« Hristikombó | Aðalsíða | Dyrnar ógurlegu »

aaaaæææææj...

Greyyyyyyyyyið Selma og allir hinir. Og greyið Kitti líka.

Ungverjaland, Makedónía, MOLDAVÍA (hvar svo sem það er!), Rúmenía, Króatía og Lettland komust áfram, enda öll jafn hipp og kúl og Ísland??? Eða...?

Moldavía? Haha, sjit hvað það er fyndið. Moldavia Airwaves er ein heitasta tónlistarhátíðin í heiminum í dag, allir fara þangað, bæði Rod Stewart og Michael Schenker.

Auðvitað var ekki sjens að þetta lag og þessi hópur ættu sjens í Moldavíu eða Rúmeníu í ár!

Hér í New York er undirbúningurinn á fullu og búið að fá lögregluþjóna frá öllu fylkinu sem backup, og þjálfa allskonar SWAT team og þessháttar til að berjast við trylltan lýðinn sem mun ryðjast útá göturnar eftir að keppninni lýkur. Ég og mangó mín erum ýkt stressuð og búin að kaupa fína hjálma og piparsprey.

Gvuð hjálpi oss.

Skilaboð (5)

Djös mafían ræður öllu þarna í austantjaldslöndunum!! ÷ll sæti voru "pre-payed" og hana nú ..........

fiðrildi:

Æi já mér fannst Selma nú alveg eiga það skilið að komast inní lokakeppnina.... stóð sig með prýði stúlkan. En já ég er sammála með mafíuna!! Þetta er allt pre-payd mar¥... hættum þessu bara, notum peningana í e-h annað.. þetta er að verða bara leiðinlegt!!.. eða kannski bara löngu orðið það. Allir að skila snakkinu sem þeir keyptu fyrir júróvision partýin annað kvöld :D ææææææ....

Njörður:

Er ekki komin tími til að við föttum að þessi keppni er hið mesta prump sem til er. Þetta er hvort sem er svo mikið djók að þeir sem keppa fyrir okkur eru hlæjandi þegar þau komast ekki áfram.
Ég legg til að við sleppum Júróvisison, sleppum Idol og sleppum Það var lagið með Hemma Gunn. Ef þig langar að sjá fólk syngja farðu þá á fokking tónleika.
Að keppa í söng er eins og að keppa í fegurð, ekki hægt. Celine Dion á að vera góð söngkona en mér verður íllt þegar ég heyri í henni. En líður vel að heyra David Ivar Herman Dune syngja, ráðandi ekkert við tónstigan.

P.S.

Fokkið ykkur í rassgat ef þið eruð ekki sammála.

ég held reyndar að selma hafi ekkert hlegið.. ég meina hún hefur pottþétt verið viss um að vinna því eftir að hafa orðið í 2. sæti þá tekur mar ekki þátt nema maður trúi því að maður vinni.. þykist bara hlægja til að reynað halda kúlinu....

ætla ekki að fokka mér í rassgat samt...

Það finnst ekki vottur af kaldhæðni í þessari færslu þinni Halli minn:)

Ég er samt alveg sammála þér....Mér er sama um öll hin löndin, en að MOLDAVÍA hafi komist áfram en ekki við er óheyrilegt!!!!

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 20. maí 2005, kl: 00:11.

Fyrri færslan er Hristikombó.

Næsta færsla er Dyrnar ógurlegu.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31