
Er Selma að reyna að vera þessi?

Ég veit að það er ekkert voðalega kúl að dissa Júróvisjón, en þetta lag er fáránlegt drasl.
Ég varað hlusta á það í fyrsta skipti, og það er akkúrat einsog lögin sem við, hin "svala" þjóð, erum að hlæja að á hverju einasta ári: einsog austantjaldsþjóð sem rembist við að vera mest móðins að vestan.
Selma (greyið) er einsog Brigitte Nielsen, undarlega öldruð fyrir þennan pakka (og í gvuðanna bænum þið pródúserar og leikstjórar: hún er kryptónít allra karlmanna með kynlöngun). Hápúnktur þessa ömurlega klisjumyndbands er þegar við sjáum öll Reykjavíkurklónin -- þ.e. þessar síðtoppuðu stelpuskjátur í fínu Seytján-flíkunum -- dansa toppsveiflandi hópdans í kringum sveittan og glansandi öldunginn. Þær eru algjörlega eins og allar aðrar stelpur á Íslandi, kannski búnar til á Keldum úr pólýester og hárlengingum. Við getum hætt að setja lunda á póstkort, þessar beyglur eru jafn mikið ædentífæing fyrir Ísland einsog svið, skyr og kletturinn með gatinu í.
Þessi pakki lítur út fyrir að hafa verið búinn til úr forriti sem heitir Hitmaster eða eitthvað svoleiðis, þar sem að þú velur stíl, taktslög á mínútu, og hvernig klisju þú vilt. Svo er ýtt á "generate" takkann og við fáum Júróvisjón lagið 2005.
Og hvað í fjáranum er í gangi með þennan boga? Og þurfti endilega að drepa einhverja gamla konu með stól í fanginu? Var ekki alveg eins hægt að drepa litað barn með gláku?
Djöfulsins drasl. Skamm!!!
Ég vona að Tyrkland vinni.
p.s. flott hjá RÚV að skrifa Slóveía. Fávitar.
Skilaboð (3)
Vá er einn bitur út í íslenskt kvenfólk? Týpísk ræða frá íslenskum karlmanni sem fær ekki almennilegan kvenmann og er þá farinn að dissa allar íslenskar stelpur og alhæfa...ömurlegur ertu!
Skrifað 05.04.05 11:25
Djöfull...þú sást alveg í gegnum mig.
Er ég í alvörunni svona glær??? :( :( :(
Skrifað 05.04.05 12:47
Amen til Halla... Baul á kitti.
Skrifað 06.04.05 07:18