« Kitti sér í gegnum mig... | Aðalsíða | Skrímslaskipti »

Kitti sér vonandi að sér...

Selmu-loverar þekkja ekki almennilega kvenmenn. Það segir sig sjálft.

Þeir ættu því að spara alhæfingar (!) um kærustur og almennilegheit. Kærastan mín er nefnilega ekki bara almennileg, heldur mjög svo frambærileg á margvíslegan og móðins hátt. Orð mín koma því ekki vegna biturleika, heldur samanburðar á því sem er gott í lífinu og því sem er prump, frat o.s.frv. Kitti er greinilega heilagur verndari prumpsins. Heill sé þér, heillin.

Hér er annars flashverkefni sem ég gerði fyrir skólann minn. Ég átti að láta kall labba, og lét hann labba. Kann ekki mikið flash, þannig að ég söng fyrir kallinn þemalag:

(spilið með hljóði)

Skilaboð (15)

mangó sín:

hi hi halli sinn :)

fiðrildi:

HaHaHa... þú ert ótrúlega sniðugur og fyndinn melur! Algjör snillingur.. og líka mjög smooth hvernig þú svaraðir Kitti ;o)
alltaf gaman að lesa bloggið þitt.

haha skemmtilegur gaur!

Bob:

dabbadabbadabbadabbadabbadabbadabba-dabb-dabb-daa!!

dóra:

...eeee þú ert enn bitur út í íslenskt kvenfólk, þó þú svo laumulega hafir komið því að að þú eigir kærustu, til hamingju með það.

Heh, já, takk fyrir það.

En hvernig er ég bitur og afhverju finnst þér það? Verð ég að fara í Smáralind og líða vel til að vera ekki-bitur? Verð ég að ljúga og segja "nei, þið eruð allar mjög ólíkar og gætuð verið frá Indlandi"?

En ef ég segi að íslenska rollan sé vitlaus og alls alls ekkert bragðbetri en rollukjöt í Chicago eða New York. Landráð?

En ef ég borða ekki fisk nema hann heiti Sushi og sé með útlensku bragði?

En ef ég þoli ekki Spaugstofuna, Ópið eða Þingsjá, en fíla Arrested Development, Amazing Race og Nip Tuck?

Hata ég þá Ísland?

Sko, ég sagði aldrei "konur eru svín". Það er konumál. Ég sagði bara að bæði Júróvisjón lagið sem og -hetjan eru ekki voðalega djúsí. Og að bogar væru skrýtin tól.

Kannski er ég bara bitur útí Júróvisjón. Hubba Hulle varð aldrei nógu vinsælt hér heima.

fiðrildi:

Áhugaverð umræða... þetta með týpur. Málið er nú líka það að eins og í NY þá er svo gríðarleg flóra af fólki og margar týpur komnar saman. Til að mynda svertingjar, asíubúar, arabar, hvítir og svo framvegis.... það er svo miklu meiri fjölbreytni með fleira fólki þannig að þú verður kannski meira var við þetta á íslandi að "flestir" séu steyptir í sama formið.. týpulega séð :).. æi kannski er ég ekki að gera mig almennilega skiljanlega hérna.. en allavegana er ég búin að koma þessu frá mér :)
Þú rokkar!

já, sammálá þér þetta með Hubba Hulle!

Hubba Hulle varð stórvinsælt í minni fjölskyldu. Við syngjum það stundum í boðum. Við erum þannig fólk ...

Ég held að Halli sé ekki bitur út í íslenskar konur. Ég held að hann sé bitur út í M&M.

Þar á móti held ég að fólk sem kallar fólk biturt sé biturt.

Halli er kosmó. Halli á mjög sæta kærustu sem hann kallar Mangó. Halli þolir ekki júróvisjonlagið og finnst það hallærislegt. Honum finnst líka Selma vera úr takt við þetta unggæðingslega hopp af því hún er svo gömul MI–A– við alla hina í myndbandinu. Halla finnst íslenskar stelpur vera mjög einsleitar. Ég tek undir það. Strákarnir eru það reyndar líka. Þeir eru allir með kolvetnaýstru og minna á Elton John. Nema ef þeir eru tjokkó. Þá eru þeir bara tjokkó og við vitum öll hvernig þeir líta út. Fólk getur verið svo hörundssárt eitthvað. Segðu Kittí að hoppa upp í rumpinn á sér og loka og koma svo út þegar hún getur sagt eitthvað af viti.

Takk.

Ég lít ekkert út eins og Elton John! hættu að vera svona bitur Magga!

kitti:

Þú fattar ekki maggabest að hann er líka að dissa þig...eða ert þú ekki íslensk????

Hah, Kitti, þetta er ekki alveg að virka hjá þér.

Ég sagði "íslensku klónin" um stelpurnar í myndbandinu. Ef þú hefur farið inní Seytján eða Smáralind eða tekið strætó þá tekur þú eftir því að meirihluti íslenskra stelpna lítur eins út. Ekki bara líffræðilega, heldur er það líka hvernig þær klæða sig, klippa sig, tala o.s.frv.

Eitt sumarið er það pils yfir gallabuxur, næsta sumarið er það svartur bolur með síðari gulum bol undir...og þá eru ALLAR stelpur þannig.

Þetta eru stelpurnar sem eru eins.

Það var t.d. heilsíðuauglýsing i Mogganum með bestu Kaffibarþjónum Íslands. Tvær stelpur og einn strákur, öll með eins klippingu: toppurinn missíður til hliðar, og sítt að aftan.

Það er að vera eins.

Ef þú ert ekki eins þá þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur. Og þó þú sért eins er líka óþarfi að vera með áhyggjur, þú ert greinilega oblivious hvortsemer.

Lestu bara aftur allt sem er búið að segja um þetta mál á síðunni minni og pældu svo í því hvað það þýðir á meðan þú röltir um Smáralind.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 06. apríl 2005, kl: 01:31.

Fyrri færslan er Kitti sér í gegnum mig....

Næsta færsla er Skrímslaskipti.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31