« Fjölskylduást | Aðalsíða | Bissgits...STRAX! »

Babbidíbú

(skrifaði þetta 9. maí þegar ég hélt að allt væri í lagi, en svo var það ekki í lagi, en er í lagi núna...)

...loksins loksins loksins loksins er þetta elskulega blogg hætt að vera bilað. Hef ekki hugmynd hvað var að, en ég gat ekki snert það, kommentin voru brjótt og ég gat ekki loggað mig inn og endalaust vesen.

Iss internet.

Það eru sex dagar eftir af skólanum (tel helgina með) og þá er ég offisjallí búinn með fyrsta árið. Þá fæ ég skegg og svoleiðis. Er farinn að hrakka skrambi mikið til að klæðast útskriftardressinu með hattinum og mussunni, held ég verði ansi fínn í skærrauðu svoleiðis dressi. Það er eftir 3 ár, bara til að forðast allan misskilning. Það er ekki sprell á hverju ári, þó þetta séu útlönd.

Finnst að Listaháskólinn eigi að taka þetta upp líka. Það er algjörlega fáránlegt að hönnunargemlingarnir séu í gallabuxum og konvers. Þeir eiga að vera í glansandi mussu með fínan hatt. Veit einhver hvað þetta dress heitir? Útskriftarbúningur?

Ég er mjög þreyttur. Var að klára vídjóverkefni í alla nótt, en það var vel þess virði. Ég var nr. 2 í röðinni í krítík í vídjókúrsinum mínum (í í í í í) og vildi að sjálfsögðu vera með best. Ég gat loksins fengið Sigga til að hjálpa mér að taka dansivídjóið mitt og það tókst fáránlega vel. Ég sprengdi helling af háræðum og svitnaði pínulítið, en það var allt fyrir frægðina og frelsið sem fylgir því að dansa einsog lávarður ljóssins. Ég lagaði líka Honey Bunny vídjóið mitt, sem er "textavídjó" sem ég gerði við fína lagið hans Vincents Gallo. Sýndi líka montage-vídjóið, þá vitiði um öll þrjú! Textavídjóverkefnið sem ég gerði var reyndar alls ekkert textaverkefni í þeim skilningi sem ég átti að skilja. Ég ákvað að gera mynd-útgáfu af textanum, mjög literal (bókstaflega) og alls ekkert flipp. Engir dansandi hamstrar með gítara, og engin skinka og vaxlitur. Bara það sem Vincent Gallo segir í laginu. Dansimyndbandið ("New York Minute and 4 seconds") er mjög fínt og einn gestakrítíkerinn sagði að honum fyndist þetta mjög flott og spurði mig hvort ég hefði notað prófessjónal dansara! HAH!

Og enn betra: annar gestakrítíkerinn er með einhverskonar kvikmyndahátíð eða -sýningu og gaf mér nafnspjaldið sitt og vill sýna dansivídjóið og Gallo. HAH! Og ég er sá eini sem hann talaði við.

Og enn enn betra: kennarinn minn og annar krítíkeranna þekkja Gallo, og þekkja líka konu sem leikstýrði myndum með Gallo, og þeir ætla að sýna honum vídjóið! HAH HAH!!!

Sjit hvað ég þurfti eitthvað svona fyndið.

Nú ætla ég samt að læra svo ég geti sofnað snemma og hringt til Íslands. Set linka á vídjóin bráðum, og blaðra svo helling meir.

Skilaboð (5)

Virkar, jey.

gunnipalli:

yoyoyoyoyoyoyo
ég veit ekki hvort ég mátti sjá vidjóið en new york minute er mjög fyndið.con grat

Auðvitað máttir þú sjá það! Hah!

Er enn að hugsa um Íraska vídjóið sem við ætluðum að gerast heimsfrægur fyrir...fáum örugglega Friðarverðlaun Nóbels...

En nú pósta ég linkum á vídjóin...!

hehe hrakka:)
dansi vídjóið er æði! ég setti það í xboxið og sýni svo öllum dönum sem koma í heimsókn "sjáðu hvað ég á fyndinn vin.. sem er líka svona klár að dansa" og allir klappa

Haha, sjit, vissi ekkert hvað þú varst að meina með "hrakka" en sá það núna. Hah!

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 09. maí 2005, kl: 20:06.

Fyrri færslan er Fjölskylduást.

Næsta færsla er Bissgits...STRAX!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31