The Doors er ekki hljómsveit, heldur ógurlegur Flash-þrautaleikur sem spænir upp músinni manns.
Ég og mangó "$$$" mín erum búin að þræða búðir og sofa út einsog rónar. Fínt líf. Hittum Sigga í dag og hann var klæddur einsog hip&kúl mormóni. Sem er gott.
Mangó mín sagði að allar auglýsingastofur væru eins, það liti út einsog það væri aldrei neitt gert þar. Það er einhvernveginn ótrúlega satt, allir voðalega trendí að senda sms útí glugga eða spila fússball eða sitjandi í sófa með rjúkandi espressó eða að pikka inn ímeil eða að tala útlensku. Ekkert voðalegt stress, en samt geðveikt að gera. Þetta er auðvitað allt önderkover, þiðvitið, leikmenn skilja þetta ekki.
Ef ég borða lauk þá verð ég laukur. Er ekki að meina að ég bryðji nýskrældan lauk einsog epli, heldur borði bara tvær eða þrjár lauksneiðar inní miðjum mat. Það er ekki nóg með að andinn minn fýlist upp og verði laukandi, heldur lykta varirnar mínar líka af undarlegri Halla- og laukblöndu. Skil þetta ekki og fýla þetta enn síður. Mangó mín getur smjattað á hverju sem er án þess að lykta einsog eitt stykki svoleiðis eftirá, en ég verð bara ilmandi.
Við sátum inní stofu í gærkvöldi að horfá sjónvarpið og tókum eftir ferðatöskupung sem lá á gólfinu. Merkimiðinn sagði eitthvað undarlegt nafn og við giskuðum á að júllinn (= júðinn, en júllinn er kurteisara leynimál) væri með einhvern gest sem ætlaði greinilega að gista. Í einu af átjánþúsund auglýsingahléunum hljóp Mangó að pissa og ég fór eitthvað inní herbergi að vesenast, og á sama tíma komu júllinn og bróðir hans, Bróðir júlli, heim nokkuð ölvaðir og skakklappaðir. Ég brunaði inní stofu og stóð þar á meðan júllinn henti jakkanum hennar Mangó, fjarstýriningum, koddum og namminu okkar yfir í hinn viðbjóðssvefnsófann og á gólfið, og byrjaði að toga sófann út. Ég spurði hvað hann væri að gera, við hefðum verið að horfa á sjónvarpið, en hann maulaði útúrsér að hinn ætlaði að fara að sofa. Ég bjargaði dótinu okkar og stóð ansi ringlaður útá miðju gólfi og Mangó varð ansi mikið mikið reið og rauð í framan og fannst þetta, skiljanlega, ansi fáránlegt. Ég nennti ekkert að vesenast í þessu þá og við fórum bara inní herbergi einsog ráðvilltir unglingar og vissum ekkert hvað við áttum að gera. Greyið við, ekki satt? Eftir að þeir hækkuðu í sjónvarpinu og byrjuðu að glamra á gítara þá fannst mér þetta alltof fáránlegt og kallaði júllann inná bað til tala við hann um þetta og allt hitt ruglið sem er í gangi (punghárin, sagið, ruslið, uppvaskið o.s.frv.). Við töluðum saman heillengi, hann sagði fokkjú, við töluðum meira og svo var það búið. Hann var voðalega sorrý yfir því að hafa ruðst inní stofu, sagðist ekkert hafa vitað að við værum þar (!) og ekkert heyrt í mér þar sem ég stóð 12cm frá andlitinu á honum spyrjandi hvað hann væri að gera. Oh well, hvað á maður að gera, hann er jú bonafide júlli.
EN, það skemmtilega er að fyrir þremur dögum sátum við sæta og fallega kærustuparið inná baði að tannbursta okkur fyrir væran svefninn. Þar sem ég naut bragðsins af vanillutannkreminu mínu fann ég fyrir einhverjum hringlandi viðvörunarbjöllum djúpt inní hjartanu mínu. Það var eiiiitthvað pííínuskrýtið við þennan tannburstunaratburð, en ég vissi ekki alveg hvað það var. Ég leit á Mangó mína og á vatnsbununa og ákvað svo að taka tannburstann út úr mér.
Þetta var tannbursti júllans.
Ég fann hvernig líf mitt þaut í gegnum huga minn sem ótalmargar pínulitlar ljósmyndir, og hvernig blóðkornin storknuðu í hjarta mér. Ég sleppti tannburstanum í vaskinn og lét vatnið bara leka uppí munninn á mér, og passaði að láta tunguna ekki snerta tennurnar, og tennurnar ekki snerta kinnarnar, og kinnarnar ekki snerta góminn. Ég held að mér hafi sjaldan liðið jafn illa, þetta minnti mig á þegar ég saup af spræti einhvers gaurs í bíó einusinni og smakkaði fullorðinskók uppí sumarbústað alveg óvart. Greyið, greyið, greyið, greyið ég sprautaði hálfum lítra af tannkremi á minn tannbursta og burstaði mikið mikið mikið og mangó mín hló og vorkenndi mér. En hló.
Ég er ennþá með allar tennurnar mínar og hef hvorki pissað blóði né fundið risaskallabletti. En ég komst hinsvegar að því að Róbert Aron, a.k.a. Dj Rampage er búinn að hanna baðfatalínu fyrir dömur og erað selja hana í Macy's. Go Chronic Bikiní!

Skilaboð (13)
sæll halli. ég er hulli. heyrðu mig nú. ég hef tafið för mína til móður þinnar of lengi. hvar býr hún? ég vil vita það.
minn nýji emaill er hugleikur@gmail.com.
takk fyrir og gangi þér vel.
Skrifað 25.05.05 09:09
ha ha ha ha. tannbursta sig med jullatannbursta. thetta er thad fyndnasta sem thu hefur skrifad. eg sit herna heima, i nyju graenu brokinni minni, med beiglada bumbu, ad hlaegja upphatt af blogginu thinu. thu munt breytast i julla, eg er pottthettur a thvi.
Skrifað 25.05.05 09:57
Jeminn, kyssirðu hana Mangó með þessum munni? Ég á ekki orð.
Skrifað 25.05.05 14:25
ehe - með tannbursta sem kannski hefur aldrei náð að kroppa matvæli úr munni Júlla, gamlar pulsur sem kannski voru komnar langt fram yfir síðasta söludag.......
Ég hló krampamagahlátri.
Ástarkveðjur.
S
Skrifað 25.05.05 19:09
Ég veit, ég veit, ég er búinn að þjást heilmikið af innvortis áhyggjum síðan þetta gerðist. Ég held samt að ég hafi sloppið við skemmdir, svo er mangó mín búin að hjúkra mér og stappa í mig stálinu. Við værum líka hvortsemer bæði dauð úr júllasýki.
Oj gamlar pulsur með júllabragði.
Við fallega kærustuparið vorum samt að hugsa um að fá okkur svona júllakollhúfur og vera með þannig ósköp eðlileg á svipinn þegar júllabræðurnir koma heim, og heilsa þeim með vænu og hressilegu "acchaiim" eða hvað sem þeir segja. Nú, eða sauma gular stjörnur á ALLAR flíkurnar hans. En það er kannski ekkert fyndið.
Skrifað 26.05.05 14:41
ég finn þig..
...ég lenti einmitt í svona einu sinni.. maður er að bursta tennurnar en það er ekki allt með felldu og mar svona hmmm hvað er öðruvísi..
þá fattaði ég að ég var að nota tannbursta tengdapabba
úff fæ ennþá hroll við tilhugsunina
Skrifað 26.05.05 16:23
Tannbursti Júllans.
Ég hló.
Reyndar deildi ég eitt sinn íbúð í næstum hálft ár með manni að nafni Julian. En það er önnur saga sem ég skal segja þér þegar þú mætir í Popppunkt.
Skrifað 27.05.05 18:29
hurðu ég er föst í viðjum doors. kann einhver kóðann á bakvið málverkið eða eitthvert trix til að komast í R2? ég er búin að safna í teninginn og er með 2 spil og tvær bréfatætlur en er föst.... um leið vil ég segja, fagurt honey bunny myndbandið, í hvaða forriti vannstu það? júlla
Skrifað 29.05.05 17:45
Þú finnur kóðann ef þú pælir í því hvernig þú skrifar þessa bókstafi stundum.
Og takk, ég gerði Honey Bunny í After Effects.
Skrifað 30.05.05 12:38
gettu hvern við hittum í istanbul
http://plastiklove.com/turk/
Skrifað 30.05.05 18:28
heyrðu nú mig, koddu og búðu með mér, mig vantar rúmmeit... ég borða ekki útrunnin mat og á ekki við alvarlegt hárlos að stríða þannig að ef þú skyldir ruglast á tannburstum þá verða engin alvarleg innvortis eftirköst... ha? ha? ha?
Skrifað 30.05.05 19:40
Þú finnur kóðann ef þú pælir í því hvernig þú skrifar þessa bókstafi stundum.....
HVA– MEINAR–U! HVA–A BÓKSTAFI!!! ég er alveg blank. viltu gefa mér annað hint?
kveðja júlla
Skrifað 31.05.05 09:36
got it!!
Skrifað 31.05.05 09:46