Ég hef aldrei séð annað eins. Ég veit ekki alveg hvað ég get sagt. Linda P og Jónína hljóta að vera að hittast í dimmum húsasundum að braska með franchæsið. Ég vona til guðs almáttugs að svona opni í Skeifunni eða í Sundahöfn því ég er tilbúinn að borga dágóða upphæð fyrir að sjá hóp af húsmæðrum í kvennahlaupsbolum skoppandi útum allt. Smellið á myndina til að sjá vídjó af þessari snilld/geðveiki.

Skilaboð (6)
INTENSE GAMEPLAY! AWESOME BIRTHDAY PARTIES! GREAT!!!
Skrifað 02.06.05 02:32
Ég ætla að verða næsti Eiður Smári í SkyZone!!!
Skrifað 02.06.05 04:31
The Trampoline... Innocent chidren's toy or vicious backyard killer? - You be the judge!
Skrifað 02.06.05 08:18
Hah. Ég veit það ekki. Er mjög mikið að hugsa um að kaupa mér rútumiða og prófa þetta dót. Annaðhvort verða það stærstu mistök lífs míns, eða ég verð trampólínfíkill.
Svo hlýtur að vera til samskonar boltaland fyrir fullorðna. Mig langar í boltaland!!!
Skrifað 02.06.05 13:50
Halli, manstu eftir boltalandi IKEA þegar IKEA var á móti Kringlunni?? Ahhhh gooood times ....
Skrifað 03.06.05 04:48
Jahá ég man eftir því. Og þegar ég var lítill vann mamma mín hjá Teppalandi á Grensásvegi og ÞAR var sko boltaland. Þetta er það næsta sem ég hef komist því að vera þyngdarlaus og svííífa um í draumaheimi. Þúveist.
Ég er að hugsa um að kaupa nokkurhundruð svona bolta og fara bara í kósí boltabað. Mmm. Viljiði memm?
Skrifað 03.06.05 16:08