Kom aftur til NY í gær eftir 2ja vikna ferð til Íslands. Fór aðallega til að kyssa kærustuna, fara í 80 ára ammæli afa míns og 20 ára ammæli systur minnar og borða helling. Planið var mjög stíft en gott (firm but fair) og mér tókst að fá smá brúnku og helling af freknum og bæta á mig ca 5 kílóum af rjóma og hreinni karamellu.
Fékk hluta brúnkunnar, eina eða tvær freknur og smá fitu þegar ég fór í fjölskyldufaðmi á Búðir. Hótelið er æði og maturinn æði líka. Löbbuðum frá Arnarstapa að Hellnum (þ.e. Hellnar, ekki einhver hellir) og ég fékk sand í skóna, fugla í myndavélina og eplaköku í magann. Ég var einsog alversti túristi og tók fáránlega mikið af myndum og sagði "aaaa" og "úúúúú" og fannst ótrúlega fallegt og fínt. Ísland er fallegt fallegt, ég hef bara verið extra latur við að fara annað en uppí bústað eða uppá flugvöll, en ég er líka svo ótrúlega urban. Ég var líka ótrúlega lélegur í landafræði í 12 ára bekk, vissi aldrei hvernig korn var í Rússlandi eða Þýskalandi og held að það hafi haft djúpstæð áhrif á þroska minn.
(Ég var að fá mér grænan mánaðargamlan risaopal og hann er sveittur og hálf loðinn, enda búinn að soðna í herberginu mínu í 2 vikur. Oj oj oj.)
Það er 27 stiga hiti og sveitt, en ég sit bara á superman nærbuxunum mínum með loftkælinguna á full force. Fyrir mér eru þetta bara venjulegar tightie nebbur, en júllinn sagði "halló súpermann" þegar ég var á vappi í eldhúsinu í gærkvöldi og mér finnst það fínt.
Mig langaði geðveikt að svara honum og segja "hello Goldman", en hann er svo hörundssár að það hefði ekki verið sniðugt. Málið er nefnilega að júllar heita allir einsog ofurhetjur, nöfnin enda á -Man. Goldman, Glickman, Brockman. Josef Spiderman. David Ironman. Mel Plasticman.
Sá á mbl.is áðan að fólk er að kafna úr Evrópskri hitabylgju. Þeir birta þetta:

Ókei, ég skil að konunni sé heitt, en mbl.is hittir naglann á höfuðið. Konan reyndi að kæla sig, en væri ekki sniðugt ef hún sæti actually fyrir framan vifturnar? Hún staðsetur sig fullkomlega þannig að engin viftanna miðar á hana. Gott hjá þér honey, drepstu bara úr hita.
Skilaboð (2)
hi hi hi..... érað sofa hjá súperman!
Skrifað 29.06.05 16:02
Thats right! ;)
Skrifað 10.07.05 20:19