Burger Joint á Parker Meridien
Staðsetning: 118 W 57. stræti, á milli 6. og 7. Avenue [ sjá kort ]
Sími: (212) 708-7414
- F lestin á 57. stræti
Þessi unaðslega sveitta hamborgarabúlla er mun líklegri fyrirmynd að Hamborgarbúllu Tómasar en alnafninn á 21. stræti. Þessi staður var einusinni leyndó (og er það örugglega enn að einhverju marki), enda er ekki margt sem gefur til kynna að þarna fáist ljúffengir borgarar: frá götunni er gengið inní andyri Parker Meridien hótelsins, og þar til vinstri, hálf-falið á milli veggja, glóir neon-hamborgarljósið og vísar manni veginn.
Matseðillinn er einfaldur: hamborgar, franskar, gos, bjór, og möffins. Staðurinn sjálfur er viðarklæddur og þakinn allskyns plakötum og veggjarispi, og á háannatíma (hádegi og rétt eftir vinnutíma) er oftast röð útúr staðnum, og nær vonlaust að fá sæti. Langbest er því að koma rétt fyrir hádegi, miðdegis, eða nokkuð eftir kvöldmat.
Borgararnir sjálfir eru mjöööög góðir, og gaman að þvælast inní andyri hótelsins með tóman maga og labba svo aftur út ropandi með sveittar kinnar. Hamborgari, franskar og gos kosta um $11.
MoMA safnið er líka rétt hjá, og því tilvalið að sameina há- og lágmenningarferð (borgarastaðurinn sjálfur sameinar reyndar bæði, þannig að þetta verður ævintýri líkast).