« Skymaniaha??? | Aðalsíða | Gómsætt »

Líkamsber og viðbjóðsvara

Var í ótrúlegu möns-stuði kl. 2 í nótt og mundi að við fallega og góða kærustuparið kláruðum ekki jarðarberin eða Godiva-súkkulaðið (sem á að vera ótrúlegt lúxuslaði en er síðan bara la-la...NóaSíríus eiginlega miklu betra). Ég gúglaði hvernig maður bræðir súkkulaði í örbylgjuofni, bútaði það svo niður og bræddi. Svo dýfði ég berjunum í súkkulaðið til að fá hi couture snakk fyrir menntað og líbó fólk einsog mig.

Ég tók myndavélina og ætlaði að taka mynd af þeirri fegurð sem ég hélt að myndi blasa við, en...ehemm...diskurinn var allt annað en girnilegur. Ef ég á að vera mjög hreinskilinn þá leit þetta út fyrir að ég hefði hreinlega gert númer tvö í brækurnar og dýft berjunum í tvöið. Chunky, mislitt og misþykkt.

Ég slökkti bara ljósið og fókusaði á Americas Next Top Model 4 (erað horfá seríuna, allt mangó minni að kenna) og naut unaðsbragðsins á meðan ég klappaði sjálfum mér á bakið fyrir að vera svona glóbal. Mig vantar bara gullbakka og spræt í freyðivínsglös og þá er þetta fullkomið.

Keypti meiri jarðarber áðan (risastór bakki með risajarðarberjum frá Dole kostar bara 90 kall!) og Cadbury's súkkulaði og ætla að vatnsbaðsbræða súkkulaðið og gera þetta smoove og glansandi fínt svo ég geti horft á meðan ég borða. Mmm mm mm.

Ætti eiginlega ekki að tala um þetta núna, en ég og Margrét Anna sáum þann mesta og skrýtnasta viðbjóð sem við höfum á ævinni séð. Þetta er eitt undarlegasta pródukt sem ég hef séð eða heyrt um, eiginlega einsog Dekkjaróludjús eða Pulsuvatnssafi eða Baconkrem eða Sápuvatn (tilbúið til notkunar) eða 18.000 króna gallabuxur með götum.

Við vorum að skoða okkur um í 99centa súpermarkaði og kíkja aðeins á hágæða úrvalið. Hún varað skoða hreinsiefni og ég rölti um og skoðaði sjampótegundir sem ég hafði aldrei heyrt um. Þá sá ég það...

...GARLIC SHAMPOO...

...og ég tók flöskuna...og ég opnaði hana...og ég lyktaði...

...OG SJAMPÓI– LYKTAR EINSOG HVÍTLAUKSSÓSA FRÁ HVÍTLAUKSHELVÍTI!!! BARA MIKLU MIKLU VERRI.

Ég trúði ekki lyktinni og kallaði á mangó mína og bað hana að lykta og hún kúgaðist strax. Við stóðum þarna tvö að reyna að snúa tímanum við svo við hefðum aldrei þurft að upplifa lyktina og drifum okkur svo út. Á meðan við löbbuðum vorum við bæði að loftsnýta okkur og reyna að hrista lyktina af okkur.

Daginn eftir fórum við í Six Flags og vorum enn að fá af-og-til klígjuköst útaf sjampólyktinni. Í rútunni tók ég upp einhverskonar heilsulaði og við fengum okkur bæði bita en það voru mistök lífs míns því af einhverjum ástæðum var fáránlegt hvítlauksbragð af laðinu. Á meðan ég þambaði vatn og lokaði augunum og rembdist viði að koma þessari tuggu niður hálsinn minn og oní maga þá kúgaðist Margrét Anna aftur og aftur og aftur, og ég fór að hlæja (en passaði að hún sæi það ekki) og hún kúgaðist og kúgaðist og fékk sér vatn og ég svitnaði og glansaði smá og hún þambaði vatn og kúgaðist og ég fékk klígju og svo kyngdi ég og hún kúgaðist og svo sátum við bæði eftir okkur. Og ég glansaði.

Við hentum heilsulaðinu beint í ruslapoka og því veit ég ekki hvort ég hafi óvart keypt svoleiðis með hvítlauk og hnetusmjöri en ég efast stórlega um það. Mín ágiskun er sú að hvítlaukssjampóið hafi komið sér fyrir bæði í undirmeðvitund okkar og í heilanum og sé þar enn þann daginn í dag að plotta eitthvað hræðilegt.

Ég hef reynt en ég skil ekki hversvegna einhver myndi vilja "þvo" á sér hárið með hvítlaukssjampói. Skil það ekki. Hvernig er það hægt? Í fyrsta lagi mun hárið lykta miklu miklu miklu miklu verr en áður, og í öðru lagi mun það lykta verr en allt annað hár í heiminum. Afhverju ekki þá hvítlaukstannkrem? Eða hvítlauksmunnskol? Eða hvítlauksrakspíri og -ilmvatn? Fótakrem? Nefúði? Lósjon? AirWick? Klósettsteinn? Er heimurinn að fara til helvítis?

Skilaboð (3)

hörður:

Ég held að Hvítlaukssjampó sé tilvalið fyrir fólk með vampírufóbíu á háu stigi, það er nefnilega svo óþæginlegt að þurfa að burðast með svona hvítlaukskrans á sér alla daga

Njörður:

Þetta er eitthvað sem Guðrún(minnir mig) enskukennari í MS væri hrifin af. Hún baðaði sig upp úr mjólk ofl.

Þetta er það næsta sem kemur í ótrúlegu búðina.

Hörður: það er einmitt vampíruplága á Lower East Side þannig að þetta er mjög þægilegt. Gott fyrir fólk með sítt hár, það þurrkar hárið bara lítið og hristir það svo einsog kreísí þegar það verður hrætt.

Guðrún gufa enskukennari var einsog Gremlins. Hún mátti ekki borða eftir miðnætti og ef hún komst í snertingu við heitt vatn þá poppuðu út ýkt margar Guðrúnar. Hún var nú samt ágæt, er það ekki?

Annaðhvort fer þetta í ótrúlegu búðina eða Heilsuhúsið. Hörður og Njörður. Hah.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 02. júní 2005, kl: 18:55.

Fyrri færslan er Skymaniaha???.

Næsta færsla er Gómsætt.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31