« sh-sh-shiiine | Aðalsíða | ójdív ttolf »

Stundum...

Halli er fínn Barbitvíburi

...leynist fegurðin allsstaðar...

En þetta vídjó með greyið MJ er óóóótrúlega ljótt og sárt, en grætilega fyndið líka. Æj æj æj æj & ó.

- -

The Contender serían er búin og ég er pínu leiður. Ég var alltaf geðveikt spenntur og stóð stundum upp og svitnaði og gargaði og kýldi útí loftið. Já, svona er ég nú hættulegur stundum. Fyrir þá sem ekki vita er The Contender snilldarboxþáttur í uppáhaldsflokki Njarðar, reality tv, og er pródúsað af sama gaur og gerir The Apprentice, Survivor og Amazing Race. Svo eru Sly Stallone og Sugar Ray "Sykur Reyr" Leonard hóstar í þættinum og fleygja útúr sér allskyns gullkornum og djúpum pælingum. Þetta er algjör snilld og Sly merkilega huggulegur í bæði kasjúal dressi og æfingafötum. Blóði og splatteri er haldið í algjöru lágmarki, en tilfinningum og spjalli er pumpað út á fullu blússi og maður fær að kynnast köppunum og þeir verða bestu vinir manns og ég veit ekki hvað.

Ef þið hafið áhuga á að horfa á þættina (sem ég mæli með ef þið fílið boggssh og/eða allt hitt reality tv crappið) þá skuluð þið ekki googla orðin "The Contender" því þá fáiði að vita hver vann og allt það. Og hve skemmtilegt er það nú, ég bara spyr? Veit ekki hvort þetta komi nokkurntíma í íslenskt sjónvarp, kannski ákveða einhverjir fávitar að setja þetta á Sýn, en það væri GLAPRÆ–I því þessi sería fékk kreísí áhorf og var ein vinsælasta serían í amerísku sjónvarpi á þessu ári. Þið þurfið því bara að hringja í Rúv eða Stöð 2 eða á Skjá Einn eða á Aksjón á Akureyri eða Blönduósi eða hvarsemþaðer og kveina. Eða safnast saman niðrá Austurvelli og öskra á alþingismenn. Eða bara senda Bubba nokkur sms.

Skilaboð (5)

Bob:

Skjár Einn eru að koma með þetta.

Njörður:

Nákvæmlega! Skjár Einn! þeir kaupir næstum alla drasl þætti sem eru framleiddir fyrir sjónvarp.

Það er ekkert sem heitir reality tv, þetta er allt klippt til og skotið nokkrum sinnum. Ekki einu sinni fréttir flokkast undir reality tv. Það eina sem kemst næst því eru beinar útsendingar.
Þetta form á sjónvarpsefni er drasl.

Haltu k.j. Star Trek lover. Og Buffy. Og Neighbors. Og allt hitt bullið.

Ég kýs gervi reality tv framyfir kvefaðar vampírubeyglur eða geimkalla í náttfötum með fjarstýringabyssur ANY DAY!

Bob: kýldu Njörð!

Njörður:

Alltaf sama svarið Halli minn. Ert með þessi svör tilbúin í einhverju Word skjali?

Bring it on Bob!

iiii, spegill.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 01. júní 2005, kl: 01:45.

Fyrri færslan er sh-sh-shiiine.

Næsta færsla er ójdív ttolf.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31