Loooooksins er komið gott og sveitt veður. Greyið mangó mín hlýddi mér einum of vel og mætti bara með sumarföt og pils og næfurþunna boli, enda var búið að vera mjög heitt mánuðinn á undan. Við erum búin að vakna með sveittar efrivarir (og ég með sveitt augu) og það er ýkt erfitt að fara á fætur þegar allt vill klístrast við mann. En ég er líka klísturgaur en hún bara dama.
Hér er alvöru Dr. Pepper.
Fórum loksins í Six Flags á föstudaginn (sem var fyrsti fínveðursdagurinn) og það var fínt, en samt allt of mikið af fólki með derhúfur og bumbu. Við tókum bara rútu sjálf og vorum alltíeinu komin til Blönduós USA þar sem fólk var á einhverjum pííínulitlum rúnti á blæjubílum og einhverjar drósir í ýkt þröngum og skrýtnum stuttbuxum með klívitsj og gaurar með sólgleraugu í hárinu. Útaf góða veðrinu var garðurinn eiginlega troðfullur (var ekkert troðfullur í alvöru, en allt fólkið var í biðröðum) þannig að tilað komast í fyrsta rússíbanann biðum við í röð í 1oghálfantíma. Sem var alltílagi af því við erum svo skemmtileg, en hefði verið mjög leiðinlegt ef við værum annað fólk. Rússibaninn heitir Batman: The Ride og við elskulegu skötuhjúin vorum mjög dösuð og skrýtin eftir að ferðinni lauk. Við fórum fremst og sátum með dinglandi lappir, svo fórum við hææægt upp smá brekku og svo ALLT KREÍSÍ upp og niður og í hringi og á hvolf og ýkt krappar beygjur og upp og hægri og upp og svo stopp inní húsinu. ÞÁ fyrst kikkaði þetta inn og ég sat mjög skrýtinn á svipinn og horfði á Margréti ÷nnu og bara...svitnaði. Það frussaðist bara vatn útum húðina á mér í litlum perlum og ég glansaði einsog pússað stál og var mjög undarlegur. Hún var með pínu hár-útum-allt en samt mjög fín, en ég sat þarna algjörlega óþrútinn og órauður en geðveikt sveittur allsstaðar og leið mjög mjög undarlega. Við löbbuðum pínu skökkum löppum frá tækinu og leið hvorugu voðalega vel, en það tók mig alveg góðan tíma að fatta hvað hefði gerst í ferðinni.
Ég var ótrúlega nojaður yfir því að öllu klinkinu mínu og skóm, sólgleraugum og peningum myndi rigna yfir nærstadda þar sem við brunuðum af stað, þannig að ég talaði um hvernig ég myndi skorða allar eigur mínar í brókunum mínum örugglega í 40 mínútur (og prófaði meiraðsegja að geyma símann í nærbuxunum, en fattaði svo að ef ég myndi deyja þá væri asnalegt ef hann myndi hringja og einhver þyrfti að svara). Breiði rassinn minn sá til þess að allt var á sínum stað, nema svitastopp lífs míns sem týndist á leiðinni.
Við vorum ekkert voðalega að nenna því að standa í 2ja klukkutíma röðum fyrir hvaða rússíbana sem er, þannig að við borðuðum smá mat og nammi og kíktum á Kingda Ka risarússíbanann (sem var fáránlega stór úr fjarlægð, en bara skrýtinn þegar maður kemur nær). Hann var ekki í gangi, og hellingur af fólki (mjög mikill hellingur) búinn að bíða í röð í 3 tíma, og sumir búnir að sitja niðurólaðir í vagni í klukkutíma, á meðan staffið varað gera allskonar testsalibunur og próferí. Staffið er voðalega hrætt við að nota þennan bana í ófullkomnu veðri (þ.e. öllu nema glampandi sól og logni) og svo er hann glænýr og þeir vita ekkert hve margir geta drepist ef eitthvað klikkar eða hrynur. Þessi rússíbani er fáránlega stór og langur og víst voðalega fínn og merkilegur, en mér sýndist svúsjið taka um 25 sekúndur.
Eftir að hafa skoðað þetta hálf-klúður fórum við í Superman rússíbanann, þar sem ég beið í röð í klukkutíma (jesús hvað það var leiðinlegt) og horfði á kjamma og bleiknefja troða sér í röðina án þess að nokkur segði neitt, fyrir utan feitu exemuðu stelpuna við hliðina á mér sem tautaði og nöldraði um þetta í hálftíma og endaði á að rífast í kærastanum sínum, segja "don't...touch me..." og fara í fýlu. Var ég búin að segja að hún var feit með exem?
Í Superman rússíbananum situr maður einsog fljúgandi manneskja í stól, ef þið getið ímyndað ykkur það, þannig að bumban og andlitið snýr niður og maður horfir fram fyrir sig. Einsog Batman þá byrjaði þetta mjög hægt en fór svo HRATT og alltíeinu var ég staddur í miðri öfugri lúppu (með bumbuna uppí loft) og leið einsog ég væri að kúka sellói -- og var einmitt þannig á svipinn. Ég heyrði einhverskonar "HNNNGGGGHHHHH" hljóð berast útúr mér og fann að ég var eldrauður í framan, með ca þrefalt andlit af aðdráttaraflsþrýstingi. Þið getið ímyndað ykkur hvað ég varð glaður þegar að ég tók eftir flassinu og áttaði mig á því að það var tekin mynd af mér í miðju kafi, og það sem eftir lifði ferðarinnar hugsaði ég um myndina fyrir ofan arininn minn. Þetta var auðvitað geðveikt gaman og mikið svúsj og svings og ég var ýkt ánægður að hafa ekki dreift klinkinu mínu heldur í þessari ferð.
![]()
Við fallega og góða kærustuparið borðuðum mörg mörg kíló af sykri og sætindum, þ.á.m. ótrúlega gómsæta köku sem heitir Funnel Cake, og er eiginlega bara djúpsteikt deig með flórsykri, og svo borðuðum við Bit-O-Honey, sem er mjög chewy, og svo borðuðum við kók og hamborgara og franskar og M&M og vatn og pizzusneiðar, og allt þetta í bland við hringlið í rússíbönunum sá til þess að við vorum með pottþéttan maga- og rugliverk og vorum því að stynja til skiptis allt kvöldið. En við dönsuðum samt kungfu dans í myrkrinu á bílastæðinu við garðinn, ég hrækti á kakkalakka, hún sparkaði næstum því í stóra hausinn minn þegar hún gerði eitthvað lapparsveiflimúv, við löbbuðum í átt að rútubílstjóranum sem labbaði í burtu og talaði í símann og hvarf, og urðum ýkt hrædd þegar rútan okkar kom loksins og við héldum að hann ætlaði að keyra á okkur. Sem hann gerði ekki, heldur hló að okkur. Svo var spánverjalingur að hlusta á power ballöður á full blast í rútunni, og einhver kannski róni, við erum ekki viss, talaði eitthvað nýtt tungumál sem bílstjórinn virtist skilja. Þetta var örugglega enska, en kannski eitthvað glænýtt og skrýtið. Heitir kannski Mumlenska. Maður tekur bara úr sér nokkrar tennur, drekkur í 50 ár, sefur með rusl í fanginu, þvær andlitið á sér með háþrýstidælu og fer í mjög þreytt föt og þá ætti manni að takast að þvaðra svona.
Guð blessi Six Flags og rússíbanana (hah) og Funnel Cake og Bit-O-Honey og mangó mína og auðvitað mig.
Skilaboð (5)
Comment.
Skrifað 31.05.05 11:33
Comment.
Skrifað 31.05.05 11:33
Heyr heyr ;-)
Skrifað 01.06.05 00:49
hló upphátt. ein heima svo ég heyrði það óskaplega hátt. svona eins og þegar maður fékk Elíasbók í jólagjöf og las þær strax um nóttina. og hló upphátt.
Það man kannski enginn lengur eftir Elíasi.
Skrifað 04.06.05 06:12
Júúúhúú. Elías!!!
Skrifað 04.06.05 17:44