« Spuddningar #1 | Aðalsíða | Magnað! »

Spuddningar #2

Er á fullu að gera ritgerð þannig að þetta verður ekki langt. Ætla bara að segja frá tveimur uppgötvunum mínum:

I. Fattaði í gær að Kraftwerk lagið "Ohm Sweet Ohm" er líklega tilvísun í Home Sweet Home. En sú uppgötvun!

II. Fattaði áðan að Privacy Service frá McAfee (vírusvarnarviðbótardóterí sem ég installaði um daginn til að verja mig frá Moldavískum internetbröskurum) er ástæða þess að internetið mitt er búið að vera mjög svo fatlað síðustu daga. Ég hef ekki getað dánlódað neinu, hvorki viðhengjum í tölvupósti né fallegum ljósmyndum af internetinu, ég er ekki að meina að forritin blokki aðgang að efninu heldur að það kemur alltaf time-out.

Þannig að þið sem fílið McAfee og þolið ekki Kraftwerk: snúið því við!

Takk fyrir þátttökuna í getrauninni í gær. Því miður svaraði enginn öllu rétt en þar sem Njörður er hress stuðbolti ætlar hann að SMSa öllum sem reyndu.

Hér er ný getraun:

#1
Hvað af eftirtöldu finnst mér ógeð:
A) ferskir tómatar
B) ferskt jógúrt
C) ferskt ýsuflak

#2
Hvaða skepna er á sokkunum sem ég er í núna:
A) froskur
B) dreki
C) páfugl

#3
Af hverju af eftirtöldu á ég slæmar minningar:
A) súkkulaðihúðuðum saltkringlum
B) melónubragðs Jolly Rancher bróstsykrum
C) djöfullega sterku chilihlaupi

#4
Í hvernig skóm hljóp Zola Budd?
A) trjábarkarskóm
B) engum, hún hljóp á táslunum
C) Adidas
D) Nike
E) Hummel
F) Reebok
G) Puffins kuldaskóm með vasa
H) ljótum skóm
I) hún er ekki með lappir

Svör í kommentin, ef þið nennið og viljið, plís.

p.s. veit ekki hver verðlaunin eru strax. Kannski SMS frá Ástþóri Magnússyni.

Skilaboð (8)

1 C
2 B
3 C
4 D

mangó sín:

....veitiggi hvers vegn þetta kemur svona.....er vonandi búnað laga ...he he :)

1. D. Non of the above
2. D. Non of the above
3. D. Non of the above
4. J. Non of the above

djöfullinn er ástþór magnússon totally geðsjúkur maður! Vildi bara koma því á framfæri!

TZMP RULEZ!

ég tek sko ekki þátt, er ekki enn ¥bunað fá sms frá nirði fyrir síðustu þátttöku!

Ég vann!

sL8:

1.ferskir tómatar
2.froskur
3.súkkulaðihúðuðum saltkringlum
4.hljóp á táslunum

ég held ég hafi unnið og ég vil fá sms frá ástþóri magnússyni.

Hehe, ég skal reyna að hafa samband við Ástþór. Ég veit samt ekki hvort það sé nógu gott samband uppí körfubílnum...

Og já, viljiði í alvörunni að hann hafi númerið ykkar???

Um

Þessi síða inniheldur eina færslu skrifaða 21. september 2004, kl: 17:35.

Fyrri færslan er Spuddningar #1.

Næsta færsla er Magnað!.

Hægt er að finna margar fleiri á aðalsíðunni eða með því að skoða safnið.

Knúið af
Movable Type 3.31