Ég er búinn að verað horfá The Apprentice þættina þar sem Donald Trump velur sér skósvein úr fögrum hópi skósveina.
Á sama tíma og mér finnst grautfúlt að þetta lið er allt plebbar sem eru ekkert betri en ég að nokkru leyti (ég á bara ekki svona fín jakkaföt) þá finnst mér alltaf gaman að horfa á hárið hans Donalds Trumps.
Í einum þættinum fengu tilvonandi skósveinarnir það verkefni að búa til nýtt dót sem Mattel ætlaði svo að græða á. Þar sem eitt barnið í fókusgrúppunni rakkaði niður dót sem ein skósveinan klastraði saman þá hefndi hún sín og gerði grín að klippingu barnsins. Donald Trump sagði þá "Yo dudettes, my name is Donald Trump, it is having a bad haircut". Ég er samt ósammála því að hann sé með slæma klippingu. Mér finnst hann vera með alverstu klippingu í sögu klippinga.
Eini maðurinn sem kemst nálægt því er Guðni fyrrverandi/núverandi aðstoðar/aðallandsliðsþjálfari/liðstjóri. Já, ég veit ekkert hver það var, en ég eit að hann greiðir yfir skallann. Ég sá einusinni viðtal við hann í fréttunum og alltí einu kom hressileg vindhviða og hárið á honum fauk af skallanum og til hliðar, nema það var svo langt að það fauk útúr mynd. Það hafa ekki mörg hár fokið útúr mynd, haaa hmmm.
En hér er Donald Trump einsog ég VEIT að hann er.

Svo þið haldið ekki að ég hafi keypt þessa mynd á alnetinu þá eru myndirnar sem ég notaði í þetta hér!
Og ójá, svo er Heimlich langbesti vinur vor kominn með persónulegt index.
Og nú skulum við tala um bræðurna Rudolf og Michael Schenker. Rudolf er gítarleikarinn í þungamálmsbandinu Scorpions sem er skemmtilegra að kalla Scroppions einsog kallinn með taglið sem kom alltaf í Virgin gerði alltaf. Hann átti svona skræpótta hippaboli og allskonar vesti og vitleysu og var skítsama um tísku eða áratug. Stundum var hann meiraðsegja búinn að losa taglið og með hárið svona froðublautt. Mmm mm mm, hann var svalur.
En Michael var THE DUDE í Michael Schenker Group, eða MSG einsog vonda ýkjukryddið sem lamar andlit og býr til grænmeti. Þ.e. fólkagrænmeti. Þegar ég var 11-12 ára og bjó í Grafarvogi (the place to be!) þá leyfði Ingó vinur minn mér að heyra þessa snilld í fyrsta skipti. Djöfull filaði ég þetta band, millistórt hár, niðurþröngar buxur og vælandi málmur! Ég átti svona lítinn gettóblaster, eiginlega bara sumarbústaðablaster, sem var svo sniðugur að ég gat tekið hátalarana af af og lagt sitthvorumegin á koddann minn svo ég væri með últra surround system sem knúsaði mig inní draumaheiminn. Já, þú messaðir sko ekki í Nesco!
Þar sem kassettan sem Ingó lánaði mér var ómerkt, eða þá að það eru jú liðin 16 ár síðan (*svitn*) þá man ég ekki hvað uppáhaldslagið mitt hét, og...því miður...þá man ég ekki alveg hvernig það hljómaði. En það var frábærlegasta lag í öllum heiminum, það man ég sko!
Ég náði mér í diskling með læv-upptöku frá Japan eða eitthvað ("Good mooorning Bííldudaaaluuur") og reyndi hvað ég gat að hlusta og muna en fann ekki lagið. Veit ekki hvort ég mun nokkurntímann finna þetta lag nema ég skríði uppí rúmið mitt og hlusti á Nesco græjurnar aftur. Verst að ég er löngu fluttur úr húsinu. Vonandi skilur nýja fólkið mig.
Ég man líka eftir að fíla Eurythmics afþví að Ásdís frænka mín hlustaði svo mikið á þau. Ég man þegar við keyrðum einhvern þröngan týpískan íslenskan fjallaveg, þar sem að það eru grjóthnullungar í fjallshlíð öðrumegin og þverhnípt niður til kölska hinumegin, þá fannst mér fínt að hlusta bara á Eurythmics og reyna að gleyma bráðum bana. En svo átti hún auðvitað Led Zeppelin (mega-uppáhalds!) á vínyl sem ég hlustaði alltaf á hjá henni.
Ég heimsótti svo Nenna frænda minn nokkrum sinnum þegar hann var í námi í Oxford í Englandi. Hann átti græjur sem voru svo mikil framfarasmíð að maður þurfti að nota hárblásara á geislaspilarann í nokkrar mínútur til að minnka rakastigið svo skúffan héldist lokuð og maður gæti ýtt á play. Í þeim spilara hlustaði ég á Quireboys, Awesome 20, Dance Energy 3 og EMF í fyrsta skipti.
Einusinni kom Daníel frændi minn með mér til Nenna. Við ætluðum að vera ótrúlega sniðugir og hræða hann með því að klippa út mynd af geitungi sem við fundum í tímariti. Áður en við fórum að sofa settum við svo útklippinginn á frábæran stað á mynd sem lá á arinhillunni. Daginn eftir vöknuðum við, teygðum úr okkur og görguðum svo á Nenna, skííthræddir við hlussustóra geitunginn sem var á myndinni.
Veit samt ekki hvort við vorum hræddari þá eða hjá dósakallinum sem bjó í bílnum. Eftir að hafa staðið í nokkrar mínútur og starað inní bílinn og skoðað allar dósirnar horfðum við beint á kallinn þar sem hann sat í framsætinu. Allt í einu hreyfði hann sig og við pissuðum næstum því í okkur.
Skilaboð (6)
bwahahahhaha..........
ég dey!!!
scorpions og allt!!! mér finnst það vera soldið Goði, hvað finnst þér??
Skrifað 28.09.04 05:17
Hi hi, jú það er eiginlega nákvæmlega Goði. :)
Langar að sjá Goða syrpu...
Skrifað 28.09.04 15:27
vá heimasíðans hans hæmligs er geggjuð! ekkert smá fín og svoooo skemmtilegir litir, vantar barra glimmer en gullbjúgað bætir það upp
STÓRGLÆSILEGT
fyrir utan hvað myndin af donald er geggjuð:D fönní að sjá úr hverju þú býrð til svona meistaraverk:)
Skrifað 28.09.04 16:33
Geitungurinn var nokkuð góður, en manstu
eftir því þegar við gátum ekki sofnað í oxford
því að við heldum að eitrað fiðrildi myndi
bíta okkur á meðan við svæfum? Hvernig datt
okkur það í hug?
Skrifað 28.09.04 16:51
He he, Daníel ég man ekki eftir því. Sjit, var það flögrandi inní herberginu? :)
Skrifað 28.09.04 18:06
vá fiðrildi er eitt það sem ég er hræddust við í heiminum.. fáránleg fóbía.. ég hefði án gríns ekki sofið fyrr en einhver hefðir losað það úr herbigginu
Skrifað 30.09.04 02:25