« Hmm... | Aðalsíða | Kitti sér vonandi að sér... »

Kitti sér í gegnum mig...

...einsog götóttan ruslapoka.

Fékk þetta komment á Júróvisjónhatrið mitt, og langaði að deila því almennilega með heiminum.

"Vá er einn bitur út í íslenskt kvenfólk? Týpísk ræða frá íslenskum karlmanni sem fær ekki almennilegan kvenmann og er þá farinn að dissa allar íslenskar stelpur og alhæfa...ömurlegur ertu!"
- Kitti, 5. apríl 2005

Það sem er sárast við svona komment er hvað Kitti sér algjörlega í gegnum mig. Ég er greinilega svona hrikalega glær. Þetta er allt rétt. Allt.

Förum samt aðeins yfir þetta.

Hér er Selma. Mér þykir alveg vænt um hana. En er hún ung og spræk? Nei, ekkert voðalega.

Hér eru keppendur í Ungfrú Ísland árið...vá, ég veit það ekki.

eins

eins

eins

Ég prófaði nokkur gleraugu en sorrý Kitti, ég sé bara engan mun.

Við erum eiginlega svona:
vid.jpg

÷ðruvísi, samt eins.

Og fyrirgefðu að ég skildi traðka svona á bogfimi. Ég gekk of langt.

Skilaboð (9)

Hahahahaha!
Það ætti að halda keppni í því hver er mest eins!

Einsleitningur ársins 2005 er...

Hah!

Og það getur verið spegill í verðlaun.

Ég var 12 ára þegar ég var í júróvísíon....ER ÞA– NÓGU UNGT FYRIR ÞIG? ;)
Frábær samlíking á hvað þessar píur eru samdauna, ánægð með þig, ekki segja mér að fyrir utan það að vera sniðugur ertu hugsandi feminsti líka?

sjittafokk ég hélt þetta væru bara 2 stelpur:O óóóóóóótrúlegt!

mangó sín:

hrmpf!!!! ..almennilegan kvenmann!!!! ?? ;)

Að kalla Selmu "aldraða" (af því hún er komin yfir tvítugt?) var pínu spes. Ég veit ekki hvað Selma er gömul því ég les ekki Séð og Heyrt en held alveg bókað að ég sé eldri en Selma án þess að skilgreina mig "aldraða". Það er svona eins og að kalla þig Halla litla ...

Kudos fyrir M&M samlíkinguna (snilli litli). Ég hélt líka fyrst að þetta væru tvær stelpur. Maður sér þetta skýrast þegar maður kemur heim frá NY. Ég hélt einu sinni að ég hefði séð sömu stelpuna fjórum sinnum á sama degi. Sá hana þrisvar í Reykjavík og einu sinni á Akranesi.
Það eru líka einhvern vegin rosalega margar konur með sömu klippinguna ... svona stutt eitthvað í styttum og strípum og voða margar af þeim búa í Grafarvogi.
Ég held það sé ein týpa af íslenskum konum í fegurðarsamkeppnum ... alls ekki öll flóran svo mér dytti seint í hug að móðgast fyrir hönd íslensks kvenfólks.
Mér finnst M&M samlíkingin frábær.

Já, ég veit að Selma er ekkert gríðarlega gömul, og í mesta lagi 2 árum eldri en ég.

En það er aðallega í þessu myndbandi sem hún er eitthvað svo...gömul. Allir aðrir mjög ungir, næstum því unglingar, og svo hún, söngvarinn, eitthvað að tralla með og vafra um með boga drepandi gamlar konur og allt eitthvað skrýtið.

James Bond er ekkert voðalega gamall þegar hann hangir með M, Q og öllum erkióvinum & glæsipíum. En troddu honum inní American Pie, og þá er hann frekar asnalegur. Þó hann sé í smóking.

Kristleifur:

Ótengt efninu, en þetta með Bond og smókinginn minnti mig á:

Flugur eru ekkert ljótar. Það er ekki fyrr en þær eru að éta mannaskít að þær eru það. Við gerum þær ljótar. Við erum ljótust.

Annars fékk póstið þitt mig til að tékka á Eurovision og hef skemmt mér stórlega yfir myndböndunum. Er komin að Latviu. Hef bara ekki fengið svona mikið út úr Júró í áraraðir.

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 05. apríl 2005, kl: 13:46.

Fyrri færslan er Hmm....

Næsta færsla er Kitti sér vonandi að sér....

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31