Vissuð þið að ef þið haldið niðri CTRL takkanum á lyklaborðinu (þessum í vinstra horninu niðri) og skrollið hjólinu á músinni ykkar þá getiði minnkað eða stækkað letrið á skjánum?
Mér finnst þetta ýkt sniðugt og fann þetta alveg óvart, en svo sá ég að það er til langur listi af allskonar shortcuts sem maður getur notað með því að ýta á allskonar takka og sveifla músinni.
Hér er listinn.
Oj R-listinn.
(og sjáiði litla punktinn fyrir ofan linkinn? veit ekkert hvað þetta er. Er pínu hrærður yfir þessu öllu saman.)
Skilaboð (1)
Svo geturu líka náð í plug-in fyrir firefox sem heitir "mouse gestures" og þá geturu stjórnað u.þ.b. öllu í browsernum bara með músahreyfingum! Wicked! Að mörgu leyti sniðugt, notaði þetta lengi vel til að opna og loka gluggum og fara back og forward og eitthvað svona basic. Nennti þó ekkert að læra endalaust á þetta.
Skrifað 30.06.05 11:42