Ooooh, ég vildi að þið væruð ÷LL hjá mér núna.
Á leiðinni heim rölti ég í gegnum brjálaða mannþröng í litlu-Ítalíu. Fólk er að fagna hátíð Heilags Gennero eða Lubrikoff eða hvað sem hann hét. Helmingurinn af öllum Ítölunum leigði sér greinilega bás og er að selja hinum helmingnum ásamt öllum túristunum og kínverjunum samlokur með gríðarstórum hrossabjúgum eða einhverju jafn stóru, þykku og ógirnilegu. Í loftinu er hnausþykkur laukfnykur sem nær því miður ekki alla leiðina fyrir utan húsið mitt. En svo er lyktin að dofna út af kólnandi veðri og bla bla bla og blah!
EN!
Ég stoppaði í japanskri búð með fyndnum skiltum ("Grand Openingi" og "Go Downstair") og keypti 2 gaffla, 2 hnífa og 2 skeiðar. Herbergisfélaginn ákvað nefnilega að vera grand á því í gamla daga og keypti sér heilt sett af hnífapörum á heilar 70 krónur. Hnífapörin eru því ljót, beygluð, óþægileg, meiða mann og passa algjörlega við hans árstíð. Með þessum nýju mun ég geta smurt brauð, borðað morgunmat, fengið mér ís án þess að henda skeiðinni efirá og margt, margt fleira. Ó töfrar stáls!
Inní þessari krúttilegu búð sá ég aragrúa af nestisboxum og dáðist að Austurlandabúum fyrir að þora að selja þau með skemmtilegum teikningnum af allskyns dýrum og fígúrum, annað en myndum af blómum eða....vó, varúð, frumlegt: NESTI! eins og hér á vesturlöndum. Það er einsog að kaupa skissubók með mynd af skissum utaná, nú eða ísskáp með mynd af mat á hurðinni.
En jesús kristur, ég hló svooo mikið þegar ég las hvað stóð á nestisboxunum.
Ég kynni: CLICKERY CLICK! frá Lube Sheep.
(he he, Lube Sheep? er það forsmurð kind?)
#1 Bangsi
My name is Bobbin. It likes playing outside. I will carry out what and will play today.
#2 Minkur?
My name is Mink. It likes reading the book of an adventure. It is excited very good!
#3 Funky Duck
The jolly duck stepping with cheerful music
#4 Sugar Dog
The kind-hearted dog with a weakness for sweats.
It likes? Excited Very Good??? He he, þetta er frábærlega fyndið! Framleiðendurnir hafa greinilega notað annaðhvort þýðingarvél eða apa til að snara textanum á söluvænlega ensku. Útkoman er snilld, en ég veit ekki alveg hvort þetta sé eins snilld og þau vildu. Ó töfrar plasts!
Skilaboð (2)
doggs sem eru veikir fyrir svita... hehe
Skrifað 25.09.04 09:25
Please forgive me for posting in English. I know it's rude, but the only thing I can say in Icelandic is, "I have definitely seen enough puffins", and I don't think I can make my computer's keyboard type it out.
I found your blog when I did a Google search for Lube Sheep, because I just bought a set of bowls made by them and wanted to find out more about them. Yes, I bought them because say "Lube Sheep" - it's as funny to native English speakers as it is to everyone else.
I'm posting because I had to ask: HOW did someone in Reykjavik find something from Lube Sheep? Has Engrish really made its way to Iceland?
Please, if you would be so kind, email me at shesquint@yahoo.com. I'm dying of curiosity. Thank you!
Cheers!
Robin
P.S. I am deeply sorry that the world has to suffer another four years of George W. Bush. I certainly didn't vote for the bastard.
Skrifað 08.11.04 15:00