Ég var að keyra með Nirði og Alla útá Nesi á leiðinni í íbúðina hans Alla, þegar bíllinn fyrir framan okkur lagði fyrir utan hús.
Bílhurðin opnaðist og við blöstu tveir fagrir og sólbakaðir leggir.
"Hellloooooo", sagði Halli, og keyrði löturhægt framhjá.
Njörður og Alli litu í átt að bílnum, og saman horfðum við þrír framan í unglingsstrák með gleraugu.