Vá, ég veit það ekki. Slo Mo, the Rappin Retard? Er það framtíðin? Mér líður pínu illa. Fannst Wesley Willis a.m.k. vita eitthvað hvað hann var að gera...
Svo er það hinn stórkostlega skrýtni David Firth. Vá. Hann býr til teiknimyndir sem eru mjög mjög mjög mjög mjög undarlegar. Mjög. Salad Fingers er gott dæmi um það. Hann er með vefsíðu með allskonar dóti og notar orðið "smell" mjög mikið. Púff.
Ég er með rugliverk í hausnum og vona að mig dreymi eitthvað eðlilegt. Og já, mig langar enn mjög mikið í PSP. Finnst samt ansi mikið að borga um tuttuguþúsund fyrir tölvuspil, því þó þessi græja sé með möguleika á að horfa á kvikmyndir og hlusta á tónlist, þá er ekki menu með myndunum heldur verður maður bara að ýta á >> (og svo kosta myndirnar um $30, sbr. DVD sem er með menu, aukaefni & allskonar og kostar um $19). Ef maður vill eiga ágætt músíksafn þarf maður svo að kaupa t.d. 2GB minniskort sem kostar um $450, á meðan 6GB iPod Mini kostar $250. Það eina sem er eftir og meikar sens er því að spila tölvuleiki, sem er samt mjög sweet á þessum fína fína skjá, með þessum billjardteppafíling undir og...mmm...en þetta er dýrt.
En mig langar samt.
Hefði t.d. getað keypt mér vatnshelt vasadiskó en fékk mér iPod. Hefði líka getað keypt mér talstöð en keypti mér gsm. Hefði svo getað keypt mér teikniblokk og blýant, en fæ mér PSP. OK???
En ég skil ekki ennþá mongórappið. Sérstaklega afþví að rapparinn er algjörlega óskiljanlegur. Og svo er Pamela Anderson að leika í nýjum sjónvarpsþætti sem heitir Stacked og gerist ó ótrúlegt en satt ó í bókabúð. Of mikið af rugli.

Skilaboð (6)
Pamela Anderson kann ekki að lesa.
Skrifað 11.04.05 06:49
halli sinn...bíddu rólegur....ekki kaupa allavega fyrr en eftir 14.maí. :)
Skrifað 11.04.05 07:58
Þú þarft ekkert á PSP að halda þó svo þú sannfærir þig um það ;-)
Skrifað 11.04.05 11:06
Eg veit...allt satt. Skal bida rolegur mango sin... :) eda a.m.k. reyna thad...
Skrifað 11.04.05 13:54
halli, vid pontum 2 psp a eftir.
faum thad svo i kvold, og keppum i alla nott.
dill
Skrifað 11.04.05 16:11
http://www.amandaegge.com/schiavo.htm
en ég skil ekki af hverju þúrt einu sinni að velta því fyrir þér að kaupa þetta:| af hverju myndi mar EKKI kaupa svona?? þetter svoooo sniðugt
Skrifað 12.04.05 11:35