BÚINN í skólanum. BÚINN með fyrsta árið mitt í háskóla og líður mitt á milli þess að vera fimmtugur og nítján ára.
Margrét Anna kom laugardagskvöldið og við fórum beint á KFC og keyptum bissgits sem hana er búið að dreyma um síðan síðasta sumar. Á sunnudeginum var ég heima að reyna að gera tvær ritgerðir á meðan hún fór ein í ferðalag um New York. Henni gekk betur en mér, bæði tókst henni að kaupa margt mjög fínt og finnast þetta ekkert mál, á meðan ég sat sveittur á nærbuxunum að klambra saman ritgerðum sem ég kláraði svo ekki fyrr en morguninn eftir. Hún kom svo með mér í síðustu tímana á mánudeginum og fékk að heyra hve oft sumar bandarískar stelpur segja "like...um, like, whatever..." þúsundsinnum og hvernig röddin þeirra endar í einhverskonar krönsji. Ég gaf kennurunum mínum grænal Ópal sem skilnaðargjöf og "ensku"kennarinn minn (þetta heitir critical reading & writing) sagði mér að ég fengi prumpueinkunn. Ég á það örugglega skilið, þrátt fyrir að gefa henni Ópal og vera sá eini sem talar reglulega í tímunum (og talar mikið), því ég var seinn að skila báðum þessum ritgerðum sem ég varað gera um nóttina, og missti af 3 tímum. En ég er svo skemmtilegur að ég ætti að fá ekkiprump.
Margrét Anna fór svo og hitti Dagbjörtu ("it ain't over till it's ooovaaaah") vinkonu sína, og þær versluðu einsog mongólar á meðan ég sat heima í krumpi og brosti yfir því að vera búinn. Alveg algjörlega búinn. Það var frekar góð tilfinning að eiga ekkert eftir, mér leið reyndar einsog ég þyrfti að mæta aftur í skólann næstu daga, því þessi tilfinning minnti mig bara á föstudagsþreytutilfinningu þar sem ég fæ það í andlitið á sunnudeginum að ég hefði átt að vera duglegur á laugardeginum þegar ég svaf og var krumphaus. Kannski mér takist að spara andvökunæturnar á næstu önnum þangað til ég eignast barn og fer að þrífa gubb og syngja frumsamin barnalög um miðjar nætur. Það verða mjööög skemmtileg lög, ég lofa.
Fékk svo ímeil frá kvikmyndahátíðargaurnum sem sagði mér að New York dansimyndin mín verður á næstu hátíð þann 5. júní. Þetta er reyndar engin grand hátíð, bara eitthvað low-key dóterí, en mér finnst það samt fáránlega gaman því þetta er ekki eitthvað sem ég var að plana. Hátíðin heitir First Sundays, og ef þið verðið í New York þá verðiði að mæta og klappa og flauta og henda poppi og konfekti. Ekki konfettíi, heldur gómsætu konfekti.
Hér eru tvær af myndunum sem ég gerði:
New York Minute and 4 seconds
(tónlist eftir Fantastic Plastic Machine)
og
Honey Bunny
(einskonar myndband við lag eftir Vincent Gallo)
Leigusali Sigga vill ekki trúa því að ég sé straight, en hey, maður þarf ekki að vera gay til að geta dansað einsog...ég.

(ég og Margrét Anna erum að DEYJA úr spenningi yfir því að fara í Six Flags rússíbanagarðinn. Förum líklega á föstudaginn eða í næstu viku eða eitthvað...okkur er eiginlega sama á meðan við förum. Bráðum opna þeir Kingda Ka, STÆRSTA og HRA–ASTA rússíbana Í HEIMI!!! Sjitt. Hér er vídjó sem sýnir hvað þetta verður gaman, en þetta er einhver leiðinda mms-vídjófæll sem er streaming. Bla bla)
Skilaboð (7)
Góðan daginn hvað ég á eftir að fara í þennan rússíbana einn daginn!!
En halli ... gerðu eitt. Laumaðu með þér myndavél í kvikindið og smelltu af þegar rússíbaninn nær á toppinn. Kodak moment dauðans :D
Skrifað 19.05.05 04:30
Til hamingju með að vera búinn með árið ! og ég verð að hrósa þér fyrir þessi vidjó, grét úr hlátri yfir new york minute og honey bunny fannst mér rosalega flott!keep up the good work :)
Skrifað 19.05.05 11:17
Heh, já væri til í að taka mynd, en er hræddur um að missa myndavélina eða bara frjósa og þora ekki. Rússíbaninn er bara 50 sekúndur og ég vil ekki missa af þessu. En þá fer ég bara aftur.
Ætli þetta sé betra en Tívolíið í Eden?
Takk Bryndís! :)
Skrifað 19.05.05 12:46
Næstum því jafngóður dansari og Siggi Magg.
E-mail takk
Skrifað 19.05.05 18:06
Six flags: Ójá, muna taka auka t-shirt ef ætlað er að fara í blautt ride..hmmm..Bið heilsa Bugs..Ofsa flott myndband, tár komu eftir "postera" atriðinu..úff
Skrifað 19.05.05 22:41
Ó... MÆ.... GOD.....!!!!!!! Hvað ég mundi ALDREI þora að fara í þennan rússíbana. Þú ert hetja í mínum huga ef þú ferð :) úffff... það var bara nóg að horfa á videoið, búin að fara ;) *gubb* afsakið.. ætla að "fara" aftur :D víííí
Góða skemmtun!!
Skrifað 20.05.05 07:51
Halli, þú ert aðaltöffarinn. Þetta eru ógeðslega flott vídeó. Mér finnst þú kúl.
Skrifað 04.06.05 06:05