Þetta er til allra foreldra, sem og fávísra, misvísra og góðra barna þeirra.
- -
Mig langar að biðja alla sem lesa þetta og þekkja þá greindarskertu unglinga sem ganga um bæinn og spreyja einhverskonar stensla-klessum á íbúðarhús að vinsamlegast hætta því.
Ég skil að lubbhærðir unglingar frá efri-millistéttar heimilum sem eiga bara tvo bíla og fara bara einu sinni til útlanda á ári séu fullir gremju útí yfirvöld. Ég skil að þessir sömu unglingar með glænýjan farsíma í vasanum rjúki út í bræðinni og spreyji eða kroti eitthvað óskiljanlegt á strætóskýli og sparki svo ýkt fast í ljósastaur. Ég skil að þeir rispi sætin í strætó og tússi typpamyndir á rúðurnar. Þetta er allt mjög göfugt og líklegt til að ná fanga athygli yfirvalda og færa þau nær baráttumálum kúgaðra unglinga einsog þessara.
Það er ofsalega kúl að krota taggið sitt í mittishæð á skilti. Það eina sem skemmir fyrir er að litla 5 ára systirin getur gert það líka. Í gamla daga snerist leikurinn um að setja nafnið sitt þar sem erfitt var að ná til (og oft gert með hjálp stiga, kaðla eða einfaldlega miklu príli) en hér á Íslandi er leikurinn mun einfaldari: það er nóg að eiga túss og strætómiða. Nú eða fá heimilisbílinn lánaðan.
Það er líka ofsalega kúl að klippa út stensil og fara út með lambhúshettu (í láni úr veiðikassanum hans pabba) og spreyja mynd af Davíð Oddssyni á hús á Laugaveginum. Það er pínu ókúl að myndin er í skjóli og sést ekki þegar keyrt er niður Laugaveginn, en það er allt í lagi því íbúar hússins taka vel eftir lekandi spreylistaverkinu þegar þeir kaupa meiri málningu í BYKO og mála heimilið sitt.
Það er enn betra að nýta opinberar byggingar og hluti og mannvirki í eigu ríkisins; þannig er öruggt að einhver á vegum ríkisins taki eftir. Reyndar verður það í mesta lagi ein lögga og svo þrír borgarstarfsmenn á appelsínugulum pallbíl vopnaðir málningarrúllu, en þeir hringja örugglega í réttu númerin svo Alþingi taki eftir þessu og rjúfi þingið.
Það besta eru hvað skilaboðin eru skýr: einhver snillingur spreyjar mynd af Davíð við hliðina á mynd af banana, og þá fatta allir landsmenn hvað þjóðin er í miklum bobba.
Það lang, langbesta er, hinsvegar, þegar einhver aumingi í slagtogi við fleiri aumingja fer að nýbyggðu fjölbýlishúsi á Lindargötu, leggur pínulítinn, aumingjalegan og algjörlega óskiljanlega stensilinn sinn við steinhlaðninginn, og spreyjar klessta og lekandi mynd á ALLA HLI– HÚSSINS, á hvern einasta stein. Það er algjörlega öruggt að þeir sem gerðu þau mistök að kaupa sér íbúð í húsinu brosi frá eyra til eyra þegar þeir komast að því að það er ekki nokkur leið að ná spreyinu af steininum og að kostnaðurinn sé líklega talinn í hundruðum þúsunda. Það er nefnilega fátt skemmtilegra en þegar venjulegt fólk vaknar einn daginn og sér að einhver er búinn að rispa bílinn og brjóta framrúðuna, rústa legsteinum ættingja, eða míga, kúka og kveikja í sumarbústaðnum.
Þeir fávísu unglingar sem sjá um að skreyta borgina svona eru því miður of heimskir til að skilja að svona skemmdarverk eru einmitt það sem stendur í vegi fyrir þá sjálfa að fá aðstöðu til að iðka sína list; að þetta gerir ekkert annað en að auka gremju allra, líka þeirra sem gera fallegt með spreybrúsum, og hjálpar til við að halda heitinu "veggjakrot" um næstu hundruð ár.
Mér finnst þessir fávitar mestu fávitar sem ég hef hugsað til nýlega.
Skilaboð (1)
Ha, hélt alltaf að þú hefðir spreyjað myndirnar af David and the bananas? ;)
djö, gæti verið nafn á hljónst:
"David and the Bananas" humm...
Skrifað 30.07.05 15:22