« Kitti sér vonandi að sér... | Aðalsíða | !!! »

Skrímslaskipti

Þetta er skemmtilegt. Krakkar í háskóla teiknuðu skrímsli með leiðbeiningum um hvernig átti að teikna þau. Svo fengu krakkar í 4. bekk leiðbeiningarnar og teiknuðu sín skrímsli eftir þeim.

Skrímslaskipti

Mér finnst þetta sniðugt. Bæði fyrir háskólakrakkana og litlu krakkana. Finnst að það eigi að gera svona á Íslandi á hverju ári. Allir ættu að teikna skrímsli af og til. Það er gott fyrir sálina og hjartað, og það er gaman.

Allir sem lesa þetta eiga að teikna skrímsli og senda mér, og svo safna ég öllum saman og set í gallerí. Okei? Flott. Sendið skrímslið (eða skrímslin) hingað. Ef þið teiknið það á blað getið þið bara tekið mynd af blaðinu, eða skannað það inn. Ef þið getið ekki skannað inn eða tekið mynd, þá getiði bara sent mér skrímslið í pósti. Já, það er gaman.

Haraldur Agnar Civelek
79 Allen St, apt 2A
New York, NY 10002
USA

Komaso!

Skilaboð (7)

Bob:

Mér finnst skrímslin sem litlu krakkarnir teiknuðu miklu flottari en skrímslin sem stóru krakkarnir gerðu. Jæja, ég hef ekki tíma fyrir þetta rugl, ég er farin að teikna skrímsli...

Hæ halli - ætla að reyna að koma því við að teikna skrímsli f. þig við tækifæri en hvað með svín? http://drawapig.desktopcreatures.com/reviewDONE.asp?id=34835

mér finnst svín ansi ógnandi

oh ég hélt þú myndir gefa leiðbeiningar um hvernig skrímsli á að teikna, það er miklu skemmtilegra!

Ég er sammála með að krakkaskrímslin séu miklu skemmtilegri.

Svín eru ókei, á meðan að þau eru skrímslaleg.

En nei, engar leiðbeiningar, bara búa til.

Og maggabest sendi mér skrímsli strax. Það er ýkt fínt. Og skerí!

I'm on it.

hvað með mitt? er mitt ekki skerí?????

Júts!!! Það er risa! Og með kylfu!!! Jiminn!

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 07. apríl 2005, kl: 17:50.

Fyrri færslan er Kitti sér vonandi að sér....

Næsta færsla er !!!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31