
Vá, fattaði þennan leik loksins í gær. Var búinn að sýna helling af fólki og það sátu ca 15 manns húkkt við tölvurnar að reyna að fatta. Og alltaf þegar einhver fattaði varð ég meira og meira pirr og ánægður með að vera svona gáfaður.
Ef þú smellir á neðri linkinn þá segir leikurinn þér hve oft þú ert búinn að reyna og hvernig þér gengur. Ég var búinn að reyna 150 sinnum áður en ég kom uppí skóla og reyndi ca 250 sinnum þar áður en ég gat, samtals 400 skipti. Einn vinur minn náði í post-it miða og krotaði á þá tilað reynað finna lausnina og finna pattern og allskonar, og það var komin risahrúga á borðið af kroti.
Ég var svo óóóóótrúlega glaður þegar ég fattaði, en sjit hvað mér fannst ég vera mikill vitleysingur!
Það eina sem maður má segja fólki er:
1. Að nafnið á leiknum sé mikilvægt
2. Útkomuna á hverju kasti
Það er bannað að segja fólki lausnina. Alveg bannað. Harðbannað. Persónulega finnst mér gaman að sjá fólk svitna yfir þessu veseni og svo fatta það, sérstaklega þegar það er búið að eyða klukkutímum einsog ég. Aular!
Fór annars aftur í Macy's í gær og skipti ljóta röndótta jakkanum og fékk jakka OG buxur í staðinn. Svaka díll, og mjög heimskuleg kaup. Ætla að finna gaurinn sem seldi mér jakkann og láta hann finna til tevatnsins!
Ég ER semsagt alveg alltilæ í semi-fínum jakka og gallabuxum, svona einsog Justin. Ég hélt að ég liti út einsog auli þannig en svo er þetta alveg alltilæ. En ég er líka svo glóbal. Buxurnar eru bara fínar kolagráar (hah) og vonandi ekkert of plebbó (mér finnst svona buxur oft svo plebbalegar). Svo keypti ég líka skó sem eru með pínulítilli buckle, svona einsog sjóræningja- eða kalkúnadrepandi pílagrímaskór. Samt er hún minni og til hliðar og held ég bara ansi smekkleg og valdamikil, og það fylgdi enginn hattur eða lúðrariffill með. Eða talkúm kalkún.
Mamma og Marta systir mín lenda á eftir og þá get ég sýnt þeim fötin og hlustað á þær segja vá eða frussa af hlátri. Svo ætlum við að fara og borða á Red Lobster, þar sem maður dýfir krabba og humri og svoleiðis í SMJ÷R og allskonar góðgæti...jiiiminn eini hvað ég hlakka óstjórnlega til! Og að hitta þær auðvitað.
Hey, ef maður fer á pizzastað sem segist vera með ítalskar pizzur en svo vinna bara mexíkanar þar, eru pizzurnar þá ekki mexíkanskar? Eða einsog á Devitos þar sem þeir eru allir frá Afríku? Afrískar pizzur? Þær eru jömmílisjus!
Og svo er Chipotle (uppáhalds bleiknefja-mexíkanski veitingastaðurinn minn) í eigu McDonalds. Og Godiva believed-to-be-lúxussúkkulaðið er í eigu Campbell's Soup. Súpulaði. En hverjum er ekki sama.
Skilaboð (4)
Nammi namm ;-)
Skrifað 16.04.05 23:41
...halli sinn......senda mangó sinni meil og útskýra þennan bjévítans leik!!!!
Skrifað 17.04.05 14:40
aaaahaaaa...búnað fatta
Skrifað 17.04.05 15:02
Jöss!!! Við erum svo klár.
Skrifað 17.04.05 18:35