« Sjáðu | Aðalsíða | iKill »

Algjörlega uppáhalds!

I don't like it...

Vá. Little Britain!

Eftir að hafa hlustað oft og mörgum sinnum á Nenna og Pétur leika allskonar atriði úr Little Britain (með Matt Lucas og David Wallaims) ákvað ég að tékka á þáttunum þegar ég kom aftur hingað út. Er búinn að eiga þá síðan Ingvi sagði að þeir væru æði...fyrir nokkrum árum. Bjóst við að þeir væru ókei, en ekkert að þær væru snilld...

...en GVU– MINN GÓ–UR þetta eru bestu þættir sem ég hef séð á ævinni. Ekki nóg með að ég sé einn inní herbergi að skríkja úr hlátri yfir þáttunum (skríkja, væla, öskra, hósta, titra, tísta, slefa, hnussa) heldur hef ég farið að hlæja í sturtu, úti að labba, í subwayinu, liggjandi uppí rúmi, og þegar ég skoðaði bbc síðuna um Little Britain í gær þá hristist ég allur af hlátri bara við að skoða myndir af karakterunum. Jiminn eini.

Ég tók þá stóru og erfiðu ákvörðun að horfa ekki á alla þættina í einu, því ég tími því ekki. En það er erfitt, kannski held ég það ekki út, horfi þá bara aftur. En fokk hvað þetta er mikil snilld.

--

tarnation.jpg

Sá svo myndina Tarnation í gær. Loksins. Er líka búinn að vera að bíða eftir að sjá hana (ætlaði oft á hana í bíó, svo var hún sýnd uppí skóla en ég hafði ekki tíma og yadayada) þannig að ég fékk hana bara gegnum Netflix.

-- Netflix er algjör snilld líka, vídeóleiga á netinu. Maður setur bara myndir á biðlistann sinn (hægt að hafa hundrað myndir í röð eða meira). Maður getur verið með þrjár myndir í einu, og fær þær sendar í pósti. Þegar maður er búinn að horfa stingur maður þeim aftur í umslagið og í næsta póstkassa, svo 2-5 dögum seinna kemur næsta mynd á listanum o.s.frv. Kostar bara 19 dollara á mánuði og þetta er ekki bara eitthvað blockbuster-drasl, heldur allskonar heimildarmyndir og útlenskar og júneimit. --

Tarnation er frábær sjálftekin heimildarmynd um og eftir strák sem ólst upp við pínu skrýtnar aðstæður. Frá því að hann var 11 ára tók hann allskonar vídjó af sér og ættingjum, og breytir því síðan í mynd og klippti hana á iMovie (sem fylgir með Apple tölvum). Low budget og high feelings (hah). Myndin er frábær, kannski sérstaklega vegna þess hvernig hún lítur út og að hann stjórnar þessu alveg sjálfur. Æji, sjáið hana bara.

Í Tarnation er fullt af góðri músík, þar á meðal frábæra semi-eitís lagið Strange Powers, sem ég sá í lokin að var með hinni frábærru The Magnetic Fields.

The Magnetic Fields er eitt af helling af sólóverkefnum Stephen Merritt sem er frábært undrabarn...nei, undrakall. Hann spilar á öll hljóðfæri sjálfur eða fær hjálp frá öðrum undraköllum og -konum, hann syngur og trallar og er frábær.

Frrrrrábært lag, ég er búinn að vera með það á rípít á meðan ég skrifaði þetta allt (tekur lengri tíma að skrifa en að lesa) og þetta er svo frábært að það er frábært! Lagið er af plötunni Holiday frá 1994, og afþví að ég er svo frábær og Stephen Merritt er svo frábær þá er lagið nákvæmlega hér:


The Magnetic Fields - Strange Powers (hægrismella og seives)

--


Og svo er ég að lesa bókina Lullaby eftir Chuck Palahniuk (einsog Kárahnjúk). Hún byrjar vel og ég er pínu spenntur. Hann skrifaði líka Fight Club og Choke, og Haunted er nýja bókin sem mig langar í.


Bókin Freakonomics er frábær, mjög fróðleg og skemmtileg að lesa. Ætla ekki að reyna að útskýra um hvað hún er, þið getið bara lesið hvað þeir skrifa sjálfir.

Skilaboð (2)

"I want my stuff back!" - Schnilldin ein þessir þættir.

Sería 2 verður líka ögn steiktari en sú fyrri. Ef það er hægt!! Sannar eitt sinn fyrir allt að Bretar eru konungar grínsins.

Ef þú ert ekki búinn að sjá Dave Chappelle þættina ennþá þá mæli ég með þeim líka. Þeir koma alveg á hæla Little Britain í funny skalanum :)

mangó sín:

freakonomics....mjög klár bók.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 05. júlí 2005, kl: 15:57.

Fyrri færslan er Sjáðu.

Næsta færsla er iKill.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31