarnir sem skrifa, en í stað þess að skrifa það sem þau upplifa og...haldið ykkur fast...ímynda sér að barnið sé að upplifa, þá tala þau með röddu barnsins. Mér finnst það eitthvað skrýtið.

Dæmi:

Mamman skrifaði: "Þarna er ég að gefa öndunum brauð og mamma fylgist með mér. Mér fannst rosalega gaman og svo sofnaði ég í vagninum því ég var svo þreyttur eftir gamanið"

Barnið upplifði: "Þarna er mamma að láta mig fleygja gómsætu, dýrmætu og fullkomlega ætu brauði ofan í risastóran poll fullan af kjúklingum. Ég fékk svo í öxlina af öllu kastinu að ég lognaðist útaf og dreymdi um kvartmílu."

Auðvitað er gaman að sjá myndir og heyra sögur, en það væri undarlegt ef hér stæði:
"Ég fór í bíó með mangó minni og skemmti mér vel. Ég borðaði ýkt mikið popp og þurfti svo að pissa.

Kveðja,
kærastan."

Það væri alveg eins hægt að vera með bloggsíðu hjá kettlingi eða sokkapari.

Æj þið vitið hvað ég meina. Ég fékk alveg jafn mikinn krúttisting af síðunni hennar Sunnu Herborgar einsog öðrum, og meiraðsegja vatn í augun af pælingum foreldranna.


---

Mér finnst bloggurinn minn haga sér undarlega. Hann lætur mig þurfa að ýta á refresh takkann ógurlega oft til að fá allan menjúinn hingað hægra megin, annars hangir hann neðst á síðunni í einhverri bunu.

Þetta er því opinbert neyðarkall til Ingva (eða annarra forritunarelskenda) sem geta gert lúkk í movable type sem er líkt þessu. Efast um að fá nokkur svör, en ef einhver á auðbreytanlegan kóða eða eitthvað sem ég get fengið lánað og breytt þá verð ég voða glaður.

Langar bara að hafa textann þar sem hann er, og menjúinn þar sem hann er, og svona haus efst. Já og fallegri undirsíður sem eru ekki með margföldum haus og einhverju hvítu "halli" með undirstriki.

Skilaboð (3)

Arna:

Hehe...það er samt til fólk sem heldur síðu fyrir köttinn sinn...eða hamsturinn...eða jafnvel hestinn sinn á dýraland.is. Já spáðu í því.

Dýraland.is er alvöru!!!

Vá...hafði aldrei spáð í það. Hestinn sinn? Það væri forvitnilegt að heyra hvað hestar hafa að segja.

Skil ekki en hef samt meiri þolinmæði fyrir "ég fór út í dag, það var rigning og hnakkurinn meiddi mig, svo týndi ég skeifu" heldur en barnabulli.

Ætla að skoða dýraland.is vel, takk fyrir að benda mér á það! :)

ég skal laga lookið þitt ef þú kemur í fjallgöngu um helgina :D

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 29. júlí 2005, kl: 16:44.

Fyrri færslan er Teiknihestur.

Næsta færsla er Celtic Ross.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31