« maí 2005 | Aðalsíða | júlí 2005 »

Safn af færslum í flokknum "júní 2005"

30. júní, 2005

Da Da Da Vinci and the Age of the Albino

ó...þessi augu...

(smellið til að sjá stærri)

Þó svo að allir séu búnir að lesa hana, þá þorði ég ekki að fá The Da Vinci Code lánaða fyrr en í fyrradag. Einhvernveginn trúði ég ekki á allt hæpið og vildi ekki lesa bókina og finnast hún vera prump. En svo lánaði mangó mín mér bókina og ég las 200 bls í flugvélinni og restina í gærkvöldi og í nótt. Mér fannst hún skemmtileg og gaman að sjá loks að albinóar séu að verða hip&kúl, sérstaklega massaðir berir albinóar. Ég sá einmitt albinóa þegar New York dansimyndin mín var sýnd á þessari ansi mikið skrýtnu mini-kvikmynda"festivali", en hann var hvorki massaður né ber, því er nú miður, en á samt vefsíðuna bestalbino.com. Það fyndna er að á meðan ég las bókina hugsaði ég ekki um annað en þennan saklausa kvikmyndargerðarmann og fannst pínu fyndið að ímynda mér hann gera það sem hann gerði.

Ég man að í gamla daga fannst mér mamma ótrúlega góð í því að fatta plottið í Dalgleish lögguþáttunum. Í hverjum einasta þætti hélt ég margoft að ég hefði fattað plottið, en endurskoðaði fattið mörgum sinnum alveg þangað til þátturinn var búinn. Það sama gerðist þegar ég las bókina. Ég vissi algjörlega hver var hvað...þangað til ég breytti aðeins og vissi það núna í staðinn. Nei núna...nei núna. Og svo endaði ég á því að fá gæsahúð á lærin þegar ég las það loksins. Og þá fannst mér glatað að bókin væri búin. Ég vona að myndin verði skemmtileg, þó svo að það sé pínu glatað að vita plottið algjörlega. Djö, ég er eiginlega að fatta það núna að það verður akkúrat ekkert gaman að sjá myndina. (Nema ef drekinn verður vel gerður.)

Fyrir þá sem eru búnir að lesa bókina, þá er hér linkur á hluta úr Da Vinci Hoax, bók sem gengur út á að freta á allt sem í Da Vinci Code stendur. Og opinbert svar Opus Dei. Og upplýsingar frá ODAN, þ.á.m. mynd af gaddaólinni fögru.

Mér finnst þetta alveg einsog allt sem fylgdi Fahrenheit 9/11, allar síðurnar og bækurnar sem sögðu að Michael Moore væri vitlaus fitubolla, og allar síðurnar og bækurnar sem sögðu að hann væri gáfuð fitubolla.

Mér finnst jafn fáránlegt að ráðast á einhvern rithöfund fyrir það sem hann skrifar og að lesa listasögubók og búast við því að allt sem þar standi sé heilagur sannleikur. Listasaga og listasögukennsla in general er oftast algjört kjaftæði. Í háskólum (einsog t.d. mínum) eru listfræðingar með doktorsgráðu á fínum launum við að endurtaka listilega það sem stendur í listasögubókum--eftir annað fólk--og sýna fínar slidesmyndir sem deyða alla löngun til frekara lífs. Ekki nóg með að kennararnir hafi varla skoðun sjálfir, heldur má varla spyrja nýrra spurninga sem er ekki búið að svara á standard hátt í bókunum. "Þetta er bara svona og það er vitað" er mottóið. Með fullri virðingu fyrir öllum listfræðingum og -elskendum (þ.e. listelskendum) þá er ástæða þess að flestar almennar listasögubækur innihalda sömu upplýsingarnar annaðhvort sú að listfræðingar eru almennt ótrúlega latir og nenna ekki að rannsaka hlutina sjálfir, eða að allt of margir hafi mögulega rangt fyrir sér sökum þess að hafa hlustað á eitthvað bull. Eftir að hafa hlustað á kennarann minn segja einhverja þvælu um að málverk eftir einn frægan, málverk sem var í mjög brengluðum hlutföllum og eiginlega bara skringilega vont, væri skemmtileg og athyglisverð tilraun til að "hræra upp í áhorfandanum", þá spurði ég hana hvernig hún kæmist að þeirri niðurstöðu. "Nú, það er almenn vitneskja," svaraði hún. Þegar ég spurði hvernig fólk vissi að eitt logandi kerti í kertastjaka á málverki táknaði viðveru Jésús, þá sagði hún "afþví að þannig blandast trúin við listina". Þegar ég spurði hvernig hún vissi það, sagði hún "það er í bókinni".

Ókei, en er hún ekki listfræðingur sjálf? Þarf hún að vera með bók skrifaða af annarri kellingu til að geta sagt mér eitthvað um þetta málverk? Þetta er einsog að vera í kvikmyndanámi og fá aldrei að sjá kvikmyndir, heldur hitta einhvern andfúlan kvikmyndafræðing sem les uppúr Maltin. "Þrjár stjörnur. Nei, fyrirgefiði, þrjároghálf..."

Má ég semsagt fara í listasöfn og skrifa mína eigin listasögubók? Og segja að það sé eitt kerti af þeirri sömu ástæðu og ég teikna fjólubláa skó og tvo penna í skyrtuvasa? Hvað veit fólk hvað einhver málari sem fæddist 1426 var að hugsa þegar hann málaði tiltekna mynd? Argh.

Hér er annars gátuleikur úr og um bókina, The Da Vinci Code, sem útleggst væntanlega í the hood sem Da Da Vinci Code.

Það er fyndið að útgefandi Da Vinci Code á Íslandi segi að Englar og djöflar sé nýjasta bókin frá Dan Brown. Hún er kannski sú nýjasta sem er þýdd, en kom samt út way back in 2001, áður en Njörður setti í tagl. Í desember á næsta ári kemur hinsvegar út ný bók, The Solomon Key, sem fjallar um frímúrara og the same old. Surprise? Held ekki. Ekki nema Laddi verði í aðalhlutverki: The Solomon Gustafson Key.

Ég er, alveg einsog Bob varð pirraður á bjúgnaputtum, orðinn heitur og rjóður af þessu pirringstali. Áfram Mervíkingar og gáfaðar fitubollur, ég ætlað fá mér Reese's Peanut Butter footballs, kók, stjörnurúllu, lakkrísdraum og svo nýja citrusmint tyggjóið frá Orbit svo ég verði ekki andfúll.

Nostalgía rímixuð

banana.gif

Á OverClocked ReMix er hægt að finna endalaust magn af allskonar innsendum rímixum af tölvuleikjasándtrökkum. Hljómar flókið, en er mjög skemmtilegt.

Sum rímixin eru mjög fín og gaman að heyra sumt af gömlu lögunum. Kirby's Adventure, Mega Man, Ducktales og Batman.

- - -

...og í gegnum spjallkerfið á síðunni rakst ég á þetta. Jesús Kristur Jesússon.
Girlies, hugsið ykkur um áður en þið gerið númer 2 í Þórsmörk aftur.

hmm...

Grafískur hönnuður?

29. júní, 2005

Sjiii

Vissuð þið að ef þið haldið niðri CTRL takkanum á lyklaborðinu (þessum í vinstra horninu niðri) og skrollið hjólinu á músinni ykkar þá getiði minnkað eða stækkað letrið á skjánum?

Mér finnst þetta ýkt sniðugt og fann þetta alveg óvart, en svo sá ég að það er til langur listi af allskonar shortcuts sem maður getur notað með því að ýta á allskonar takka og sveifla músinni.


Hér er listinn.

Oj R-listinn.

(og sjáiði litla punktinn fyrir ofan linkinn? veit ekkert hvað þetta er. Er pínu hrærður yfir þessu öllu saman.)

Colour Me!

fallegt og fínt

Pictoplasma halda endalausar ráðstefnur í Þýskalandi um karakterhönnun og dót og svoleiðis, og með þeirri nýjustu létu þeir þrjá fína gaura teikna saman á þrjá stóra veggi sem má lita á. Mig langar í svona heima hjá mér.

Hér er meira infó um Pictoplasma on Tour 2005.

Vertu spældur!

PISK PISK PIIIIISK

Spældu einsog Jesús og sýndu danska egginu hver er kóngurinn!!!

Ég náði 12.000, en það er líka ýkt erfitt. Maður þarf að vera með margar pönnur í gangi og allt. Jiminn.

Fagrir leggir

Ég var að keyra með Nirði og Alla útá Nesi á leiðinni í íbúðina hans Alla, þegar bíllinn fyrir framan okkur lagði fyrir utan hús.

Bílhurðin opnaðist og við blöstu tveir fagrir og sólbakaðir leggir.

"Hellloooooo", sagði Halli, og keyrði löturhægt framhjá.

Njörður og Alli litu í átt að bílnum, og saman horfðum við þrír framan í unglingsstrák með gleraugu.

Íííííísland

Kom aftur til NY í gær eftir 2ja vikna ferð til Íslands. Fór aðallega til að kyssa kærustuna, fara í 80 ára ammæli afa míns og 20 ára ammæli systur minnar og borða helling. Planið var mjög stíft en gott (firm but fair) og mér tókst að fá smá brúnku og helling af freknum og bæta á mig ca 5 kílóum af rjóma og hreinni karamellu.

Fékk hluta brúnkunnar, eina eða tvær freknur og smá fitu þegar ég fór í fjölskyldufaðmi á Búðir. Hótelið er æði og maturinn æði líka. Löbbuðum frá Arnarstapa að Hellnum (þ.e. Hellnar, ekki einhver hellir) og ég fékk sand í skóna, fugla í myndavélina og eplaköku í magann. Ég var einsog alversti túristi og tók fáránlega mikið af myndum og sagði "aaaa" og "úúúúú" og fannst ótrúlega fallegt og fínt. Ísland er fallegt fallegt, ég hef bara verið extra latur við að fara annað en uppí bústað eða uppá flugvöll, en ég er líka svo ótrúlega urban. Ég var líka ótrúlega lélegur í landafræði í 12 ára bekk, vissi aldrei hvernig korn var í Rússlandi eða Þýskalandi og held að það hafi haft djúpstæð áhrif á þroska minn.

(Ég var að fá mér grænan mánaðargamlan risaopal og hann er sveittur og hálf loðinn, enda búinn að soðna í herberginu mínu í 2 vikur. Oj oj oj.)

Það er 27 stiga hiti og sveitt, en ég sit bara á superman nærbuxunum mínum með loftkælinguna á full force. Fyrir mér eru þetta bara venjulegar tightie nebbur, en júllinn sagði "halló súpermann" þegar ég var á vappi í eldhúsinu í gærkvöldi og mér finnst það fínt.

Mig langaði geðveikt að svara honum og segja "hello Goldman", en hann er svo hörundssár að það hefði ekki verið sniðugt. Málið er nefnilega að júllar heita allir einsog ofurhetjur, nöfnin enda á -Man. Goldman, Glickman, Brockman. Josef Spiderman. David Ironman. Mel Plasticman.

Sá á mbl.is áðan að fólk er að kafna úr Evrópskri hitabylgju. Þeir birta þetta:

Ókei, ég skil að konunni sé heitt, en mbl.is hittir naglann á höfuðið. Konan reyndi að kæla sig, en væri ekki sniðugt ef hún sæti actually fyrir framan vifturnar? Hún staðsetur sig fullkomlega þannig að engin viftanna miðar á hana. Gott hjá þér honey, drepstu bara úr hita.

14. júní, 2005

Fair Enough

Fair Enough eru leiknir 60 sekúndna þættir um allskonar fáránlegar hugmyndir sem stóru tóbaksfyrirtækin hafa fengið á brainstorm fundum í gegnum árin.

Hugmyndir einsog hvernig á að gera sígarettur meira aðlaðandi fyrir unga fólkið, og hvort það væri ekki sniðugt að búa til tóbaksilmvatn. No joke. Sumt er of skrýtið til að vera almennilega fyndið.

Það versta/besta er að þetta er allt satt.

Líka satt og frábærlega frábært? Að elskulegur Michael Jackson sé laus. Mm mm mm. Ég og mangó mín fengum bæði gleðisvitn þegar við heyrðum þetta í fréttunum í gær og ég er ótrúlega glaður. Vonandi hættir fólk að ráðast á hann og leyfir honum bara að vera það sem hann er. Mig langar að labba upp að honum og bara knúsa hann mjúkt og vel. Veit ekkert hvort hann myndi vilja það, en mig langar það samt. Kannski getum við hjónin bara knúst hann í samloku með sólhlíf til varnar og allt. Gæti ekki verið betra.

13. júní, 2005

Brawny Man er vinur minn!

ó svo Brawny!

Hey þú,

Hefur þig alltaf dreymt um að hafa einn helvíti huggó karlmann í þykkri köflóttri skyrtu hangandi í húsinu þínu, alltaf tilbúinn með eldhúsrúllu og uppbyggilega gagnrýni og hollráð? Hey, who hasn't?

Hér er hann kominn: Brawny Man.

Takk Brawny Man, ég er búinn að bíða lengi eftir þessu...

11. júní, 2005

Tvennd

cuckoo & mooo

Milkmenn!!!

Var að búa til mashup.

Stuðmenn + Audio Two = Milkmenn
"Sigurjón Digri is Top Billin'"

Að mínu mati eitt besta lag í öllum heiminum.

10. júní, 2005

Hip Hop safnplata Halla síns

(*btw, smellið á textann og dragið til hægri svo þið sjáið allt blaðrið. Þetta blogg er enn í hassarassi...)

Ef ég væri að búa til plötu með uppáhalds hip hopinu mínu, þá myndi hún verða einhvernveginn svona (mér finnst glatað að setja lögin í einhverja ákveðna röð, en svona er lífið hart):

hoppah in the hood of the house of Halli

01. Black Moon - 'Buck'em Down (remix)'
02. Pete Rock & C.L. Smooth - 'T.R.O.Y. (They Reminisce Over You)'
03. Gang Starr - 'Ex Girl to Next Girl'
04. Main Source - 'Looking At The Front Door'
05. Grand Puba - 'Baby What's Your Name'
06. De La Soul - 'Say No Go'
07. Milk - 'Get Off My Log'
08. A Tribe Called Quest feat. LONS - 'Scenario'
09. Das EFX - 'They Want EFX'
10. Black Moon - 'I Got Cha Opin (remix)'
11. De La Soul - 'Eye Know'
12. Eric B. & Rakim - 'Know The Ledge'
13. EPMD - 'Big Payback'
14. Wu-Tang Clan - 'M.E.T.H.O.D. Man'
15. Grand Puba - 'Ya Know How It Goes'
16. Keith Murray - 'The Most Beautifullest Thing in This World'
17. Lords Of The Underground - 'Chief Rocka'
18. Jeru tha Damaja - 'Come Clean'
19. Hijack the Terrorist Group - 'Badman is Robbin'
20. Blackalicious - 'Swan Lake'
21. LL Cool J - 'Mr. Good Bar'
22. Biz Markie - 'Just a Friend'
23. Big Daddy Kane - 'Ain't No Halfsteppin'
24. Audio Two - 'Top Billin'
25. Mc Solaar - 'Caroline'
26. Paris - 'Coffee, Donuts & Death'
27. Pharcyde - 'Passing Me By'
28. Souls Of Mischief - 93 Till Infinity'
29. Subterranean - 'My style is Phreaky'
30. Craig Mack - 'Flava in Ya Ear (remix)'
31. Wu-Tang Clan - 'C.R.E.A.M.'
32. Ice Cube feat. Chuck D - 'Endangered Species (Tales From the Darkside)'
33. Funkdoobiest - 'Bow Wow Wow'

Þið þarna bloggpungar, nú byrjum við á keðjuveseni:
þið gerið svona lista líka (og iMix og kover með) og látið hann svo ganga útum allan heim.
Blingstúturinn bendiiiiir á....KATRÍNU!

- - -
Updeit: ég bjó til mjög fínt iMix í iTunes og sendi það á netið, en iTunes music store á bara 11 lög af öllum listanum. Oj bjakk. Fyrirgefðu iTunes að ég skyldi ekki hafa Bo Bice á listanum mínum, hann er bara ekki bonafide hip hop. Jonni: hér er iMixið mitt. Það heitir það sama og diskurinn, Halli's House of Hippedy Hoppah vol. 1. Ó grimma veröld.

09. júní, 2005

Beckham og Beck ham

bara borða þennan hægra megin

07. júní, 2005

Store Wars

storewars.jpg

Store Wars er pínu fyndið og gígantísklega metnaðarfullt.

KRÚTTÍSPRENGJA

Jiiiiiiminn.

Þetta er hr. Firefox. Hann er pandabjörn. Hann er aaaaaaaw krútt!

kondu og knústu Ísland

Fikterí

Er að fikta í útlitinu á þessum blóki, þannig að ég reikna með að þetta verði undarlegt í dag og eitthvað frameftir lífinu.

Það er líka eitthvað að kommentakerfinu og hef ekki hugmynd hvað það er.

Svona er þetta þegar ég fikta án þess að kunna. En þið vitið hvað þeir segja: "Þeir sem fikta aldrei, læra ekki rassagat í bala."

En þetta verður kannski voða fínt. Horfið bara á myndina að neðan.

06. júní, 2005

galdrar

höfundinn skal brenna!f

Færðu andlitið þitt fagra nær skjánum.
Einblíndu fast, hart og örugglega á plúsmerkið í miðjunni og sjáðu hvað þú sérð!

05. júní, 2005

sizzle

sweeetjesus

Postsecret

Post Secret er ótrúlegt fyrirbæri.

04. júní, 2005

Enn sniðugra...

Svampler 4500XL

Sniðugt

Af noisí drill'n'bass, 300bpm þrumubassa og miklu experimental dóterí er margt sem ég þoli ekki, en inn á milli eru lög sem mér finnst skemmtileg og flott, oftast ef þau eru pínu fyndin líka.

Donna Summer er ekki bara stórtennt diskódrós, heldur líka stórskemmtilegur gaur sem býr til skrýtna músík. Þau eru semsagt tvö, en í sitthvoru lagi. OK?

Donna Summer

Donna Summer - Stepping The Fuck Out er gamli tilfinningaslagari Joe Jackson, 'Stepping Out', eftir að þú treður því í gegnum hóp af grimmum hömstrum með vígtennur. Lagið er á plötunni 'To All Methods Which Calculate Power' (Omeko Records 2003). Mjög fínt lag, sérstaklega fyrir mig þar sem ég hef dansað og sungið og svitnað við orginalinn alveg síðan Styrmir kynnti mig fyrir honum.

Donna Summer - I Hate the 80s er rework af Yazoo laginu 'Don't Go' from ðí eitís. Með fiktinu sínu tókst Hr. Summer að gera lagið miklu epískara og líka pínu fyndið. Hann býr líka til lög sem eru ekki endilega búðingur úr eldri lögum, en þessi tvö finnst mér best.


Venetian Snares

Einhverntímann fyrir nokkrum árum heyrði ég í Venetian Snares og fannst það það svo hrikalega leiðinlegt að ég ákvað að þola hann aldrei. Síðan þá hef ég ekki einusinni reynt að fíla hann og algjörlega sniðgengið allt sem hann gefur út, sama hvað fólki finnst það fínt. Svo sæki ég eitthvað megamix með µ-Ziq og heyri þar lag sem mér finnst algjörlega frábært án þess að vita hvað lagið er. Er svo einn daginn að hlusta á safnplötuna Amµnition sem gefin er út af Planet Mµ, leibeli µ-Zig og heyri helvítis lagið, sem er þá - auðvitað - með Venetian Snares. Ég er ekki alveg tilbúinn að viðurkenna að hann sé sniðugur, en þetta lag er frábærlega frábært.

Venetian Snares - Einstein Rosen Bridge

Venetian Snares heitir "í alvöru" Aaron Funk og er ótrúlega afkastamikill hljóðbrenglari. Hann hefur gefið út a.m.k. 6 plötur og helling af smáskífum og er, einsog ég sagði, álitinn af mörgum vera einn mesti snilli sem þessi geiri tónlistar hefur pungað út. Eða pungað inn, eftir því hvernig á það er litið. 'Einstein Rosen Bridge' er á sama tíma týpískt og ekki týpískt fyrir músíkina sem hann gerir því platan á undan var miklu dimmari og harðari, og svo kemur þetta gúmmíkennda samplrugl. Púff.

Gómsætt

Einusinni borðaði ég súkkulaði sem hét Marabou. Mér fannst það ekkert spes, þó svo að auglýsingarnar sögðu mmmmmmMarabou.

Marabou er frá Svíþjóð og þeir eru voðalega stoltir af þessu súkkulaði sínu. Ég veit ekkert hvernig nammi Svíar gera. Haribo lakkrís er kannski sænskur, en kjötbollur eru ekkert voðalega spes nammi.

Úlfur vinur minn hefur spilað á saxafón með hljómsveitinni Kanada. Svíþjóð er ekki á Íslandi en samt ekki heldur nálægt Kanada, sem er fallegt land. Til dæmis er blússandi vestur-Íslendingabyggð í Manitoba og örugglega margir flugdrekar.

Flugdreki á ensku er "kite".
Það er töluð enska í Kanada.
Manitoba er í Kanada.
Marabou rímar við Caribou.

Tilviljun? Ég held ekki.

Einusinni var tónlistarmaður sem kallaði sig Manitoba. Úlfur vinur minn var einmitt sá sem kynnti mig fyrir honum.

Bíðið, það er meira.

Einn daginn kom grimmur pönkari og sagði Manitoba að hann héti Manitoba og því mætti Manitoba ekki heita Manitoba lengur. Manitoba sagði þá bara "ókei" og breytti nafninu sínu í...Caribou. Sem rímar við Marabou. Og hann gerði eitt skemmtilegasta lag sem ég hef heyrt lengi lengi lengi, og í nafni lagsins kemur fyrir orðið "kite", sem þýðir flugdreki muniði.

Þetta er ótrúlegt og ég vil að þið krankið voljúmið upp allverulega þegar þið hlustið á lagið. Ég lofa að þið farið í gott skap og hlustið á það 2-3svar í viðbót.

Caribou - 'Brahminy Kite' af plötunni The Milk of Human Kindness.

- - -

Meira gotterí:
Quasimoto - 'The Further Adventures of Lord Quas'
Nýjasta platan frá Madlib a.k.a. Jaylib a.k.a. Lootpack a.k.a. Madvillain a.k.a. Yesterdays New Quintet a.k.a. Shades Of Blue. Meira skrýtið og meira skemmtilegt. Hip Hop fyrir prófessora og fuglaskoðara.

Populous - 'Queue for Love'
Unglingur með PC tölvu, hljóðkort og fullt af hangsi. Dose One rappar í einu lagi og þetta er fínt. Stundum einsog cLOUDDEAD, Boards of Canada, Prefuse73, Dj Shadow...en...kannski er þetta ekkert voðalega mikið gotterí. Bara la-la. Einsog hafrakex með engu smjöri.

Marsen Jules
Franskur gaur með smá lubba sem gerir fallega og sterka strengjamúsík úr rafmagni. Mér finnst hún skemmtileg enn sem komið er. Nýjasta platan hans er gefin út af City Centre Offices, fyrir þá sem vilja vita það. Lukkulega er hægt að sækja heila plötu og meððí gratís af síðunni hans hér.

Lexaunculpt
Ekki frá mexíkó, sem best ég veit, heldur bara Kalifornískur Kanalingur sem gerir ágætis rafmúsík. Gefinn út af Planet-Mu, leibeli Mu-Ziq (sjá link hér til hægri) sem er minn uppáhalds. Dótið sem ég fíla með Lexaunculpt er kannski ekki týpískt fyrir hann, en bla bla bla bla bla.

02. júní, 2005

Líkamsber og viðbjóðsvara

Var í ótrúlegu möns-stuði kl. 2 í nótt og mundi að við fallega og góða kærustuparið kláruðum ekki jarðarberin eða Godiva-súkkulaðið (sem á að vera ótrúlegt lúxuslaði en er síðan bara la-la...NóaSíríus eiginlega miklu betra). Ég gúglaði hvernig maður bræðir súkkulaði í örbylgjuofni, bútaði það svo niður og bræddi. Svo dýfði ég berjunum í súkkulaðið til að fá hi couture snakk fyrir menntað og líbó fólk einsog mig.

Ég tók myndavélina og ætlaði að taka mynd af þeirri fegurð sem ég hélt að myndi blasa við, en...ehemm...diskurinn var allt annað en girnilegur. Ef ég á að vera mjög hreinskilinn þá leit þetta út fyrir að ég hefði hreinlega gert númer tvö í brækurnar og dýft berjunum í tvöið. Chunky, mislitt og misþykkt.

Ég slökkti bara ljósið og fókusaði á Americas Next Top Model 4 (erað horfá seríuna, allt mangó minni að kenna) og naut unaðsbragðsins á meðan ég klappaði sjálfum mér á bakið fyrir að vera svona glóbal. Mig vantar bara gullbakka og spræt í freyðivínsglös og þá er þetta fullkomið.

Keypti meiri jarðarber áðan (risastór bakki með risajarðarberjum frá Dole kostar bara 90 kall!) og Cadbury's súkkulaði og ætla að vatnsbaðsbræða súkkulaðið og gera þetta smoove og glansandi fínt svo ég geti horft á meðan ég borða. Mmm mm mm.

Ætti eiginlega ekki að tala um þetta núna, en ég og Margrét Anna sáum þann mesta og skrýtnasta viðbjóð sem við höfum á ævinni séð. Þetta er eitt undarlegasta pródukt sem ég hef séð eða heyrt um, eiginlega einsog Dekkjaróludjús eða Pulsuvatnssafi eða Baconkrem eða Sápuvatn (tilbúið til notkunar) eða 18.000 króna gallabuxur með götum.

Við vorum að skoða okkur um í 99centa súpermarkaði og kíkja aðeins á hágæða úrvalið. Hún varað skoða hreinsiefni og ég rölti um og skoðaði sjampótegundir sem ég hafði aldrei heyrt um. Þá sá ég það...

...GARLIC SHAMPOO...

...og ég tók flöskuna...og ég opnaði hana...og ég lyktaði...

...OG SJAMPÓI– LYKTAR EINSOG HVÍTLAUKSSÓSA FRÁ HVÍTLAUKSHELVÍTI!!! BARA MIKLU MIKLU VERRI.

Ég trúði ekki lyktinni og kallaði á mangó mína og bað hana að lykta og hún kúgaðist strax. Við stóðum þarna tvö að reyna að snúa tímanum við svo við hefðum aldrei þurft að upplifa lyktina og drifum okkur svo út. Á meðan við löbbuðum vorum við bæði að loftsnýta okkur og reyna að hrista lyktina af okkur.

Daginn eftir fórum við í Six Flags og vorum enn að fá af-og-til klígjuköst útaf sjampólyktinni. Í rútunni tók ég upp einhverskonar heilsulaði og við fengum okkur bæði bita en það voru mistök lífs míns því af einhverjum ástæðum var fáránlegt hvítlauksbragð af laðinu. Á meðan ég þambaði vatn og lokaði augunum og rembdist viði að koma þessari tuggu niður hálsinn minn og oní maga þá kúgaðist Margrét Anna aftur og aftur og aftur, og ég fór að hlæja (en passaði að hún sæi það ekki) og hún kúgaðist og kúgaðist og fékk sér vatn og ég svitnaði og glansaði smá og hún þambaði vatn og kúgaðist og ég fékk klígju og svo kyngdi ég og hún kúgaðist og svo sátum við bæði eftir okkur. Og ég glansaði.

Við hentum heilsulaðinu beint í ruslapoka og því veit ég ekki hvort ég hafi óvart keypt svoleiðis með hvítlauk og hnetusmjöri en ég efast stórlega um það. Mín ágiskun er sú að hvítlaukssjampóið hafi komið sér fyrir bæði í undirmeðvitund okkar og í heilanum og sé þar enn þann daginn í dag að plotta eitthvað hræðilegt.

Ég hef reynt en ég skil ekki hversvegna einhver myndi vilja "þvo" á sér hárið með hvítlaukssjampói. Skil það ekki. Hvernig er það hægt? Í fyrsta lagi mun hárið lykta miklu miklu miklu miklu verr en áður, og í öðru lagi mun það lykta verr en allt annað hár í heiminum. Afhverju ekki þá hvítlaukstannkrem? Eða hvítlauksmunnskol? Eða hvítlauksrakspíri og -ilmvatn? Fótakrem? Nefúði? Lósjon? AirWick? Klósettsteinn? Er heimurinn að fara til helvítis?

01. júní, 2005

Skymaniaha???

SkyMania Funcenter

Ég hef aldrei séð annað eins. Ég veit ekki alveg hvað ég get sagt. Linda P og Jónína hljóta að vera að hittast í dimmum húsasundum að braska með franchæsið. Ég vona til guðs almáttugs að svona opni í Skeifunni eða í Sundahöfn því ég er tilbúinn að borga dágóða upphæð fyrir að sjá hóp af húsmæðrum í kvennahlaupsbolum skoppandi útum allt. Smellið á myndina til að sjá vídjó af þessari snilld/geðveiki.

ójdív ttolf

Jack Johnson er kannski sniðugur gaur, ég veit ekkert um það. En myndbandið við lagið hans Sitting, Waiting, Wishing er mjög sniðugt.

Theo sem varað útskrifast úr Parsons er líka sniðugur.
Randy er bæði að útskrifast og sniðugur, og þetta Taser Tag er ekki þægilegt.

craigbaby.gif

Craig Robinson er líka sniðugur (allir sniðugir!). Síðan hans Flip Flop Flyin er full af teiknimyndum og kroti, en þar er líka að finna mjög sniðuga pælingu: What if...

...og æjá, nýi Páfinn var víst nasisti. Úbbs.

Stundum...

Halli er fínn Barbitvíburi

...leynist fegurðin allsstaðar...

En þetta vídjó með greyið MJ er óóóótrúlega ljótt og sárt, en grætilega fyndið líka. Æj æj æj æj & ó.

- -

The Contender serían er búin og ég er pínu leiður. Ég var alltaf geðveikt spenntur og stóð stundum upp og svitnaði og gargaði og kýldi útí loftið. Já, svona er ég nú hættulegur stundum. Fyrir þá sem ekki vita er The Contender snilldarboxþáttur í uppáhaldsflokki Njarðar, reality tv, og er pródúsað af sama gaur og gerir The Apprentice, Survivor og Amazing Race. Svo eru Sly Stallone og Sugar Ray "Sykur Reyr" Leonard hóstar í þættinum og fleygja útúr sér allskyns gullkornum og djúpum pælingum. Þetta er algjör snilld og Sly merkilega huggulegur í bæði kasjúal dressi og æfingafötum. Blóði og splatteri er haldið í algjöru lágmarki, en tilfinningum og spjalli er pumpað út á fullu blússi og maður fær að kynnast köppunum og þeir verða bestu vinir manns og ég veit ekki hvað.

Ef þið hafið áhuga á að horfa á þættina (sem ég mæli með ef þið fílið boggssh og/eða allt hitt reality tv crappið) þá skuluð þið ekki googla orðin "The Contender" því þá fáiði að vita hver vann og allt það. Og hve skemmtilegt er það nú, ég bara spyr? Veit ekki hvort þetta komi nokkurntíma í íslenskt sjónvarp, kannski ákveða einhverjir fávitar að setja þetta á Sýn, en það væri GLAPRÆ–I því þessi sería fékk kreísí áhorf og var ein vinsælasta serían í amerísku sjónvarpi á þessu ári. Þið þurfið því bara að hringja í Rúv eða Stöð 2 eða á Skjá Einn eða á Aksjón á Akureyri eða Blönduósi eða hvarsemþaðer og kveina. Eða safnast saman niðrá Austurvelli og öskra á alþingismenn. Eða bara senda Bubba nokkur sms.

Um júní 2005

Hér eru allar færslur frá júní 2005. (nýjustu færslurnar eru efst)

Safnið á undan er frá maí 2005

Næsta safn er frá júlí 2005

Feiri færslur eru á aðalsíðunni og í aðalsafninu.

Knúið af
Movable Type 3.31