Hallú, mig langar að prófa dáldið.
Nennið þið að setja link á síðuna ykkar sem linkar á mína síðu (http://www.icomefromreykjavik.com/halli) en vísar á Reykjavik info? Einsog þennan: Reykjavik info
Mig langar nefnilega að prófa hvort ég geti komið síðunni minni efst á lista Google yfir leitarorðin "Reykjavik info". Það væri snilld ef þið væruð til í að hjálpa mér. Plís.
Annars þá var vinkona herbergisfélagans í viku heimsókn. Hún gisti inní herberginu hans og hann hjá henni, svaka rómó. Heyrði þó hvorki kyssihljóð né brak og bresti þannig að sambúðin var ljúf. Hún er frá litlum bæ einhversstaðar í Illinois fylki (þar sem Chicago er) og vitiði hvað, ég er fyrsti maðurinn EV÷R sem hún talar við sem talar með HREIMI. Já, það er nú barasta þannig. Við vorum að tala saman inní eldhúsi eitt kvöldið og þá hálf-gapti hún og fór að tísta úr hlátri alltaf þegar ég talaði. Þar sem ég var ekki að segja neitt fyndið (aldrei þessu vant, eeyy???) þá spurði ég hana hvað málið væri og heyrði þá þessa útskýringu.
Hversu lítill bær þarf þetta að vera til að hún hafi ALDREI ALDREI heyrt nokkurn einasta mann tala með hreimi? Býr hún á Fáskrúðsfirði Bandaríkjamanna? Skil þetta ekki.
Jesús, er að spila klassíska tónlist núna þegar ég er að skrifa þetta og alltíeinu byrjaði svaka hetjuleg tónlist og allt sem ég skrifaði varð ótrúlega epískt og hetjulegt. Tra la laaaaaa. Mér líður einsog þessi orð munu ekki bara bjarga kastalanum mínum og öllum íbúum þorpsins, heldur mun ég líka fara í kvöld í leiðangur og sigra grimma ofurstann.
Og núna er ég að hlaupa upp fjallið og stappa stáli í alla bændurna sem liggja þar í dvala. "Hrífur, samlokur og inniskór...hvað sem er...komum upp á topp...og...og...berjuuuuumst....."
Æj, lagið búið. Hversdagsleikinn blasir við mér og ég er bara hálf-sveittur gaur sem situr ber-að-ofan í stuttbuxum og pikkar á lyklaborð í litlu herbergi. En sú veröld. Hvar eru allar hrífurnar?
En, ég bauð þorpsstúlkunni að brenna handa henni nokkra diska með alheimstónlist til að skemmta henni og þorplingum hennar um ókomnar ævir, eða hvað sem maður segir. Ég komst þá að því að hún hafði heyrt um Bítlana, en aldreí í þeim, hún hafði heyrt um Lou Reed, Led Zeppelin og Cat Stevens en aldrei í þeim.
Magnað helvíti.
Hún fílaði hinsvegar Creed. Jebb.
Ég brenndi fyrir hana Lemon Jelly, Dandy Warhols, Adam Green, Strokes, Bob Dylan, Led Zeppelin, America, Gilbert O Sullivan, Zager & Evans, Kinks, Beach Boys, Hole, Smashing Pumpkins, Blur, Coldplay, U2, Carole King, Red Hot Chili Peppers, Harry Nilsson, Nico, Flaming Lips, Pixies, Eric Clapton, Ian Brown, Jeff Buckley, Peter Sarstedt, Porno for Pyros, Jane's Addiction, Rolling Stones, My Bloody Valentine, Supergrass og The Cure.
Ætli hún verði ekki brennd á báli sem norn?
Skilaboð (4)
Hvaða litla kaupstað var hún frá?
Ég skal segja þér hvort þetta sé alvöru
hicktown með steak-n-shake og svoleiðis.
Skrifað 27.09.04 11:24
He he, emm...ég man það ekki, en ég man að hún er nær Indiana en Chicago. Ég veit að Indiana er fylki, en hún sagðist ekki hafa komið til Chicago í 10 ár!!! :)
Svo var ég eitthvað að gera grín að redneckum og þá sagði hún "HEYYYY, don't do thaat! My brother is a redneck!!!" og var ekki að grínast...! :)
Ég skal spyrja herbergisfélagann hvaðan hún er. En believe me, hún býr líklega í næsta stigi fyrir ofan hjólhýsi.
Skrifað 27.09.04 12:19
fellihýsi?
Skrifað 27.09.04 17:09
He he...eða kúlutjaldi...?
Skrifað 27.09.04 22:03